Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Þynnka/ógleði

í Heilsa fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er náttúrulega helst að drekka minna og ekki blanda saman tegundum. Líka bara finna hvaða tegundir þú þolir best. Ég fæ t.d. alltaf hausverk af rauðvíni eiginlega strax og ég byrja að drekka það. Líka fá þér vel af vatni og jafnvel eitthvað að éta þegar þú kemur heim af fylleríi áður en þú ferð að sofa. Áfengi nefnilega þurrkar upp líkamann, þess vegna mígur maður svona mikið og maður þarf að bæta upp vökvatapið með vatni. Hins vegar ef maður verður samt veikur, þá geturðu tekið eitthvað...

Re: Sumarbústaður til leigu

í Ferðalög fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú getur fundið eitthvað á <a href="http://www.accommodation.is/">http://www.accommodation.is/</a> en það er allt blandað saman, hótel og annað þannig að þú verður kannski að sigta í gegn. Það er oft sem bændur eru með sumarbústaði í landinu sínu. Þú getur líka talað við bóndann í Úthlíð. Hann er með marga sumarbústaði, alla með heitum potti og líka sundlaug á svæðinu. Hann er á <a href="http://www.mmedia.is/uthlid/">http://www.mmedia.is/uthlid/</a> Ég hef líka heyrt að það sé hægt að leigja...

Re: Simon Cowell, TILVITNANIR

í Fræga fólkið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta síðasta er alveg satt hjá honum. Hann er þessi góði. Meðan hin eru fölsk og ljúga að fólki að það sé alveg ágætt, þá segir hann bara að það sé ömurlegt og eigi að finna sér aðra vinnu og það er það sem fólk þarf ef það er virkilega ömurlegt og heldur að það sé gott. Annars er það bara að eyða tíma sínum eins og þessi náungi sem hann minnist á þarna í greininni sem var búinn að vera 8 ár að reyna að meika það.

Re: !pirrandi við foreldra!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er nú bara sanngjarnt að fjölskylda hjálpist að með það sem þarf að gera á heimilinu. Börnin eiga ekki að vera þrælar foreldranna en foreldrarnir eiga heldur ekki að vera þrælar barnanna því það gerir þeim ekkert gott. Þegar fólk flytur af hótel mömmu þá getur það nefnilega verið smá áfall fyrir suma að fatta það að ísskápurinn fer ekki sjálfur útí búð, ruslið fer ekki út með sig sjálft, fötin taka sig ekki upp af gólfinu og labba í þvottavélina o.s.frv.

Re: !pirrandi við foreldra!

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég er viss um að þau eru líka voða pirruð á þér, t.d. þegar þau koma þreytt heim úr vinnunni og þú situr heima að horfa á Glæstar vonir eða eitthvað og nennir ekki einu sinni útí búð :)

Re: Lítið Klósett

í Heimilið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst nú alltaf best að raða sófum með veggjum til að það líti út fyrir að vera meira gólfpláss. Þú mátt heldur ekki fylla alveg allt af húsgögnum. Betra að eiga bara nokkra Ikea stóla inní skáp sem er hægt að fella saman og taka þá fram þegar koma mjög margir. Ég mæli með því að mála í ljósum lit vegna þess að það gerir íbúðina stærri og bjartari.

Re: Verður lækkað áfengisaldurinn ?

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Maður segir ekki “Verður lækkað áfengisaldurinn?” heldur “Verður áfengisaldurinn lækkaður?” og hvort það verður veit nú enginn, trallala.

Re: Unglinga

í Djammið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er vissulega munur á milli einstaklinga en að meðaltali eru þeir sem eru 18 þroskaðri en þeir sem eru 16. Þú getur líka fundið 10 ára krakka sem er mjög þroskaður andlega og talar eins og fullorðinn maður og svo geturðu fundið fólk sem er þrítugt eða fertugt og hagar sér eins og það sé 15.

Re: Hvernig Farsíma á maður að fá sér ?

