Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Stundatöflur og eldri nemendur á sama stigi!

í Skóli fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Stundatöflur í framhaldsskólum eru svona sundraðar vegna þess að það er verið að reyna að klæðskerasauma fyrir hvern og einn. Ef þeir ætluðu að binda þær alveg niður, þá ertu eiginlega komin með bekkjakerfi og þá eru krakkar sem falla og lenda áfanga á eftir í einu fagi komnir í stór vandræði. Hins vegar væri kannski hægt að breyta einhverju með því að taka upp stokkakerfi. Þetta var gert í minni deild þegar ég var í HÍ og þá virkar það þannig að það geta verið ákveðið margir stokkar og öll...

Re: Slabb

í Sorp fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef skórnir þínir blotna áttu að troða þá fulla af krumpuðum dagblöðum og setja þá á ofninn. Til þess að koma í veg fyrir að blotna í lappirnir er best að ganga í góðum leðurskóm og bursta þá einu sinni í viku eða nota leðurfeiti. Þú getur náttúrulega verið í goretex skóm en mín reynsla að það er ekki vatnshelt sérlega lengi.

Re: skyldleiki

í Heimilið fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Líklega alveg jafn algengt líka að einhverjir prestar eða stórbændur væru að taka framhjá og eignuðust krakka með vinnustelpunni sem var svo feðraður til vinnumannsins. Annars held ég ekki að glæpum myndi mikið fækka þó það yrði byrjað að skera putta af fólki fyrir að gera eitthvað. Það ætlar sér náttúrulega enginn að nást + að það er mjög erfitt að sanna nauðganir.

Re: HJÁLPPPPPPPPPP!!!!!!!!

í Heimilið fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Stendur það ekki á tækinu? Annars er líklega bara best fyrir ykkur að taka upp símann og hringja í gulu línuna 1444. Þeir eiga að vita svona þar.

Re: Megrun,.

í Heilsa fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Borða 6 sinnum á dag, lítið í einu, halda fitu og sykri í lágmarki. Hins vegar hafa einn nammidag á viku þar sem allt má :) Þetta virkar líka vel fyrir fólk sem er í megrun vegna þess að það platar líkamann. Ef fólk sker bara niður hitaeiningarnar og leyfir sér aldrei neitt, þá venst líkaminn ástandinu og fer að brenna minna.

Re: Klórandi kvikindi

í Kettir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég leyfi bara minni kisu að klóra í sófann því ég á bara drasl sófa hvort sem er :) Hins vegar býst ég við að fyrir utan ráðin um kattafælusprey og appelsínubörk gætirðu líka prófað að sprauta á hana með vatnsbyssu þegar þú sérð hana klóra í sófann.

Re: Hve margar kattategundir!!!

í Kettir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Heilmargar tegundir. Kíktu á <a href="http://www.i-love-cats.com/breeds.htm">http://www.i-love-cats.com/breeds.htm</a

Re: Íslandssími - Adsl Reikningur

í Netið fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Fáðu þér forrit sem tekur saman hvað þú downloadar miklu og tékkaðu það saman við reikninginn. Meðan ég var á innhringi, þá gat ég alltaf séð þetta með því að fara með músina yfir tengimerkið og ég var oft að downloada 5MB á 1-2 tímum bara með að surfa og sækja póst þó ég væri ekki að sækja nein forrit eða skrár.

Re: Lyklaborð

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef þú ert að meina að loka til að ýtist ekki óvart á takkana þá er það hægt á held ég flestum símum. Ég á Motorola og þar á að ýta á menu og svo * strax á eftir. Ef það virkar á þínum, gott mál, ef ekki, þá er bara að fara að lesa leiðbeiningarnar :)

Re: Takkarnir...

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ætli það sé ekki bara kominn tími á hann *snökt* Þú getur prófað að láta hann liggja og þorna í nokkra daga og sjá hvort hann lagast. Getur líka prófað að láta hann í viðgerð en líklega borgar sig ekki að gera við hann nema þetta sé mjög dýr sími.

Re: Whitney Houston og pabbi hennar

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það eru bæði til börn sem eru mjög leiðinleg við foreldra sína og það er líka til alveg jafn mikið af foreldrum sem eru mjög leiðinlegir við börnin sín. Ég þekki fólk sem hefur algjörlega slitið sambandi við foreldra sína vegna svoleiðis og mér finnst það bara rétt hjá þeim. Mér finnst fólk ekki hafa neinar skyldur við fjölskyldumeðlimi sem koma illa fram við það. Hvort það hafi síðan verið Whitney sem var tík eða pabbi hennar skal ósagt látið og líklega enginn sem veit það með vissu nema þau tvö.

Re: Er Magnús að fara með satt mál?

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Maðurinn er náttúrulega bara ruglaður og ætti að leita til sálfræðings. Ég hef ekki meira um það að segja :)

Re: engin friðhelgi kattarins

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Fólk þarf að vernda dýrin sín fyrir börnunum sínum og öfugt. Óvitar eru nákvæmlega það, óvitar.

