Lifun og AlmarD hafa fullkomlega rétt fyrir sér í þessum efnum!! :) Nirvana er nefnilega svona “tímabil” hjá mörgum. Ég er náttúrulega bara enn að vaxa, en í byrjun þessa árs komst ekkert að nema Nirvana hjá mér, Kurt var svo geggjað kúl og lögin svo grípandi, og þá mátti enginn segja eitthvað annað, þá var viðkomandi rakkaður niður. En núna, þegar maður er farin að hlusta á hljómsveitir eins og Radiohead, Led Zeppelin, Sigurrós, Red Hot Chili Peppers, þá er Nirvana eiginlega ekkert spes...