Núna hef ég mikinn áhuga á því að fara erlendis í svona eitt sumar til að starfa þar, öðlast smá starfsreynslu og vonandi eitthvað örlítið agn af sjálfstæði!

Er einhver staður þar sem maður þarf að skrá sig. Ég var búinn að heyra eitthvað um að Visa á Íslandi geti reddað manni starfi og íbúð erlendis, inni í því er frítt fæði og húsnæði og sirka 40.000 í mánaðarlaun, er eitthvað til í þessu eða þarf ég að leita einhvert annað eða einfaldlega redda mér þessu sjálfur?

Mig langar nefnilega mjög að fara til Danmerkur, Ástralíu, Bandaríkjanna eða Englands til að starfa þar í nokkra mánuði.

Er einhver hérna sem hefur reynslu að þessu og mælir kannski með einhverju ákveðnu landi, eða einhverjum starfsgeira til að starfa í svona erlendis. Svo væri allt í lagi að fá að vita hvaða fyrirtæki/stofnun reddar manni þessu!

Takk fyri
__________________________