Re: Tilveran

í Tilveran fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég var að endurnýta þangað til kona sem ég þekki fræddi mig á því að ef öll heimili endurnýttu myndi sorp aðeins minnka um 2%. Langmesta ruslið kemur nefnilega frá fyrirtækjum þannig að það eru þau sem þurfa að endurnýta. Eftir það hefur mér ekki fundist ástæða til að leggja vinnu í þetta.

Re: Gemsar handa KRÖKKUM?

í Farsímar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Alveg greinilegt að það eru mjög skiptar skoðanir um hvað krakkar þurfa að vera gamlir til að fá GSM. Sumir segja 10, aðrir 12, aðrir 14. Þegar gemsarnir komu fyrst, þá hafa líklega flestir sagt að krakkar hefðu ekkert að gera við gemsa og jafnvel að flestir fullorðnir hefðu ekkert að gera við gemsa heldur. Viðhorfið breytist eftir því sem tæknin er búin að vera lengur á markaðnum og fólk er byrjað að líta á þetta sem sjálfsögð þægindi. Mér finnst bara sjálfsagt að krakkar fái síma ef...

Re: Ég þarf hjálp!

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Talaðu við hundaþjálfara og fáðu ráðleggingar og ef það virkar ekki, fáðu þá þjálfarann til að koma og kenna þér hvernig þú átt að taka á þessu. Það eru svona þættir á Animal Planet þar sem hundaþjálfari kemur heim til fólks og tekur á málum og það er alveg ótrúlegt að sjá hvað er hægt að gera.

Re: Andsk. markpóstur!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það hefur líklega verið hringt í mig nokkuð oftar en þrisvar en líklega aðallega ef maður er heima um kvöldmatarleytið þegar þau eru að hringja í hús. Samt var mjög lítið verið að hringja í mig miðað við aðra sem ég þekki þannig að líklega eru flestir að taka mið af þessum bannlista.

Re: Andsk. markpóstur!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Sum símasölufyrirtæki nota símaskrána til að hringja eftir án þess að tékka hana saman við bannlista Hagstofunnar og það er vissulega lögbrot. Ég býst við að ef það er nógu oft hótað að kæra þá, þá hætti þeir því.

Re: Möguleikar

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Kanada er líka með svipað kerfi. Það er yfirstjórn í Ottawa sem eyðir öllum peningunum okkar í eitthvað gáfulegt og svo eru fylki sem eru þó nokkuð sjálfstæð, hafa t.d. hvert sín skattalög, heilbrigðiskerfi o.s.frv.

Re: Andsk. markpóstur!

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Hringdu bara uppá Hagstofu. Mig minnir að ég hafi ekki þurft að fara þangað til að láta taka mig af þessum lista. Ég gerði þetta einhvern tímann þegar ég var unglingur og hef ekki fengið einn einasta ruslpóst síðan nema náttúrulega draslið sem er ekki á nafni. Þú getur líka talað við persónuvernd um hvort þetta sé löglegt, http://www.personuvernd.is/

Re: Nordjobb:)

í Ferðalög fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég fór tvisvar og fannst bara mjög gaman, annars hefði ég ekki farið aftur :) Er eitthvað sérstakt sem þig langar að vita?

Re: Dalsmynni?

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þegar ég kom þarna voru þau með a.m.k. 8 - 10 fugla. Tveir stórir voru á hæðinni og hinir voru í mjög illa lyktandi herbergi niðrí kjallara. Ég held að þau hafi ábyggilega verið að rækta þá. Þetta var fyrir ca. 2-3 árum.

Re: Andfúll hundur

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Prófaðu að gefa honum bara þurrmat og tékkaðu hvort þetta lagast. Gæti líka verið að hann þyrfti til dýra í tannhreinsun. Kisa mín var andfúl og hún fór í tannhreinsun. Þeir drógu úr henni skemmda tönn og hún er ekki andfúl lengur.

Re: hvað er hægt að gera??

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þú getur kvartað í heilbrigðiseftirlitið. Hundarnir mega ekki vera lausir og hún á að taka upp skítinn eftir þá. Ef þú átt íbúðina, þá er líka spurning hvort hún megi yfirhöfuð vera með hundinn í sameiginlegum garði. Spurðu heilbrigðiseftirlitið hvaða rétt þú hefur.

Re: slepptu við íþróttir í framhaldsskóla:)

í Skóli fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég var alltaf með vottorð en þegar þeir breyttu leikfiminni og fóru að hafa bóklegt var farið að ætlast til að þeir sem væru með vottorð mættu líka. Ég náttúrulega nennti því ekkert og þegar ég var búinn með allt nema leikfimina fór ég til skólastjóra og spurði hvort ég fengi ekki bara að útskrifast og hann sagði að það væri sko bara ekki málið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok