Ég og vinkona mín höfum rosalega gaman af vandræðalegum sögum og ákváðum að deila nokkrum með ykkur, heyra ykkar sögur og…. safna nokkrum stigum í leiðinni!! =)

MEST vandræðalegasta: var þegar ég var nýbúin að sættast við kærastann eftir… tveggja minútna “rifrildi” og ég ætlaði að fara heim og hann var samferða mér… og kyssti mig að sjálfsögðu bless… hehe og við vorum svo ánægð að vera ekkert fúl þannig að þetta gekk kannski soldið langt þarna úti á tröppum, þannig að við ákváðum að fara inn…. það var enginn heima og ég var bara alein heima (hélt ég)
Svo þegar ég er að eitthvað að leita að lyklunum og hann stendur fyrir aftan mig og heldur utanum mig og er að kyssa mig á hálsinn og þannig… þá lít ég upp í gluggann og sé mömmu standa þar með krosslagða handleggi og glápir á okkur… MJÖG hneyksluð!
Við fórum alveg í kerfi og fórum frekar heim til hans! (það var ekki gaman að koma heim)

Mest vandræðalegast: (ekki ég heldur vinkona mín)
Sko… hún var rosa hrifin af einum strák og hann sýndi líka mjög mikil merki um að vera hrifin af henni. Svo einu sinni, þegar þau voru á MSN að spjalla saman og ákveða að hittast…. hjá honum (það voru líka einhverjir aðrir krakkar en það kom ekkert fram í “samtalinu”)
Svo fer hún út og segir pabba sínum að hún sé að fara að passa … og gleymir að slökkva á tölvunni….
Svo var búið að vera rosa gaman þarna hjá þeim og svo eftir einhverja tvo klukkutíma þá hringir pabbi hennar og spyr hvort að það sé gaman að passa og hvort hún sé búin að svæfa. Hún bara “jújú, rosa gaman og litli er steinsofnaður hérna í fanginu á mér”
Pabbi hennar hafði þá farið í tölvuna og lesið allt samtalið og lét hana ekki koma vel útúr því og hún fór í straff í viku :/

Höfum ekki tíma til að skrifa meira, gætum samt alveg skrifað 10000 sögur í viðbót. Það væri rosa gaman að heyra ykkar sögur… það þarf ekkert endilega að vera tengt “rómantík” en bara svo að flestir skrifi!!!

<br><br>————————————————–
<b>It can buy a House……………But not a Home
It can buy a Bed………………But not Sleep
It can buy a Clock…………….But not Time
It can buy you a Book……But not knowledge
It can buy you a Position….But not Respect
It can buy you Medicine…….But not Health
It can buy you Blood…………But not Life
It can buy you Sex…………..But not Love</