En þetta eru bara 2 einstaklingar sem ákveða. Það er ekkert meirihlutavald, ekkert oddaatkvæði, þ.e. ekki nema þú teljir fóstrið með og það hefur varla ákvörðunarrétt í þessu máli, annars væri því varla eytt. Sem sagt, annað hvort ræður konan eða karlinn. Fyrst þetta er þeirra líkami, þá finnst mér bara sjálfsagt að konurnar ráði. Viltu frekar að karlar ráði því alfarið og geti sent konu í fóstureyðingu gegn vilja sínum eða komið í veg fyrir að hún fari?