Var að velta því fyrir mér hvaða líkamsræktarstöð hver og einn stundar og hvernig ykkur líkar. Ég er búin að vera í Baðhúsinu í nokkurn tíma og líkar ágætlega, en finnst að það mætti aðeins fara að lappa upp á aðstöðuna og þá sérstaklega tækjasalinn, sem ég held að hafi varla breyst í þau 9 ár sem stöðin hefur verið opin! Allavega…gaman væri að heyra ykkar álit á þeirri líkamsræktarstöð sem þið stundið.

Með fyrirfram þökk :)