Þegar þú keyrir vesturlandið skaltu keyra fyrir Hvalfjörðinn ef það er gott veður því hann er svo helv. fallegur. Þegar þú keyrir suðurlandið skaltu taka rúnt á Þingvelli, Gullfoss og Geysi, Kerið og svo rúlla á Seljalandsfoss, þaðan í Þórsmörk ef þú vilt, kannski gista þar, en á eftir Seljalandsfossi kemur Skógafoss og þar er safn ef hún fílar svoleiðis, svo kemur Sólheimajökull þar sem þú getur keyrt að jöklinum á venjulegum bíl, að vísu smá vondur vegur, svo er næst Dyrhólaey þar sem er...