Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Helv**** sníkjudýr

í Sorp fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það var kona með síðu sem mér var bent á í september að safna fyrir kreditkortaskuldunum sínum. Ég tékkaði einmitt á henni aftur núna og sé að henni hefur tekist að safna uppí skuldina. Hún fékk $13,323 senda frá fólki eða um 1 milljón íslenskar. Síðan hennar er á http://www.savekaryn.com/

Re: Framboð Félags íslenskra þjóðernissinna

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég veit alla vega að ef þú færð tímabundið atvinnuleyfi í Bandaríkjunum eða Kanada þá er það oft til eins árs og bundið við ákveðna vinnu þannig að þetta er ekkert einsdæmi á Íslandi. Ég þekki mann sem var á svoleiðis leyfi í Bandaríkjunum og hann gat ekki fengið það framlengt eftir árið þó hann ætlaði að vera í sömu vinnunni. Ég þekki konu sem var á tímabundnu leyfi í Kanada og missti vinnuna vegna niðurskurðar og hún fékk 2 mánuði til að finna sér vinnu innan sömu starfsgreinar ella færi...

Re: Framboð Félags íslenskra þjóðernissinna

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er ekkert að því að gera ráðningarsamning til einhvers tíma. Ef einhver náungi á verksmiðju og vantar fólk en getur ekki borgað mjög há laun, þá borgar sig ekkert fyrir hann að hjálpa einhverjum útlendingum að koma hingað og finna íbúð ef þeir líta bara á hann sem stökkpall til að fá betri vinnu. Það er líka alltaf hættulegt að treysta á skynsemi fólks í þeim efnum að það muni ekki koma nema vera búið að fá vinnu fyrst. Minni bara á þessa 19 sígauna sem datt í hug einn daginn að mæta...

Re: Framboð Félags íslenskra þjóðernissinna

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hættan er sú að ef þetta væri frjálst þá kæmi flest þetta fólk til okkar vegna þess að við værum eina landið þar sem þetta væri frjálst. Alls staðar annars staðar þarf að sækja um leyfi og vegabréfsáritanir. Það er líka fullt af fólki sem býr í löndum þar sem er mikil fátækt og vill komast bara eitthvað í burtu, sama hvert. Það myndi líklega halda í vonina að það gæti haft það gott á Íslandi og eyða síðustu aurunum sínum í farmiðann. Líka, ef það ætti að takmarka og væri bara hleypt inn 100...

Re: Árna-dómur.

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hann fékk það nú kannski ekki alveg gefins en hann fékk styrk til að byggja það til að kanna hvernig bjálkahús stæðu sig á Íslandi. Hins vegar var þetta ekki fyrsta bjálkahúsið sem byggt var á Íslandi og ég frétti að Árni hefði verið eins og grár köttur þar í kring áður en hann byggði sitt. Þegar hann sótti svo um þennan styrk og fékk, spurði fólkið sem átti fyrsta húsið hvort það fengi ekki líka styrk en það stóð víst ekki til boða. Svo fékk hann náttúrulega slatta af efni í húsið sem...

Re: Framboð Félags íslenskra þjóðernissinna

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
fanndal: Þetta fólk á séns á að vinna sig upp. Það hefur bara ákveðinn reynslutíma hér á landi. Það byrjar á því að þurfa að taka vinnu sem enginn annar fæst í (skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis). Atvinnuleyfið er þá gefið út í eitt ár og til atvinnurekanda. Það má svo framlengja eftir árið ef allir eru ánægðir og má þá gefa út til eins eða tveggja ára. Þegar viðkomandi er svo búinn að vera 3 ár á landinu getur hann fengið búseturétt og ótímabundið atvinnuleyfi á eigin nafni og sótt um...

Re: Árna-dómur.

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef einhver nobody hefði gert þetta þá hefði hann líklega aldrei verið í þeirri aðstöðu að geta stolið svona miklu, það hefði aldrei verið svona mikið í fréttum, viðkomandi hefði ekki verið nafngreindur fyrr en búið væri að dæma og hann hefði mjög líklega fengið styttri dóm og slatta af honum skilorðsbundinn. Hins vegar þykir þetta alvarlegra vegna þess að þetta var maður í ábyrgðarstöðu sem þjóðin hafði treyst og kosið í embætti.

Re: Árna-dómur.

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ef ég man rétt fékk hann 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í undirrétti og hæsti réttur gæti svo annað hvort hækkað eða lækkað. Það var ekki Árni sem áfrýjaði heldur saksóknari því hann vildi fá lengri dóm.

Re: snjórinn veiiiiiiiiiiiiiiiiiiii

í Skóli fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Já, það er alveg rosalega gaman. Sérstaklega þegar þú einn daginn kastar í bíl hjá einhverjum sem bregður svo að hann keyrir beint inní krakkahópinn og straujar þig og alla vini þína :Þ

Re: Sæta kisulóran mín! :)

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hún er ábyggilega ekki þunglynd, bara kaldlynd. Líklega veit hún bara vel hverja henni líkar illa við. Það er engin ástæða til að lóga henni. Segðu bara fólki að halda sig frá henni. Kisan mín bítur líka en bara þegar hún er að leika sér og hún bítur ekki fast, bara í gamni.

Re: Valdi er kominn heim!!!!

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Gott að hann jafnaði sig. Sagði dýralæknirinn þér eitthvað um af hverju kettir fá þvagteppu? Ég er bara að spá í hvort það er eitthvað sem maður getur gert til að koma í veg fyrir það.

Re: Árna-dómur.

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Íslendingar eru nú svo miklir and-hetju dýrkendur að ég yrði ekkert hissa þó kallinn kæmist aftur á þing eftir að hann er búinn að afplána. Alla vega þarf ekkert að vorkenna honum því flokkurinn sér um sína og honum verður reddað einhverju feitu starfi þegar hann kemur úr steininum, samt kannski þar sem hann er með barnapíu til að passa að hann steli ekki neinu :)

Re: Árna-dómur.

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Miðað við það að hann hafi sýnt eindreginn brotavilja og svo reynt að hylma yfir glæpi sína í stað þess að vera samvinnuþýður og vinna með yfirvöldum að rannsókn málsins, þá sé ég enga ástæðu til að gefa honum einhvern afslátt.

Re: spori

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég átti hund sem var blanda af terrier og border collie og hann var með spora á framlöppum en ekki afturlöppum.

Re: Vond svefnstelling

í Hundar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Talaðu við dýralækni. Það má vera að hún geti fengið gigtarlyf eða eitthvað hægt að gera fyrir hana. Ef hún á ákveðið bæli, þá geturðu líka prófað að kaupa eggjabakkadýnu fyrir hana að liggja á. Ég held ekki að þær séu mjög dýrar og þú þarft náttúrulega bara smá bút.

Re: Barnaherbergið!

í Heimilið fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Málaðu bara 2 veggi bláa og hina í hennar lit eða ef þau eru í kojum geturðu skipt því þannig að efri og neðri helmingurinn eru í mismunandi litum.

Re: Síðasta ferðin

í Dulspeki fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég sá einhvern þátt um þessar 5 vélar sem fórust og það var talið að þær hefðu villst all illilega af leið og orðið bensínlausar. Þeir voru búnir að reikna út að þær hefðu hrapað í sjóinn nálægt ströndinni og fundu meira að segja flak á því svæði en gátu ekki staðfest að það væri af einni af þessum vélum. Þeir minntust ekkert á þennan flugbát.

Re: Aftaka kvenna að hætti Múslíma

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég veit ekki hvort sýruskvettur séu eitthvað frekar leyfilegar í hindú eða hafi eitthvað að gera með trúna en þær eru alla vega stundaðar á Indlandi. Ef kona hafnar manni sem líst vel á hana, þá er hann alveg til með að hella yfir hana sýru til enginn annar vilji hana. Það er líka mikil stéttaskipting og fólk má ekki giftast milli stétta, annars á það á hættu að verða hreinlega drepið. Ekkjubrennurnar eru vegna þess að þeir álíta að konan deyi með manninum og ef hún fylgir honum ekki á bálið...

Re: Framboð Félags íslenskra þjóðernissinna

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mér fannst ekki rétt að kæra FÍÞ náungann fyrir það sem hann sagði. Þeirra ummæli dæma sig algjörlega sjálf og betra að þeir fái að gera sig að fífli óáreittir frekar en að gera þá að einhverjum fórnarlömbum.

Re: Lausn á fátæktar vandanum! Og siðferðis fyrirlest

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
En peningurinn þarf að fara út úr landinu fyrst og fer því ekki í að byggja upp innlendan efnahag á meðan. Og hvað viltu svo láta gera við fólk sem getur ekki borgað þessar tryggingar? Gera það ófrjótt? Hvað ef það efnast seinna, þá getur það ekki eignast börn. Hvað ef fólk er búið að eignast börn en lendir í að fá erfiðan sjúkdóm eða lenda í slysi eða annað foreldrið deyr og það hættir að hafa efni á þessu? Á þá að taka af þeim börnin og láta þau til fólks sem getur borgað?

Re: pabbahelgar sem ég treysti ekki

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Það er ekkert sanngjarnt að hann fái öll frí. Hann ætti bara að fá helminginn. Ef foreldrar hans ætla að sjá um stelpuna, þá ættirðu að geta treyst þeim. Alla vega tókst þeim að koma honum á fullorðinsár slysalaust þannig að þau geta varla verið svo slæm. Það er alltaf leiðinlegt að fara í hart í svona málum. Þetta er nú einu sinni pabbi dóttur þinnar og það var þitt val að eignast með honum barn. Þó þú hafir svo komist að því seinna að hann væri ómögulegur þá er hann samt og verður alltaf...

Re: Innlit/Útlit er feik...

í Tilveran fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mamma horfir alltaf á innlit-útlit og má ekki missa af neinu. Hún tekur þá upp ef hún er ekki heima og jafnvel þó hún sé heima til að geta horft aftur ;) Hins vegar er ég alveg sammála þér en vildi samt bara benda á að það eru líkast til nokkrar sextugar kellingar á Íslandi sem fíla þennan þátt.

Re: Vangaveltur.

í Kettir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Nei nei, láttu bara nægja að rispa bílinn hans ca. einu sinni í mánuði :)

Re: Offita, misskilið vandamál

í Heilsa fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég er ekkert viss um að fólk hafi hreyft sig svo mikið meira hér í gamla daga. Börn hafa eflaust hreyft sig eitthvað meira enda engar leikjatölvur og lítið sjónvarp þó sum þeirra hafi líklega líka setið inni og lesið. Hins vegar sé ég ekki fyrir mér að fullorðna fólkið hafi verið mikið duglegra. Samt hefur líklega verið algengara þá að fólk ynni líkamlega erfiða vinnu þannig að það hefur kannski hjálpað.

Re: FRANSKUR ! JÁ? En hvað þýðir ÞAÐ?

í Deiglan fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Í sambandi við FÍÞ þá lítur stefnuskráin þeirra ekkert svo rasistalega út en ef þú hefur séð eða heyrt viðtöl við þá í fjölmiðlum þá kemur það greinilega í ljós að þeir eru ekkert annað en rasistar. Annars finnst mér ekkert að okkar innflytjendalöggjöf eins og hún er í dag. Það er ekki hlaupið að því fyrir útlendinga að flytja hingað. Þeir þurfa að fá vinnu áður en þeir koma til landsins og yfirleitt er það illa launuð verksmiðjuvinna, fiskur eða elliheimili. Atvinnuleyfið er gefið til eins...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok