Mér finnst svo fáránlegt að svona ungir krakkar séu að fá sér gemsa á milli 8 upp í svona 10. Þetta er sannkallaður hneyksli. Mér finnst svona mátulegt að fá sér gemsa svona 14 ára, en annars er þetta tæki bara fyrir fullorðna. Litla frænkan mín er 8 ára og hún fékk gemsa og fær 5000 króna inneign á mánuði. Eftir að hún fékk gemsa hafa allar vinkonur hennar fengið gemsa líka og þær eru bara með gemsann allan daginn. Mér finnst að þið ættuð að hugsa málið og passa það að gera ekki það sama, hugsa um að gera ekki það sama við börnin ykkar… ég meina það mér finnst þetta bara fáránlegt ef að ég þekkti einhvern sem gerir svona. En reyndar þekki ég einhvern sem gerir svona og meira\'ð segja marga. Þetta er Fáranlegt