Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: strætó

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég sá í einhverjum fréttaþætti viðtal við konu í BNA sem hafði verið látin á mjög sterk sýklalyf og fékk af því slæmar viðvarandi aukaverkanir, t.d. eyðilagðist hjá henni jafnvægisskynið og eitthvað fleira. Líkum var að því leitt að hún hefði alls ekki þurft svona sterkt lyf, enda hafði annað ekki verið reynt á undan, heldur hefði læknirinn ávísað þessu vegna þess að hann var að græða á því. Það eru ýmsir maðkar í mysunni í heilbrigðisþjónustunni, líklega verst í BNA. T.d. hefur heyrst að...

Re: Nám

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fer líklega bara eftir hvaða skóla. Af hverju hringir þú ekki bara á skrifstofu eða námsráðgjafa þess skóla sem þú hefur áhuga á að skipta í?

Re: strætó

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, þar sem allir geta komist til læknis án þess að hafa krónu í vasanum, þar sem læknirinn getur sent þig í grilljón rannsóknir án þess að hafa áhyggjur af að þú getir ekki borgað, þar sem lyf eru reyndar ekki niðurgreidd en lyfjaverð takmarkað þannig að t.d. lyf sem ég þarf að taka reglulega kostar hér helminginn af því sem það kostaði mig á Íslandi eftir niðurgreiðslu. Hins vegar hefur það sína galla. Kerfin hjá öllum fylkjum eru meira og minna á hausnum. Fylkið mitt hefur gripið til þess...

Re: Buhu

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Gerðu húsverk á fullu og farðu út að labba þrisvar á dag í korter í einu í öllum veðrum. Þá ertu búin að sýna það að þú getir hugsað um hund. Ég myndi samt ekki láta þig hafa hund ef ég væri pabbi þinn nema mig langaði líka í hund. Jafnvel þó þú hugsir 100% um hann, þá þarf hann samt að búa með hundinum, geltinu, hárunum, rispunum í parketinu o.s.frv. Líka að þurfa að passa hundinn þegar þér dettur í hug að skreppa í útilegu með félögunum eða út í lönd. Og hver á að borga hundaleyfisgjaldið...

Re: strætó

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Kanadamenn eru líka með heilbrigðiskerfi, annað en frændur þeirra fyrir sunnan :)

Re: strætó

í Fjármál og viðskipti fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég greiði ekki útsvar þar sem ég bý í Kanada en miðað við allt sem sveitarfélögin þurfa að borga, þá finnst mér alveg eðlilegt að þau vilji takmarka þann pening sem þau tapa á strætó. Ég hef hins vegar ekki yfir neinu að kvarta. Fínn strætó í Kanada :)

Re: Him margrómuðu flugskeyti.................

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég sé ekki hvaða hag þeir ættu að hafa af því að sprengja upp rútur fullar af skólabörnum. Einnig má benda á það að mest af mannfalli bandamanna er vegna “friendly fire” og fyrst þeir eru svona duglegir að skjóta hvern annan óvart, þá er alveg eins líklegt að þeir skjóti óbreytta borgara óvart.

Re: Á að stytta skólagöngu?

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég hef aldrei verið í amerískum high school en ég þekkti skiptinema sem sagði að það væri frekar myglað, frekar fáar námsgreinar og stundataflan alltaf eins. Annars þá er ekkert bara hægt að droppa síðasta árinu af stúdentinum án þess að vinna það upp einhvers staðar. Það þarf að herða á grunnskólanum og herða á menntó til að ná endum saman. Háskólinn kvartar frekar yfir að nemendur úr menntó séu illa undirbúnir heldur en hitt.

Re: Hringinn í Kring...

í Ferðalög fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fyndið :) Þegar ég var lítill þá fór ég með pabba og mömmu í Landmannalaugar á gömlum amerískum dreka, frekar lágum. Þau fóru einmitt einhverja vitlausa leið yfir einhvern sandveg þar sem voru smá pollar hér og þar. Samt mættum við útlendingum á risa jeppa sem voru að koma til baka og bönduðu höndunum og sögðu að þetta væri ófær leið en við fórum samt. Svo sáum við útlendingana seinna um kvöldin og þá hafa þeir farið hina leiðina. Annars þá átti ég KA og alveg furðulegt hvað þessi litla...

Re: Skrítið

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það heitir ekki “grund skóli” heldur grunnskóli. Grunnskóli er dregið af grunnur. Það er að segja grunnurinn undir meiri menntun.

Re: Matt Damon

í Fræga fólkið fyrir 23 árum, 2 mánuðum
“metabolism” er efnaskipti. Ef þú hefur séð Courage under fire, þá veistu að hann leikur heróínfíkil og hefur þurft að létta sig niður í ekki neitt fyrir þann hluta af myndinni.

Re: Tilbreyting?

í Kettir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fer ábyggilega bara eftir persónuleika kattarins. Ég tók að mér flækingskött og hef hana sem innikött og hún unir sér bara vel. Ég hef hins vegar heyrt að það sé auðveldara með flækinga því þeir vita líka hvernig það er að komast hvergi inn þegar er kalt og eru bara þakklátir fyrir að eiga heima einhvers staðar.

Re: helv... sjónvarps fjarstýringar

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Já, það er langbest að líma hana við hendina :P

Re: Týndir hundar..!

