Kennarinn minn var að segja frá því hvernig 4ra ára dóttir sín hugsaði um köttinn(sem er bara eðlileg hegðun barna): Hefur hann auðvitað í dúkkuvagni og klæðir hann(hvaða stelpa í dúkkuleik gerir það ekki?) svo þegar hann á að fá að borða, treður hún trýninu á honum ofan til dolluna til að mata hann.

Ég hef heyrt af barni sem lauk við að horfa á Tomma og Jenna, þar sem Jenni tók Tomma upp á skottinu og sveiflaði honum í hringi…eftir það tekur þetta barn í skottið á kettinum sínum og snýr honum á skottinu, sem slitnar af en það var hægt að bjarga lífi aumingja kisu.