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég myndi bara fá mér einhvern lítinn og ódýran með sæmilega löngu batteríi. Lítinn svo maður nenni að hafa hann með sér og ódýran ef maður týnir honum.

Re: 3410

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú veist ekki einu sinni hvað er betra við hann en samt ertu að spá í þessu. Ég myndi ekki fara að henda 5000 kalli í þennan síma nema það væri eitthvað í honum sem væri ekki í mínum og mér finndist ég ekki geta lifað án. Þú getur borið þessa 2 síma saman á <a href="http://www.nokia.com/phones/compare/compare_results.jsp?phone=1001&phone=1120">http://www.nokia.com/phones/compare/compare_results.jsp?phone=1001&phone=1120</a> Það helsta sem ég sé er að 3410 er með einum fleiri leik og líka með...

Re: pedophile=veiki

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Munurinn er sá að hommar eru ekki að skaða neinn en barnaperrar mega ekki láta undan sínum löngunum vegna þess að þá eru þeir að skaða börn.

Re: Eðlilegt?

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kelling er svona skammayrði yfir konur sem eru leiðinlegar og þurfa alls ekki að vera neitt gamlar. Það hefur held ég ekkert komið fram að þessi hafi verið eitthvað öldruð. Í fyrsta og síðasta lagi þá var það hundurinn hennar sem var laus og átti ekki að vera laus. Annars hefði hann aldrei bitið neinn. Þetta er ekki orð á móti orði því strákurinn sem var bitinn fór á slysó og hefur það skjalfest. Vonandi haft vit á því líka að fá áverkavottorð og taka myndir af sárinu. Vinir hans sáu líka...

Re: Unglinga

í Djammið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég held nú að heilinn hjá flestum sé orðinn fullþroskaður um tvítugt. Ertu ósammála því að heilinn sé ennþá að þroskast við 16 ára aldur? Heldurðu ekki að það geti verið slæmt fyrir fólk að neyta efna sem hafa neikvæð áhrif á heilann meðan hann er enn að þroskast?

Re: "Þjóðar"Bókhlaðan

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mér finnst frekar að það ætti bara að banna þá sem eru með læti og kannski hafa svona 12 ára aldurtakmark svo fólk sé ekki að koma með litla krakka með sér ef það fær ekki pössun. Annars höfðu stúdentar ekkert sér herbergi þarna síðast þegar ég vissi. Það var hægt að fá einhver herbergi en þau eru svo fá. Flestir háskólanemar sem lesa þarna þurfa að vera í almenningnum og ég man frekar vel eftir því að það voru einhverjar menntaskólagelgjur að þykjast lesa þarna sem voru svo síkjaftandi og...

Re: Atvinnumál í verri stöðu nú en áður.

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þeir gætu svo sem lagað þessa svörun hjá sér en hvað eiga þeir annað að gera? Bara búa til vinnu fyrir alla til að þeir fari ekki að brjótast inní bíla? Annars held ég að flestir sem brjótast inní bíla séu dópistar í örvæntingarfullri leit að einhverju góssi til að friða handrukkarana með og fólk sem er atvinnulaust þarf ekkert að lenda í dópi enda hefur það ekki beint efni á því ;) Það er líka ýmislegt sem maður getur gert þegar maður er atvinnulaus. Náttúrulega sótt um allt og líka bara...

Re: Íslenskan her

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Jógaskylda er stórgóð hugmynd. Sérstaklega fyrir hermennina sem eru orðnir stressaðir og ofbeldishneigðir á öllum byssuleikjunum. Mér líst þrælvel á þetta hjá þér :) Annars í alvöru, þá sá ég það í einhverju blaði fyrir margt löngu síðan að eitthvað land sem ég man ekki lengur hvað hét tók upp hugleiðslu og jóga í fangelsum sínum og endurkomum fanga fækkaði úr eitthvað yfir 80% niður í 17% og þeir sátu uppi með fullt af tómum fangelsum sem þeir neyddust til að breyta í skóla.

Re: atvinnu vandamál

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þetta fer eftir verkalýðsfélaginu og hvað hún gerði af sér. Hún ætti að tala við VR. Annars geta þeir alltaf bara búið til einhverjar ástæður, sagt jafnvel að hún hafi verið að stela eða eitthvað.