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ef þetta var bara einhver hvolpur sem einhver fann úti, hvernig er þá vitað að hann sé hreinræktaður? Ef þau fundu út að hann væri hreinræktaður og hvað hann heitir, þá hljóta þau líka að hafa fundið hver átti hann og hvort hann henti honum út eða hvort hann týndist bara og þá líka skilað honum aftur.

Re: Sjónvarps áhorf!

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það er ekki alveg svona auðvelt að stjórna krökkum nema þínir séu eitthvað extra spes. Yfirleitt gera þau bara það sem þau vilja svo lengi sem þú sérð ekki til og svo framarlega sem þau eiga vini, þá hanga þau bara inni hjá þeim og glápa á sjónvarp og leika sér í tölvu. Þú verður þá annað hvort að búa mjög afskekkt þar sem er ekkert annað fólk eða fara alltaf sjálfur út að leika með þeim. Frændi minn á 2 stráka sem eiga PS2 og það er alltaf hópur af krökkum inni hjá þeim að spila og þau...

Re: MMS

í Farsímar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það sem ég þekki hér úr Vesturheimi er að fólk er alls ekki eins tækni- og símaglatt eins og Íslendingar. Frekar fáir eiga farsíma og fólk notar mjög lítið SMS. Margir svara jafnvel ekki í símann heldur láta talhólfið um það og þá er alveg jafn gott að vera bara með venjulegan síma og símsvara eða talhólf fyrir hann, enda margir sem láta sér það nægja. Ég kíkti á þau símafyrirtæki sem mér standa til boða og þau virtust ekki vera að bjóða upp á MMS. Reyndar var eitt sem seldi síma sem bauð...

Re: Sjónvarps áhorf!

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég fatta ekki þessa grein. Hvað er þetta “sjónvarp”?

Re: nauðganir

í Tilveran fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fífl geturðu verið. Nauðganir hafa ekkert að gera með það hvort manninum finnst konan sexý eða ekki. Það er bara til að niðurlægja hana og sýna að hann hafi valdið yfir henni og hennar þjóð. Það er mjög algengt að hermenn nauðgi konum þar sem þeir eru, jafnvel þó það séu gamlar kellingar eða barnungar stelpur.

Re: Orrustan um Bagdat (getspá)

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Og samt eru þeir skotnir af eigin mönnum þrátt fyrir allar merkingar. Ég var að sjá það í imbanum um daginn að einhver sveit villtist frá hinum og þeir heyra það í talstöðinni að það er verið að lýsa þeim sem hugsanlegri óvinasveit þar sem þeir voru annars staðar en þeir áttu að vera og þeir segja “ekki skjóta, þið eruð að lýsa okkur” en samt var skotið á þá.

Re: Fiskar, I need help!

í Fiskar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þetta eru líklega gullfiskar. Ég hef átt fiska en mínir voru alltaf að drepast þannig að ég ætti líklega ekki að ráðleggja þér neitt. Spurðu bara í dýrabúðinni :)

Re: Hver er munurinn?

í Skóli fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Í bekkjarkerfi ertu alltaf með sama bekknum í tímum en ef þú ert með meðaleinkunn undir ákveðnum mörkum eða fellur í fleiri en ákveðið mörgum fögum, þá ertu fallin á árinu og þarft að sitja sama árið aftur með ári yngri krökkum. Í áfangakerfi stjórnar þú þínum námshraða og getur tekið marga eða fáa áfanga á önn. Þú ert þá ekki alltaf með sama bekknum í tímum og ef þú fellur í einhverju fagi, þá geturðu bara tekið það aftur á næstu önn. Annars þá eru 2 nýlega greinar hérna sem fjalla um...

Re: Týndir hundar..!

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Líklega ekki hreinræktaður séffer, ekki nema einhverjir dópistar hafi átt hann. Það voru leigjendur hjá foreldrum mínum sem voru að selja landa og hass, áttu nógan pening og voru alltaf útúrrugluð. Þau fengu sér 2 hvolpa og þeir voru alltaf meira og minna týndir hjá þeim.

Re: Minni

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég hef heyrt um einhvern sem var í sveit þar sem var hvolpur og kom í heimsókn mörgum árum seinna þegar hundurinn var orðinn gamall og hundurinn þekkti hann aftur.

Re: Sumarbústaðir og hundar???

í Ferðalög fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mér finnst að það ætti að leyfa suma bústaði fyrir dýr og aðra ekki. Þá gæti fólk sem er með mjög slæmt ofnæmi eða á þannig börn fengið bústað og vitað fyrir víst að það fær ekki asmakast vegna þess að fólkið vikuna á undan var með kött og eins geta dýraeigendur fengið bústaði þar sem þeir geta verið með dýrin með sér.

Re: Au pair??

í Ferðalög fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ein skólasystir mín hafði lent í því að konan sem hún vann hjá tók vegabréfið hennar svo hún gæti ekki farið og svo átti hún bara að þrífa allt og sjá um allan þvott auk þess að passa barnið. Hún átti ekki að fá að fara neitt á kvöldin og var því þarna í hálfgerðu stofufangelsi. Þegar konan loks sló hana fyrir að strauja eitthvað ekki nógu vel, þá loks tókst henni að strjúka úr vistinni. Ein frænka mín var í Frakklandi og var held ég hjá 3 fjölskyldum á einu ári. Ein hjónin, hún mátti ekki...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok