Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Borga fyrir download??

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held að Landssíminn sé að taka ykkur í nefið. Rukka bara eins og þeir geta. Ég er í Kanada og er að borga um 1500 ISK á mánuði fyrir ca. 600-700 kbps. Ég borga ekkert fyrir download og nú er ég líka að nota sæstrenginn þegar ég t.d. fer inn á Huga.

Re: Heimilið og tryggingar

í Heimilið fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Foreldrar mínir lentu í því fyrir tæpum 2 árum að það kviknaði í sjónvarpinu þeirra. Sem betur fer voru þau að horfa á það og sem betur fer var TM nýbúin að senda þeim eldvarnarteppi að gjöf þannig að þau skelltu því yfir bálið og komu þannig í veg fyrir að það kviknaði í gardínunum eða neinu öðru. Sjónvarpið var náttúrulega ónýtt og þar sem það hafði bráðnað yfir sjónvarpsstandinn og videoið, þá var það náttúrulega ónýtt sem og gólfteppið á stofunni. Svo var náttúrulega sót út um allt og...

Re: Viðbjóðslegt fólk

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Svona fólk hefur alltaf verið til. Það er ekkert nýtt. Þú þarft ekki að fara lengra en í Öldin okkar til að sjá fréttir af krakkagreyjum hér uppi á Íslandi sem voru niðursetningar og voru barðir og sveltir í hel.

Re: Tallin,

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er líklega ódýrast eins og er búið að benda á að taka ferju til Tallin frá Stokkhólmi. Það er ein á http://www.tallink.ee/ og kostar 3000 ISK farið aðra leiðina en klefi eða rúm kostar auka. Ferðin tekur 15 tíma þannig að það væri líklega betra að hafa rúm :) Ég tékkaði á SAS fyrir þig hvað það kostar að taka flug þessa leið og það er 4300 SEK eða um 40 þús ISK báðar leiðir. Yikes! Báðar leiðir með ferjunni með ódýrasta rúmi væru undir 10 þús. kall en tekur náttúrulega lengri tíma.

Re: Verðhækkanir fylgja evrunni

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Er þetta ekki bara mannlegt eðli? Kaupmenn að nýta sér það að neytendur eru ekki búnir að fatta nýja gjaldmiðilinn? Þegar myntbreytingin var hérna '81 urðu alveg geðveikar hækkanir. Þó það væri verðbólga þá notuðu kaupmenn sér að hækka ennþá meira vegna þess að neytendur voru smá ruglaðir og fannst allt svo ódýrt af því það var búið að taka 2 núll.

Re: Svefntími ungra barna ?

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Uhh, það er náttúrulega draumabarn sem sefur 23 tíma á sólarhring :) Ætli hún hafi samt ekki meint 9:30?

Re: Eyðimerkurblómið

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held að hún sé aðallega að berjast gegn umskurn kvenna. Það er semsagt barmarnir og allt draslið skorið burt og saumað saman. Bara skilið eftir smá gat til að þær geti pissað. Þetta er svona álíka og að taka 5 ára gamla stráka og skera kónginn af typpinu.

Re: Hann var kallaður þetta

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Setti hún það ekki í ruslið? Annars var nýlegt dæmi í Kanada þar sem stelpa fór að partýja og skildi börnin sín tvö ein eftir heima í 10 daga. Þau dóu úr líklega af vökvaskorti frekar en hungri. Þetta er á http://www.canoe.ca/CNEWSLaw0206/20_babies-cp.html

Re: Briet.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ó, þú ert að tala um “jákvæða mismunun”. Ég hélt að við værum að tala um landeigendur í Afríku :) Ég faktískt skil ekki hvernig mismunun getur nokkurn tímann verið jákvæð. Ok, kannski skiljanlegt ef mismununin er á sama fólkinu, t.d. ef systkini fá að skiptast á um að sitja í framsætinu en af hverju ættu konur í dag að græða á því að einhverjum öðrum konum í gamla daga hafi verið mismunað og af hverju ættu karlmenn í dag að tapa á því að einhverjir aðrir karlar hafi einhvern tímann notið...

Re: Ógeð!!!!

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fólkið á Dalsmynni getur náttúrulega kært þetta. Ef það er sýnt og sannað að þessi síða er öll lygi þá verður sá sem gerði hana að bera ábyrgð á því. Hins vegar þekki ég aðeins til á Dalsmynni og veit að þar er ýmislegt rugl í gangi.

Re: Hvað er barnið gamalt????

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held að hann sé bara grínisti. Annað hvort það eða hann er 14. Eða vangefinn :(

Re: Briet.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Nei en ef hann stal líka borðsilfrinu þeirra áður en hann fór illa með þær, átt þú þá að eiga það?

Re: Briet.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mugabe er náttúrulega ruglaður þar sem það hefur sýnt sig að þegar búið er að henda öllum hvítu bændunum út eða drepa þá sem vilja ekki fara með góðu, þá leggjast hinir innfæddu í fyllerí og enginn ræktar nokkurn skapaðan hlut og allir drepast úr hungri. Hins vegar er náttúrulega spurning.. ef pabbi minn stal einhverju og dó svo og ég erfði hlutinn, má ég þá eiga hann?

Re: The Lost Boy

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jafnvel þó bróðir hans hafi virkilega komið í viðtal og sagt að þetta væri allt uppspuni, þá er heldur ekkert víst að það sé satt. Kannski man bróðirinn bara ekkert eftir þessu þar sem hann er yngri. Og mamman var náttúrulega aldrei vond við hann. Eða kannski er bara einhver afneitun í gangi hjá honum. Hann trúir þessu kannski ekki upp á mömmu sína eða skammast sín fyrir það að hann hafi sjálfur ekkert getað gert. Eða hann er bara afbrýðisamur yfir athyglinni sem bróðir hans hefur fengið....

Re: Survivor: Thailand

í Raunveruleikaþættir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Og að sjálfsögðu frá NY. 911 you know :)

Re: Um notkun á bréfsefni Alþingis

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Sorrý en það er svolítið langt fyrir mig að fara. Ég bý nefnilega í annarri heimsálfu :) Ég hef náttúrulega ekki séð þetta bréf og veit þess vegna ekkert hvað það innihélt en hvers vegna þarf þingmaður að vera að auglýsa hvað hún hefur gert ef það er ekki kosningabrella? Þeir sem kusu hana fylgjast væntanlega með henni í fréttum og vita hvað hún er að gera, ekki satt? Og ef þetta bréf var svona ofboðslega tengt þingstörfum hennar, af hverju borgaði hún þá frímerkin?

Re: Survivor: Thailand

í Raunveruleikaþættir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hafðu engar áhyggjur, ég er í Kanada og get sagt ykkur allt sem gerist ;) Nei, nei, bara að grínast, ég ætla ekkert að spoila þetta þætti fyrir ykkur, enda nenni ég ekki lengur að horfa á þá. Sería 1 var fín, sería 2 allt í lagi en svo datt ég út í seríu 3. Hef ekki séð einn einasta þátt síðan ca. miðja seríu 3. Rétt frétti hver vann. Alla vega, þá er ég ekkert hissa á því að þau taki svona asnalega hluti. Það er ábyggilega bannað að velja hluti eins og vasahníf, vasaljós og eitthvað...

Re: Hann var kallaður þetta

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það hefur einhvern veginn dottið eyða inn í URLið. Taktu út eyðuna sem er á undan news og þá virkar það. Börnin voru 3ja ára strákur og 10 mánaða stelpa. Konan var 25 ára. Þegar hún var búin í hárgreiðslu eftir 3 tíma og fann þau dáin í bílnum, þá keyrði hún um í aðra 3 tíma meðan hún var að semja sögu til að segja. Hún fór á endanum með þau á spítala og sagði að sér hefði verið rænt og nauðgað.

Re: Hann var kallaður þetta

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þetta var í Detroit í Bandaríkjunum. Hún fór í hárgreiðslu í 3 tíma. Yfirleitt þegar svona gerist er litið á það sem slys en í þessu tilfelli var ákveðið að kæra hana, enda ekkert venjulegt kæruleysi. Hún skildi reyndar eftir rifu á glugganum en það er alveg sama, það var mjög heitt. Hún er líka ólétt en líklega kemur hún til með að eignast það barn í fangelsi og fær væntanlega ekki tækifæri til að skilja það eftir í bíl. Ef hún verður dæmd verður hún væntanlega í fangelsi þar til það er...

Re: Hann var kallaður þetta

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er fullt af dæmum þar sem fólk hefur gert börnin sín veik til að fá athygli fyrir sig, t.d. með því að gefa þeim ofskammta af hægðalyfjum eða með því að halda fyrir munninn á þeim þangað til líður yfir þau af súrefnisskorti. Þá er hringt í neyðarlínuna o.s.frv. Það er einkennandi fyrir þessi dæmi að sama manneskjan er alltaf á staðnum þegar þetta gerist, oft mamman, ein með barnið. Ég sá líka dæmi þar sem barnfóstra var búin að gera þetta við nokkur börn, fékk svo svaka hrós að hún hefði...

Re: Um notkun á bréfsefni Alþingis

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Af hverju er í lagi að hún noti pappír Alþingis, ljósritunarþjónustu Alþingis, umslög Alþingis og starfsfólk Alþingis til að troða í umslög fyrir sig þegar hún er að senda út kosningaauglýsingu fyrir sig persónulega? Greinilega vissi hún að þetta var persónuleg sending, annars hefði hún ekki borgað fyrir frímerkin. Jafnvel þó hún hefði borgað allt, þá er aftur spurning um hvort hún eigi að nota bréfsefni Alþingis til að senda persónulegar sendingar. Svona álíka og þingmaðurinn sem reddaði...

Re: Briet.is

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
*grát*grát* Svo konur fá lægri laun? Langar þig til að vita af hverju? Jú, það er vegna þess að þegar kona eignast barn, þá er þjálfun hennar sem starfsmanns farin í vaskinn þar sem hún hverfur í 6 mánuði og jafnvel hættir alveg ef hún hefur efni á því. Þetta hefur kannski aðeins lagast með fæðingarorlofi karla en samt er því bara ekki saman að jafna. Annað, þá bera konur ennþá ábyrgðina á heimilunum og börnunum. Konur sem ég hef unnið með liggja miklu meira í símanum heldur en karlar, þarf...

Re: Fóstureyðingar og reykingar á meðgöngu

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þetta er kallað fetal alcohol syndrome og reyndar þarf konan ekki að drekka mjög mikið til að þetta geti gerst. Bilið milli augna er langt og nefið lítið. Þessir krakkar eru næstum alltaf vangefnir og undir meðalhæð/meðalþyngd, stundum líkamlega fatlaðir líka.

Re: The Lost Boy

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fólk vill ekki trúa því að neinn geti verið svona vondur eins og mamma hans. Þess vegna trúir fólk oft heldur ekki börnum sem er misþyrmt og þau eru ekki tekin frá foreldrunum heldur pínd þar áfram. Hvernig ætti líka einhver að geta fullyrt það að hann hafi búið þetta til?

Re: Hann var kallaður

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvernig er það, er ekki bókasafn þar sem þú átt heima? Þessi bók er annars nýleg þannig að það er líklegt að hún sé mikið í útláni en það er hægt að panta.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok