Skotið á kött ! Þetta var frétt í DV þann 8. maí síðastliðinn:

====================================== =============================
Skotið var á kisuna Freyju, eins árs kettlingafulla læðu, rétt fyrir utan heimili hennar í Múlasíðu á Akureyri síðdegis á laugardag. Að sögn Elfu Ágústsdóttur, dýralæknis á Dýraspítalanum í Lögmannshlíð, hafði eigandi kattarins samband síðla á laugardag og tjáði henni að kisunni blæddi. Var talið að læðan myndi missa kettlingana og ákveðið að láta náttúruna hafa sinn gang – enda ekki víst að nauðsynlegt væri að taka læðuna úr sambandi.

Mikil eftirvænting ríkti á heimili Freyju vegna kettlinganna og búið að finna þeim öllum heimili hjá ættingjum. Á sunnudag var ástand Freyju hins vegar orðið mun verra og því brugðið á það ráð að setja hana í aðgerð. Kom þá í ljós að mikið blóð var í kviðarholi hennar og þar fannst byssukúla. Annað nýrað var sundurskotið og blæðing í lifur. Þurfti að fjarlægja nýrað og voru allir 4 kettlingarnir dánir. Eftir aðgerðina mun Freyja ekki geta eignast kettlinga.

Lögreglan telur líklegt að skotið hafi verið á köttinn úr loftbyssu en þær geta verið afar hættulegar; einkum gagnvart litlum börnum og dýrum. Atvikið átti sér stað í miðju íbúðahverfi. Byssumaðurinn er ófundinn en þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Akureyri.
============================================ =======================

Ég á bara ekki til eitt einasta orð. Hver skýtur á kött með loftbyssu ??? Er það bara einhver að “æfa” sig í að skjóta á lifandi skotmark, einhver með fetish fyrir blóði og þjáningum eða bara einhver sem hatar ketti svona mikið ? Nú veit ég ekki þar sem ég get ómögulega sett mig í spor þessa manns/konu.

Það sér hver maður að svona manneskja á best heima á bak við lás og slá því hver gæti verið næst ? Kötturinn þinn, hundurinn þinn, barnið þitt eða maki þinn ??? Svona sick fólk stoppar ekkert við að skjóta á ketti.

Í hvert skipti sem ég sé greinar og fréttir þar sem farið hefur verið illa með dýr þá huxa ég til uppeldis gerandans því dýrahatur er svo sannarlega ekki meðfætt. Hvernig verða börn þessa fólks og börnin þeirra ? Það er sko sannarlega eitthvað til að huxa um !

Með kisukveðju,
IceCat