Re: Gjaldeyrir

í Ferðalög fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvað ætlaðu að vera lengi og hvað ætlarðu að eyða miklu á dag? Borgar þú hótelið fyrirfram og er einhver matur innifalinn? Hvað ætlarðu að skemmta þér mikið og hefurðu hugsað þér að versla? Allt þetta skiptir máli. Ferðaskrifstofurnar eru með í bæklingum sínum verðlagið í þeim löndum sem þær eru að selja til þannig að þú ættir að geta séð þar hvað eitthvað kostar. Reiknaðu svo bara saman hvort þú ætlar út að borða á hverju kvöldi og hvort þú ætlar að drekka og fara á klúbba eða sitja heima á...

Re: Unglinga

í Djammið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það er munur á 16 og 18, bæði í andlegum og líkamlegum þroska.

Re: Íslenskan her

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Af hverju væri ekki hægt að hafa herskyldu? Þeir sem ættu að vera herskyldir myndu væla smá yfir því fyrst og svo myndi það bara gleymast eins og annað sem fólk er að væla yfir. Strákunum á hinum norðurlöndunum finnst þetta ekkert mikið mál en náttúrulega alltaf einhverjir sem koma með læknisvottorð eða fá að vinna á elliheimili í staðinn en það eru ábyggilega fleiri strákar á þessum aldri til í að leika sér með byssur og fara í útilegur og koma sér í toppform en að skeina krumpaða rassa....

Re: Létt vín i matvörubúðir ,og það strax

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þú átt náttúrulega að vera búinn að kaupa rauðvínið fyrirfram og geyma það í vínkjallaranum þínum :)

Re: Eðlilegt?

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hundurinn átti náttúrulega ekki að vera laus þannig að ef þeir voru eitthvað að stríða honum, þá myndi ég segja að þetta væri 50/50 sök en ef þeir voru bara í tennis og hundurinn espaðist af því, þá er þetta algjörlega kellingunni að kenna að vera með hann lausan. Ef hann hefði verið bundinn í garðinum eða innan girðingar hjá henni, þá hefði hann aldrei komist út til að bíta neinn. Ég mæli með því að vinur þinn rukki kellinguna fyrir slysó kostnaðinn og ef hún neitar að borga þá hóta að...

Re: svona takkar á gangbraut!

í Tilveran fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það eru líka svona ljós á Hringbraut við Landsspítalann. Ferlega lengi vegna þess að þau fara eftir hinum ljósunum og koma ekki á fyrr en bílaljósin á næstu gatnamótum eru rauð. Maður er yfirleitt fljótari að sæta lagi og labba yfir þar en að bíða eftir að græni kallinn komi.

Re: hjálp hjálp!!!!!!!!!!!

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það má náttúrulega alls ekki meiða hann. Þess vegna lætur hann svona. Þú verður að byrja að greiða úr flókanum fjærst húðinni og halda þá fast í flókann á meðan svo það togist ekki í hárið. Mjög slæma flóka gætirðu þurft að klippa úr. Kannski bara best að snoða hann fyrir sumarið og passa svo bara að greiða honum á hverjum degi meðan hann er stuttur því þá finnst honum það ekkert vont og halda svo bara áfram eftir því sem feldurinn vex.

Re: er að pæla...?

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hefurðu ekki séð gamla kallinn niðrí bæ sem gengur alltaf um með skilti? Snærisspotta fyrir belti, götótt prjónapeysa, hvítt skegg og skiltið sem er yfirleitt bara pappaspjald á priki getur innihaldið eitthvað álíka og “snjóflóðagvöð” eða eitthvað um krosslaf afturgenginn sem á að vera Jesú. Maðurinn er smá sérvitur en hann hefur lengi barist fyrir því að vera strokaður út úr kirkjubókum þar sem hann hafi verið skírður sem óviti án þess að geta björg sér veitt. Einu sinni sletti hann skyri á...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok