Sælir/ar

Þar sem ég er tiltölulega nýr hér langar mig svolítið að vita hvernig bíla fólk á. Einnig væri gaman að vita hver uppáhalds bíllinn er.
Sjálfur er ég á camaro, Camarobrandarar vel þegnir. Allt í lagi bíll en auðvitað þarf maður að eyða talsverðum tíma oní húddi (en það er nú bara gaman). Helst vildi ég keyra um á Ferrari, það mætti þá vera 250 GTO eða 250 Testarossa (óraunhæft já, en hvað með það)

Saxi



Saxi