Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Unglingavinnan

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég googlaði það og fann eina tilvísun á vef Vegagerðarinnar. Þetta er í kafla um Suðurlandsveg og þar stendur: “Vegurinn við Breiðholtsgatnamótin er byggður á nokkuð hárri fyllingu fram hjá Rauðavatni. Vatnið er norðan vegarins en sunnan hans er Norðlingaholtið og Breiðholtsbrautin. Sunnan vegarins er Norðlingaholtið með túnum og girðingum. Austan holtsins tekur við flatlendi og votlendi þar sem Hólmsáin liðast um. Við gatnamót að hesthúsahverfinu er stutt skering í gegnum lítið holt. Norðan...

Re: Lenging skólaársins og gæði menntunar

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held að það væri alveg óhætt að pota henni meira upp. Hún getur átt vinkonur á sama aldri fyrir því. Ég sá t.d. viðtal við einhvern svía sem var undrabarn og var kominn með stúdentinn eitthvað um 12 ára og hann sagðist aldrei hafa liðið fyrir það og átti fullt af vinum á sínum aldri nema þeir töluðu bara aldrei saman um skólann :) Eða ef þú vilt alls ekki gera það, þá bara reyna að koma henni í eins margar íþróttir og þú getur og tónlistarnám og annað auka til að hún hafi ekki tíma til að...

Re: Árekstur..:(

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er ekki bara vegna þess að það er óreyndara heldur líka vegna þess að það er óþroskaðra og velur frekar að keyra hratt og taka sénsa til að sýna sig fyrir vinunum en að fara varlega.

Re: Glæpastarfsemi!

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það þarf endilega að fá allt svona á hreint skriflega áður en maður kaupir þjónustuna. Ég lét setja upp loftnet hjá mér fyrir nokkrum árum og það átti að kosta 5000 kall en þeir rukkuðu mig 7500. Ég reifst bara og fékk reikninginn lækkaðan niður í 5500. Maðurinn hafði skrifað á sig meiri tíma en hann var á staðnum og hann hafði líka sett eitthvað auka drasl á loftnetið sem þurfti ekkert. Mér finnst líka 7000 kall á tímann á mann vera þvílíkt okur fyrir einvherja menn sem eru bara að bera...

Re: Lenging skólaársins og gæði menntunar

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fáðu hana færða upp um bekk. Mér var boðið það þegar ég var á þessum aldri en neitaði vegna þess að ég vildi ekki fara inní nýjan bekk. Ég hef dauðséð eftir því alla tíð síðan enda hætti ég á endanum vegna skólaleiða þegar ég var um 13 ára.

Re: Iceland Express - part one.

í Flug fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég hef heyrt að það sé ekkert bíó og enginn matur en ástæðan fyrir að fólk ætti frekar að skipta við þá er að halda uppi samkeppni. Flugleiðir væri sko ekki að lækka verðið á þessum leiðum hjá sér ef Iceland Express væri ekki.

Re: SaddamHussain!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held að málið sé að þeir eru gungur og vilja aldrei hætta eigin mönnum heldur nota sína yfirburðatækni til að bomba allt til helvítis án þess að setja sig í neina hættu. Dóu ekki líka flestir þeir hermenn sem þeir misstu í “friendly fire” eða slysum?

Re: SaddamHussain!

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þeir hefðu getað sent inn lítinn hóp njósnara til að koma fyrir sprengju í höll Saddams og taka út hann og synina alla í einu. Alla vega miklu færra fólk dáið.

Re: lýsi yfir stríði!!!!

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held að hann noti þær alltaf en ef þú getur vanið hundana á að pissa ekki inni, þá gæti verið nóg að nota þær kannski bara í nokkra mánuði.

Re: Sjúkdómsvæðing.

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hér í Kanada er tilvísanakerfi og þú getur rétt gleymt því að fá tíma hjá sérfræðingi ef þú hefur ekki tilvísun. Þú getur líka rétt gleymt því ef þú ætlar bara að hringja í heimilislækninn og láta hann senda tilvísun á nóinu því hann er skyldugur til að skoða þig fyrst. Þetta kerfi virkar ágætlega en reyndar er skortur á sérfræðingum sem veldur því að það er oft nokkur bið eftir að fá tíma. Hins vegar er annað sem ég stunda mikið og það eru kínverskar lækningar. Ég er oft með bakverki eða...

Re: Skólaárið og menntakerfið

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sendu þetta bréf á menntamálaráðherra. Getur vel verið að hann viti ekki hvers konar rugl er í gangi. Annars held ég bara svei mér þá að ef þetta hefði verið gert á mínum skólaárum þá hefði ég bara sleppt að mæta þessa auka daga ef það var ekkert verið að gera. Þið voruð hvort sem er búin í prófum, var það ekki?

Re: Hvað er jafnrétti?

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það var einmitt einhver fréttaþáttur í imbanum um daginn varðandi hæstaréttarmál í Bandaríkjunum þar sem 3 hvítir nemendur eru að kæra University of Michigan fyrir að hafa neitað þeim um skólavist vegna kynþáttar síns. Það voru ýmsir með ýmsar skoðanir á þessu máli í þættinum en mér fannst athyglisvert að sjá talað við svartan nemanda sem sagði að hann hefði viljað komast inn í skóla á eigin forsendum. Hann sagðist ekki vilja þurfa að hugsa út í það hvort hann hefði átt plássið skilið eða...

Re: lýsi yfir stríði!!!!

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég hef það eftir manni sem ræktar púðla að þegar þú ert með 2 eða fleiri karlhunda ógelda, þá keppist þeir við að merkja og það sem hann gerir er að láta þá í pissubuxur þegar þeir eru inni. Þá pissa þeir ekki því þeir myndu pissa í sig. Það er hægt að panta svona buxur á http://www.joybies.com/ og http://www.ctaz.com/~party1/thumbs.htm Svo geturðu náttúrulega bara látið gelda ef þú ert ekki að rækta en það er spurning hvort það yrði samt erfitt að venja þá af þessu.

Re: Kjöt vs. Grænmeti

í Heilsa fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er sko ekkert gott að veslast upp úr elli. Ég hef unnið á elliheimili og margt af þessu fólki sem er þarna vill bara deyja og er löngu farið að bíða eftir að þetta taki af enda orðið kvalið á sál og líkama. Það var einn maður sem var þarna sem æpti bara svo til allan sólarhringinn og það var eiginlega ekkert hægt að gera fyrir hann. Margt af þessu liði held ég væri bara mannúðlegra að svæfa eins og maður gerir við gömul dýr sem eru kvalin.

Re: Konur, jafnréttismál, væl

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ef konur mættu ekki gefa blóð þá væri þeim einfaldlega ekki leyft það. Ég held að þetta hljóti að vera einhverjar gamlar kerlingabækur sem henni hefur verið sagt þarna þannig að þú ættir ekkert að vera að hafa það eftir. Fólk sem ekki veit betur gæti haldið að þetta væri satt.

Re: Konur, jafnréttismál, væl

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
“Reyndar er mælt með því að konur gefi ekki blóð, þar sem þær missa þó nokkuð blóð vegna blæðinga.” Þvílíkt kjaftæði! Konur mega alveg gefa blóð. Reyndar mega þær á Íslandi bara gefa á fjögurra mánaða fresti en ekki þriggja eins og karlar en margir karlar eru líka blóðlitlir og mega ekki gefa svo oft. Það var einu sinni 3 mánuðir fyrir bæði kynin er var breytt fyrir nokkrum árum og ég man eftir að stelpa sem ég þekkti var hundfúl yfir því vegna þess að hún var með of mikið blóð og varð þung...

Re: könnun ?

í Heilsa fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Líklega ef þú kaupir eina krukku, tekur það á hverjum morgni þar til hún er búin, tekur þá frí, kaupir svo aftur krukku o.s.frv. :)

Re: Lögleiðing á kannabiss

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Af hverju ætti það ekki að vera leyft? Það er búið að gera það í Hollandi, Belgíu og Portúgal og er verið að slaka á reglum í Kanada. Reglur eru mismunandi en almennt er ekki verið að leyfa það án skilyrða heldur verið að leyfa til einkanota, takmarkað magn. Í Kanada verður það ennþá bannað en lítið magn til einkanota fer ekki á sakaskrá.

Re: Getur þetta staðist?

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það þyrfti líka að koma því inn í reglur að fólk fari að merkja íbúðarnúmer á lúgur og bæta inní þegar það gefur upp heimilsfangið sitt. Það ætlast bara allir til þess að pósturinn viti hver býr í hvaða íbúð. Ég bý í Kanada og hér ef það er ekki íbúðarnúmer á bréfi, þá er það bara endursent. Það er frekar lítið mál fyrir fólk að gera þetta en meira mál fyrir póstinn að þurfa að vita hvar allir eiga heima.

Re: Lenging skólaárs

í Skóli fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jú, skólinn er léttari í Danmörku. Ég þekki slatta af fallistum úr HÍ sem hafa farið í háskóla í Danmörku og gengið bara þrælvel. Hins vegar hlýtur þetta að segja eitthvað um gæði menntunarinnar eða ég get alla vega ekki ímyndað mér annað.

Re: Konur, jafnréttismál, væl

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held að laun kvenna séu lægri aðallega vegna þess að þær ganga með börn. Þessi líffræðilega staðreynd leiðir til eftirfarandi: - ef foreldrarnir eru ekki í sambúð er konan yfirleitt með barnið og það hefur þess vegna áhrif á vinnu hennar en ekki föðurins - vegna meðgöngu og brjóstagjafar er konan oftast nánari barninu, alla vega til að byrja með sem leiðir til þess að hún tekur frekar lengra fæðingarorlof en faðirinn - ef annað hvort þeirra ákveður að vera heimavinnandi einhvern tíma...

Re: Getur þetta staðist?

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kannski er þeim illa við póstinn vegna þess að hann kemur og skarkar í lúgunni á húsinu þeirra og treður einhverju drasli inn en talar aldrei við neinn eða kemur inn eins og alvöru gestir. Annars þarftu ekkert að bera út ef þú sérð að hundur er laus í garðinum. Þú hefur rétt til að neita að bera út í það hús og fara fram á að fólkið fái sér pósthólf. Það var mér alla vega sagt eitt sitt þegar mamma og hundurinn höfðu verið í sólbaði. Mamma fattaði ekki að grípa hundinn þegar pósturinn kom og...

Re: Hirðið upp eftir bestu vinina ykkar!!!

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst lyktin af hundaskít miklu verri en hestaskít. Hefurðu lent í að fá þetta undir skóinn hjá þér? Hestar eru nefnilega grænmetisætur og skiptir líklega einhverju máli. Hestar eru heldur ekki á ferð inní miðjum bæ þannig að þú getur ekki átt von á að stíga í hestaskít á miðri gangstétt á leiðinni útí sjoppu, bara ef þú ferð útí sveit.

Re: Kattamatur eða mannamatur

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég ætti að kaupa þetta handa mínum ketti. Hún er nefnilega allt of feit. Henni finnst reyndar líka góð jógúrt þannig að það virkar kannski ekki. Annars held ég að þetta sé vegna þess að mörgum grænmetisætum finnst kjöt ógeðslegt og vilja ekki kaupa neitt með kjöti í, ekki einu sinni í kattamat. Ég veit ekki hvaða áhrif þetta hefur á ketti, hvort þeir verða eitthvað heilsulausir af þessu því þeir eru náttúrulega rándýr en getur vel verið að það séu öll nauðsynleg efni í þessum mat. Annars hef...

Re: Sims Svindl

í The Sims fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ef þú leitar á netinu þá geturðu fundið slatta fleiri en þetta eru eiginlega þau einu sem eitthvað vit er í.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok