Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Hann var kallaður

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það var eitthvað dæmi sem ég heyrði um fyrir nokkrum árum, man ekki hvort það var í Washington fylki. Það er eitthvað um þetta á http://www.filmakers.com/indivs/UnquietDeath.htm og http://www.geocities.com/stolenangels/cpsneglect.html Alla vega var þetta 3ja ára gamall strákur sem var mikið barinn og oft búið að kvarta við barnaverndaryfirvöld og enginn gerði neitt. Ég sá viðtal við ömmuna sem hafði stundum fengið hann til sín og hafði tekið myndir af honum nöktum þar sem sást marblettur við...

Re: Hár dauðans!

í Tíska & útlit fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Til að láta hárið verða mýkra þarftu að nota hárnæringu, það verður ógeðslega slepjulegt. Hins vegar væri kannski best í þínu tilfelli að bara raka það af. Þú getur náttúrulega líka látið fjarlægja hárið með rafmeðferð eða laser :)

Re: öskubakki í flugvélum.

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það mátti reykja einu sinni. Það var hægt að fá reyk- og reyklaus sæti. Sum flugfélög leyfa ennþá reykingar, alla vega á lengri leiðum. Sum banna alveg. Sum lönd banna reykingar í innanlandsflugi, t.d. Bandaríkin þó það gildi reyndar ekki ef flugið er 6 tímar eða lengra.

Re: Um notkun á bréfsefni Alþingis

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Er það ekki álíka og ef borgarstjóri sendi kjósendum sínum bréf skrifuð á bréfsefni Reykjavíkurborgar?

Re: Hann var kallaður

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
David Pelzer sá ég einhvers staðar að hefði sagt að hann hafi fyrirgefið mömmu sinni af því hún hafi verið geðveik en það getur samt enginn fyrirgefið einhverjum á stundinni. Þetta er visst ferli. Alla vega gott að þú gast fyrirgefið bróður þínum á endanum. Það fer rosalega illa með fólk að hata einhvern.

Re: Breytingin á Huga

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Alveg sammála. Mér finnst þetta verra en var.

Re: Fóstureyðingar og reykingar á meðgöngu

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fólk getur orðið reitt ef ólétt kona er að reykja og ef hún er að drekka og jafnvel bara eins og grein á visir.is um daginn, ef kona getur ekki haft barnið sitt á brjósti. Það eru hins vegar engin lög sem banna konum að reykja á meðgöngu þó það sé ekki talið æskilegt. Fóstureyðingar eru líka ekki taldar æskilegar þó svo það séu kannski ekki margir sem vilja banna þær. Það er alla vega talið æskilegra að fólk noti frekar allar þær getnaðarvarnir sem eru í boði, það væru þá færri...

Re: Um notkun á bréfsefni Alþingis

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Er þetta ekki frekar einfalt mál? Ef ég er að vinna í fyrirtæki og nota bréfsefni þess til að skrifa viðskiptavinum, þá þýðir það ekki að ég megi nota það til að skrifa vinum og kunningjum. Ásta var ekki að nota bréfsefnið til að skrifa fólki sem hafði sent inn fyrirspurnir til hennar sem þingmanns. Hún var að skrifa flokksbundnum fréttabréf eða auglýsingu, minna á sig.

Re: Einkaþjálfaranámskeið

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hah, farðu bara að þjálfa. Það er fullt af jólasveinum í þessum bransa sem vita ábyggilega ekkert meira en þú :) Það er eitthvað námskeið í september, <a href="http://www.heilsuradgjof.is/page.asp?id=10">http://www.heilsuradgjof.is/page.asp?id=10</a>

Re: Tattoo

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ertu að meina henna tattoo sem er málað á og endist í nokkra daga? Eða hin sem endast í 3-5 ár? Ég myndi alla vega ekki fá mér svoleiðis. Mútta sagði mér frá konum sem fengu svoleiðis í augabrýrnar til að spara sér blýantinn og liturinn var gallaður og þær eru í dag með skærbleikar augabrýr. Svo hverfa þessi tattoo ekki allt í einu nákvæmlega eftir 3-5 ár heldur deyfast þau og verða ljót þannig að þau geta verið einhverjar klessur í einhvern tíma áður en þau hverfa. Það er ef þau hverfa þá...

Re: nýtt

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Gamla síðan linkar á þessa nýju en hún er líka niðri. Ég hugsa ef það er mikið af myndum, þá þurfa kannski ekki svo margir að skoða hana áður en hún fer yfir mörkin. Ég er búinn að prófa nokkrum sinnum en aldrei getað séð hana.

Re: hvað kostar???

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Stór hundur hlýtur að éta svona kíló af þurrfóðri á dag eða eitthvað álíka. Skv. heimasíðu Hagkaup geturðu fengið 20 kg af þurrfóðri á 3.262 og það ætti sem sagt að endast í 20 daga eða ca. 5000 kall á mánuði. Svo er dýralæknir einu sinni á ári, parvo sprauta, ormalyf og tilheyrandi. Kannski 5 þús. kall eða eitthvað álíka. Svo er líka sem kemur uppá, eyrnabólgur, slys og tilfallandi, kannski svipað. Þá er eftir hundaleyfi, fer eftir því hvar þú býrð, getur verið 7 - 12 þús. á ári. Ef þú...

Re: Vangaveltur

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ef hundar bíta að ástæðulausu, hvort sem það er börn eða fullorðið fólk, þá finnst mér að ætti að lóga þeim. Ef þú veist um slíka hunda og þeir hafa bitið þig eða börnin þín, þá ættirðu að kæra það til löggunnar eða hundaeftirlitsins á staðnum. Ef þú þekkir einhvern sem hefur verið bitinn af slíkum hundi ættirðu að hvetja þá til að gera það sama. Hins vegar þekki ég líka dæmi þar sem foreldrar trúa engu ljótu á börnin sín og fullyrða að hundurinn hafi ráðist á barnið þó allir hafi vitað að...

Re: Hann var kallaður

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er alla vega skárra að halda áfram að kvarta heldur en að gera ekki neitt. Það er þá alla vega möguleiki að krakkinn sé tekinn af þeim. Svo gæti maður náttúrulega bara stolið krakkanum af heimilinu og falið hann einhvers staðar meðan yfirvöld taka á málinu. Það virðist samt vera ansi lengi sem foreldrum er gefinn annar séns.

Re: Hann var kallaður

í Bækur fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Kerfið getur oft verið ótrúlega blint á svona. Ég var t.d. að tala við einn um daginn sem sagði að pabbi hans hefði lamið hann svo rosalega að eitt skiptið lenti hann á spítala með 8 bein brotin og þurfti að sauma 250 spor. Hann var þá 9 ára. Félagsráðgjafinn sem kom að tala við hann sagði að þetta hefði verið gott á hann, hann hefði átt þetta skilið og hún vonaði að pabbi hans gengi frá honum næst. Hann var aldrei tekinn af heimilinu, er 17 ára í dag og vegna fötlunar getur ekki unnið fulla...

Re: Rottweiler

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Bróðir minn átti Rottweiler blending sem er reyndar dáinn úr hárri elli en hann var mesta gæðablóð og gerði aldrei neitt. Alls konar hundar geta verið grimmir. Ég held að þessir séu ekkert verri en aðrir.

Re: glefsar

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Er eitthvað að systur þinni? Þú ættir að berja hana í hakk. Hins vegar ættirðu hundsins vegna að annað hvort flytja að heiman eða ef þú getur það ekki, þá láta hundinn frá þér. Enginn hundur ætti að þurfa að búa við svona pyntingar.

Re: vertical ostetomia

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er líka mjög misjafnt hvernig endajaxlataka fer í fólk. Þegar mínir voru teknir þá var ég étandi hvað sem var 2 tímum seinna, ekkert mál, en ég þekkti stelpu sem höfðu verið teknir endajaxlar úr árinu áður og hún gat ekki opnað munninn eða étið neitt nema fljótandi í 2 vikur á eftir. Það er líka sama með aðgerðir, fólk jafnar sig mismunandi hratt en þú verður bara að vona að þú sért heppin og þetta fari ekki illa í þig.

Re: Lenging skólaárs

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þegar ég var í skóla, þá geymdi maður bækurnar heima en tók þær með í skólann sem maður þurfti að nota þann daginn. Ég sé ekki af hverju þarf skáp.

Re: barnaskólar á selfossi?

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Yfirleitt er það nú þannig. Skv. símaskrá eru 2 skólar skráðir á Selfossi, <a href="http://www.skolatorg.is/kerfi/sandvikurskoli/skoli/“>Sandvíkurskóli</a> og <a href=”http://solvallaskoli.ismennt.is/">Sólvallaskóli</a> Ætli það sé ekki best fyrir þig að hringja bara og spyrja hvar mörkin á skólahverfunum liggja.

Re: Flugleiðir og samkeppninsskorturinn

í Ferðalög fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hún sagðist vera að leita að flugi þessa daga, 30/9, 1/10, 2/10. 1/10 er 1. okt. Nú veit ég ekki hvaða skóli byrjar ekki fyrr en 1. okt. en þetta eru alla vega þeir dagar sem hún nefndi.

Re: Gifting

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Færðu að vera með japanskt sverð líka? Ég þekki sænskan náunga sem giftist japanskri konu og þau höfðu tvöfalda athöfn. Fyrst giftust þau á japanskan hátt í kimono og tilheyrandi og svo brugðu þau sér frá og komu fram aftur í vestrænum brúðkaupsfötum. Tvöfaldar brúðkaupsmyndir og allt. Reyndar voru myndirnar sem þau sendu út frá japönsku athöfninni, alla vega sú sem þau sendu mér.

Re: Gifting

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég skal spila á greiðu :)

Re: Flugleiðir og samkeppninsskorturinn

í Ferðalög fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég fann þetta flug á flugleiðavefnum: 01 okt Icelandair FI 452 Keflavik Int'l (KEF), Reykjavík, Ísland 16:10 Heathrow (LHR), London, Bretland 20:10 Án viðkomu 752 3h00min Sparnaðar, takmarkað 08 okt Icelandair FI 453 Heathrow (LHR), London, Bretland 21:10 Keflavik Int'l (KEF), Reykjavík, Ísland 23:10 Án viðkomu 752 3h00min Sparnaðar, takmarkað Tegund fargjalds Fargjald Skattur ISK Umsamið 23900.00 + 4540.00 x 1 Fullorðinn = 28440.00 Heildarkostnaður = 28440.00

Re: gott frí

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hins vegar er menntaskólinn ekki lengur skylda þannig að ef þér finnst þetta ekki nógu góður díll, þá geturðu hætt og farið að vinna í Bónus hvenær sem er :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok