Eins og þið eflaust vitið þá er ógeðslega mikið sem er flokkað undir rokk tónlist og mér finnst svo ógeðslega mikið af þessu ekki einusinni að eiga vera viðurkennt sem tónlist!

Svo virðist vera að ef að fólk gengur í rokk fötum þá spilar það rokk tónlist eins og t.d Good Charlotte og Avril Lavigne, þetta er popp tónlist en þau ganga í pönk fötum þá er þetta flokkað öðruvísi, ég er alveg 100% viss um það að ef að Busted væri ekki eins sætir og þeir eru og gengu í pönk fötum þá væri örugglega komnar inn nokkrar Busted greinar hérna inni.
Svo þoli ég ekki eitt, þegar fólk segist dýrka rokk tónlist og þegar maður spyr það e-ð meira útí það, þá vita þau lítið sem ekkert um neitt af frægustu rokkhljómsveitunum, heldur segjast bara vera rokkarar vegna þess að þau hlusta á Linkin park, Good Charlotte, Blink 182 eða Nirvana (Nirvana er rokk hljómsveit samt ég hef ekkert á móti þeim, það eru bara svo margir sem halda að þau eru svo töff að hlusta á Nirvana).

Mér finnst samt Blink 182 vera meiri rokk hljómsveit en Good Charlotte, þeir eru alveg fínir, ég fíla ekki þessa tónlist sem þeir spila en þeir fara ekki svona í taugarnar á mér, nýja lagið er líka ágætt.

Ég þoli heldur ekki þegar fólk segist dýrka Muse (tek bara svona dæmi) og það sé uppáhalds hljómsveitinn þeirra, þegar þau heyrðu bara Stockholm syndrome og keyptu Absolution og hafa varla heyrt meira og hlusta örugglega bara á smáskífulögin á honum.

Ég veit að þetta er mjög barnalegur korkur, ég var bara að reyna að tjá mig og það hljómar svo kjánalega þegar ég les þetta aftur :p.

______________________________________________________________

Stelpan hefur talað og stelpan er ég<br><br>You can pick your friends and you can pick your nose, but you can't pick your friends nose!