Ég(fiskur) leyfi mér að eyða tíma í að lesa ársspána mína og hún er alls ekki svo slæm!!!!

Árið framundan sýnir þig skapandi, heillandi og framkvæmdasama/n. Hinsvegar ert þú sérstaklega minnt/ur á með komu vorsins að það er ekki á þínu færi að beita áhrifavaldi varðandi eitthvað mál sem hefur átt huga þinn lengi. Í uppvexti þínum beiðst þú án efa með óþreyju eftir að draumar þínir rættust en þú veist í hjarta þínu að þó þetta séu aðeins hugarórar þá kemst þú ansi nærri því að láta þínar innstu þrár lifna við þegar þú ert sannarlega tilbúin/n. Hættu stöðugt að skapa öðrum afslappað umhverfi því það dregur úr þér allan mátt. Nú er komið að þér að huga að eigin þörfum. Árið framundan færir þér mikilfengleg tækifæri ef þú aðeins leyfir þér að segja já án þess að hugsa þig tvisvar um. Stjarna þín þarfnast mikillar ástar og verndar en á sama tíma býrð þú augljóslega yfir sjaldséðum hæfileikum og sjálfstæði undir þykku lagi varnarleysis. Þú elskar á allan máta, platónskt, trúarlega, kynferðislega og andlega og fyllist krafti þegar þú ert fær um að veita öllum tilfinningum þínum útrás. Haustið sýnir viðskiptalegan ávinning þar sem þú birtist mjög öflug/ur í samskiptum. Þú ræðir sjaldan tilfinningalegar þarfir þínar sem er kostur því hér kemur fram að þú færð í hendurnar gullgæs og ættir fyrir alla muni ekki að leyfa henni að verpa öllum gulleggjunum í einu. Árið 2003 sýnir þig slíta þig lausa/n frá óheilnæmum hlutum í fortíð þinni þar sem nýr kafli hefst. Þú ættir að vera meðvitaðri um að allt sem nú er að gerast á þessari stundu er afleiðing af vali þínu úr fortíðinni. Gerðu þér grein fyrir vali þínu öllum stundum en hafðu hugfast að umtalaður kafli hefst ekki fyrr en þú byrjar að gera þér kleift að kanna mörk þín og ekki síður persónueinkenni. Láttu vanaviðbrögð þín ekki stjórna framhaldinu. Neptúnus og tólfta hús ráða yfir undirmeðvitund þinni. Þú birtist hér í mótsögn við sjálfa/n þig þar til þú gerir þér grein fyrir því hvert þú raunverulega stefnir. Reyndu að skilgreina hvers þú þarfnast og renndu stoðum undir jákvæða eiginleika í fari þínu strax í byrjun ársins. Hættu að slá hlutunum á frest og veldu þér eingöngu félaga sem hvetja þig til aðgerða en hlúa að þér um leið. Innra vald þitt er varanlegt en ævintýrið hefst ekki fyrr en þú uppgötvar þinn einstæða hæfileika og lærir að elska sjálfa/n þig.

http://www.leit.is/stjornuspa/

Rasthorn