Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Börn með fæðuofnæmi eða annað ofnæmi

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fólk getur orðið veikt af að borða tiltekinn mat, fengið útbrot, jafnvel öndunarerfiðleika. Bróðir minn er með mjólkurofnæmi og fær útbrot í andlitið ef hann passar sig ekki. Ég þekki líka konu sem lenti í að greinast með ofnæmi fyrir ákveðnu litarefni sem er notað í mat og því miður er víst ekki skylda að tilgreina á innihaldslýsingum þannig að hún lenti í að þurfa að fara að búa til allt frá grunni til að vera viss um að þetta væri ekki í og það er víst besta lausnin fyrir fólk sem er með...

Re: Opið bréf Michael Moore

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er alveg rétt. Fólk fer í herinn til að ná sér í fría menntun eða til að undirbúa sig fyrir eitthvað annað. T.d. veit ég um einn sem ætlaði að verða lífvörður og fór í herinn til að stytta námið fyrir sig. Ábyggilega var ekkert inni í dæminu hjá honum að láta senda sig til Írak. Hins vegar má þetta fólk vita að þegar það gengur í herinn, þá hættir það á að verða sent eitthvað ef stjórnvöldum dettur í hug. Það er ekki bara að fá fría menntun fyrir ekki neitt.

Re: Bekkjakerfi/Áfangakerf? Hvaða skóli er

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég hef heyrt þetta líka og þó gróusögur séu ekki alltaf sannar, þá er nú oft einhver fótur fyrir þeim. Mér finnst ég alla vega hafa verið að heyra oft um krakka sem voru búnir að fara úr skóla í skóla og alltaf fallið þangað til þeir komu í FÁ. Mamma eins frænda míns skoðaði líka FÁ þegar hann var í 10. bekk og talaði við krakkana og henni fannst ekki vera gerðar nógu miklar kröfur þar. Hins vegar ef þú ert að spá í einhverju ákveðnu námi eftir stúdent, þá gætirðu talað við einhvern í HÍ og...

Re: Au pair??

í Ferðalög fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég þekki nokkrar stelpur og meira að segja 1 strák sem hafa farið sem au-pair og mér finnst eiginlega of algengt að það sé eitthvað vesen. Sem au-pair, þá verður þú náttúrulega að taka tillit til þess að þú kemur til með að búa inni á heimili fólksins og getur ekki bara gert allt sem þér dettur í hug og hins vegar að það eru þau sem eiga börnin og þú verður að ala þau upp eins og fólkið vill en ekki eins og þér finnst sniðugast. Ef þú hefur þetta í huga og lendir hjá sæmilegu fólki ættirðu...

Re: Á að stytta skólagöngu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Miðað við okkar skólakerfi þá hentar bara frekar illa að fara að sérhæfa síðasta árið í stúdent. Hjá þeim er 1. ár í college oft nokkuð almennt og meiri sérhæfing kemur árið eftir.

Re: Hvar er síminn minn?

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Er það ólöglegt á Íslandi? Mér finnst að það ætti að vera ólöglegt en ég veit ekki hvort þeir hafa nokkuð komið sér að því ennþá að setja það í lög.

Re: Á að stytta skólagöngu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það munar nú ekki svo miklu. Krakkar í Bandaríkjunum mega oft ekki byrja í skóla fyrr en þeir eru orðnir fullra 5 ára, þeir sem eru nýorðnir 5 að hausti er oft haldið eftir í heilt ár til að þeir geti verið elstir og stærstir í bekknum. Þá fara þeir í kindergarten og næsta ár eftir það í 1. bekk þannig að krakkarnir í 1. bekk í Bandaríkjunum eru að meðaltali hálfu ári eldri en krakkarnir í 1. bekk á Íslandi. Svo klára þeir high school eftir 12. bekk og en eiga þá í rauninni eitt ár eftir...

Re: hvernig......

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Auðvitað með kveikjara :)

Re: Skattamál

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fjármagnseigendur eru ekkert allir moldríkir. Það gæti t.d. verið fólk sem hefur nurlað sér saman einhverri fjárhæð til elliáranna og lifir á vöxtunum eða fólk sem hefur lent í slysi og fengið eingreiðslu sem á að duga þeim til að sjá fyrir sér. Ef fjármagnstekjuskattar væru hækkaðir, þá er líka bara verið að hætta á það að fólk taki peninginn út úr landinu og ávaxti hann einhvers staðar annars staðar. Það var t.d. 40% skattur af húsaleigu hér í eina tíð og afleiðingin af því var að flestar...

Re: Á að stytta skólagöngu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hvernig sérhæfingu myndir þú vilja sjá? Nú er líka hægt að fara í fjölbraut og allar mögulegar brautir þar og bæta samt stúdent við.

Re: augnaðgerð

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég er með ekta gler í mínum gleraugun þannig að ég pússa þau alltaf með bolnum mínum eða skyrtunni en ef þú ert með plast, þá er nú minnsta málið að þvo þau bara með vatni og handsápu um leið og þú þværð þér um hendurnar.

Re: Geðsjúklingar vilja Jón Gnarr í fangelsi

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, það eru heil 2 nöfn á “undirskriftalistanum” sem styðja þetta framtak :) Hins vegar 3 sem styðja Jón Gnarr. Það er kannski smekklaust að grínast með barnaklám en mér finnst samt ekki að það ætti að vera bannað.

Re: augnaðgerð

í Heilsa fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég held nú að þú verðir að láta augun gróa áður en þú lætur laga sjónina. Ég þekki alla vega 2 sem hafa farið og verið mjög ánægðir en þetta er dýrt og árangur ekki tryggður. Þú gætir endað með að vera samt með gleraugu, bara veikari. Ég þekki einn sem var með held ég +7 eða eitthvað og hann endaði held ég með +1 sem er náttúrulega ekkert slæmt. Ég spáði smá í þessu á tímabili en komst að þeirri niðurstöðu að mér finnst bara allt í lagi að vera með gleraugu eða alla vega ekki það leiðinlegt...

Re: Á að stytta skólagöngu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það væri fínt að stytta um eitt ár einhvers staðar í kerfinu. Þá værum við á sama róli og nágrannalöndin okkar. Hins vegar finnst mér sérhæfing alveg nógu mikil eins og er. Það er t.d. hægt að fara í iðnnám strax eftir 10. bekk.

Re: Í eitt skipti fyrir öll, ekki stríð vegna olíu

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Írakar hafa vissulega gefið SÞ langt nef í lengri tíma en Ísraelar hafa gert það áratugum saman án þess að neitt sé gert við þá. Þetta stríð snýst um það að Bandaríkjamenn vilja losa sig við leiðtoga sem er þeim ekki þóknanlegur og setja í staðinn annan sem gerir það sem þeir segja. Það segir mér enginn að þeim sé ekki sama hvað verður um almenna borgara í Írak. Það er ekki ástæða þessa stríðs né heldur eitthvað ímyndað vopnasafn Saddans sem átti nú líka að vera til staðar fyrir 12 árum en...

Re: Hvað er að!!!!!!

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þú getur líka hugsað til einhvers ættingja sem er dáinn og ekki genginn aftur og beðið hann að hjálpa þessari manneskju. Það er aldrei að vita nema það hafi einhver áhrif. Alla vega kostar ekkert að prófa. Þú þarft ekkert að slökkva ljósin þó þú kveikir á kerti. Þú getur líka bara sleppt kertinu og beðið bara fyrir manneskjunni jafnvel þegar þú ert ekki einu sinni heima hjá þér.

Re: Laun

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef þú ert ekki viss, þá geturðu spurt stéttarfélagið en miðað við fulla vinnu sem er 173,33 tímar á mánuði, þá kemur 600 á tímann út eins og 103.998 á mánuði sem er vel yfir lágmarkinu. T.d. er taxti fyrir fiskvinnslufólk 512 kr. á tímann. Þar sem þú ert líka 17 ára þá mega þeir borga þér 5% lægra en þeim sem eru 18. Það er náttúrulega rétt að þetta er ekki mikið en alla vega ertu vonandi ekki einstætt foreldri með 3 krakka eða eitthvað á framfæri :)

Re: Tennur..

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég hef heyrt að það væri fyrir veikindum en mig hefur stundum dreymt þetta og ekkert gerst þannig að líklega er það bara fyrir því að maður sé hræddur um að tennurnar manns losni og detti úr :)

Re: Hvað er að!!!!!!

í Dulspeki fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef þú heldur að það sé eitthvað í húsinu hjá þér þá skaltu prófa að kveikja á kerti og hugsa til andans sem er í húsinu og biðja fyrir honum að hann fái frið og færist yfir í næsta líf. Jafnvel þó ég sé ekki sannfærður um að draugar séu til, þá veit ég af eigin reynslu að þetta þrælhjálpar við myrkfælni vegna þess að þér finnst þú þá alla vega vera að gera eitthvað í málunum.

Re: Til Elías Davíðssonar

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, þykist ætla í herinn. Ég hef varla heyrt þá betri :)

Re: Rennur hægt í klósettkassann

í Heimilið fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Uhh, hefurðu tékkað hvort einhver hafi nokkuð óvart skrúfað hálfvegis fyrir kranann? :) Það á bæði að vera krani á rörinu sem liggur í klósettkassann og líka einhvers staðar þar sem vatnið kemur inní húsið þó það geti hugsanlega verið smá mál að finna rétta kranann.

Re: Laun

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það fer eftir stéttarfélagi. Á vef Eflingar er sagt að lágmarkslaun fyrir starfsmann sem er orðinn 18 ára og hefur starfað hjá sama fyrirtæki í 4 mánuði eða lengur séu 91 þús á mánuði fyrir fulla vinnu. Hjá VR er það 93 þús.

Re: Til Elías Davíðssonar

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ef einhver á kjarnavopn, þá ættu allir að mega það. Það tryggir bara að þjóðir séu ekki að ráðast á aðrar þjóðir að ástæðulausu. Og hvað þykist þú svo ætla að ganga í Bandaríska herinn? Er ekki í lagi með þig drengur? :)

Re: Frjáls mæting í Framhaldsskólum

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það getur líka vel verið að þessir skólar hafi tekið sig á með undirbúninginn síðan ég var í HÍ því það eru nokkur ár síðan. Það þarf oft ekki nema einn góðan og áhugasaman kennara til að snúa svoleiðis við. Þess vegna finnst mér mjög þarft að koma með samræmd stúdentspróf, til þess að allir geti séð hvort skólarnir séu að standa sig jafnvel. Það sem ég er að læra núna, ja, mér var farið að leiðast það sem ég var að vinna við (tölvur) og ákvað því að breyta alveg um og er núna að læra...

Re: Ofnæmi

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Þú getur líka prófað að fá þér air purifier. Þetta er svona dæmi sem sogar loftið í herberginu í gegnum síu og á að fjarlægja alla ofnæmisvalda. Ég er með svona og mér finnst það hjálpa helling, að vísu hefur hann hátt en ég slekk bara á honum á nóttunni. Þú getur séð þá á <a href="http://www.bionaire.com/">http://www.bionaire.com/</a> Þú getur líka prófað að heimta betri ryksugu. Foreldrar mínir fengu sér eina af þessum dýru sem sogar rykið í gegnum vatn þannig að það fer ekki aftur útí...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok