Ég var að búa til nýja fjölskyldu (í unleashed) og var að fara að kaupa mér kött en þegar ég var búin að velja köttinn þá var kallinn sem ætlaði að borga hann bara fastur! hreyfði sig ekkert! stóð bara þarna með krosslagðar hendur og það var eins og hann var að bíða eftir að eitthvað sem væri þarna myndi færa sig..:S og ég lét konuna hringja á strætóinn eða hvað sem þetta er til að fara heim, en kallinn kom ekki. þótt ég lét kross yfir merkið uppi í horninu sem sýndi að hann var að borga. svo fór ég úr old town og í hverfið og klikkaði á húsið þeirra en fólkið var ennþá í old town og ég kemst ekkert aftur í old town til að fara í fjölskylduna! plís ef þið vitið hvað ég get gert þá segjið mér það!!
og eitt enn, þegar ég flyt einhverja fjölskyldu úr húsi tekur hún þá öll húsgögnin með sér?? ég var nebbla að flytja eina út og ætlaði að láta aðra inn í staðin en þá var bara allt horfið! nema húsin sjálf og gróðurinn.. og ég var búin að eyða svo löngum tíma í að raða öllu ótrúlega flott og svo mundi ég ekki alveg hvernig það var! :(
vonandi getur einhver hjálpað mér!! <br><br><font color=“#800000”><a href="http://kasmir.hugi.is/upje“>Kíktu á kasmír síðuna mína</a></font>

<a href=”http://www.oli.is/stuff/mp3/botnledja_juro.mp3“>Leðjan til Lettlands!!</a>

<font color=”#008000"><i>Ormurinn liggur í grasinu -Elli
</font></i