Það er bara þannig að maður ræður ekki hverjir elska hvern, en allavega ef svo væri þá myndi þessi náungi sitja inn á litla hrauni ríðandi einhverri hóru þar.
Þannig er mál með vexti að ég á ofsækjanda, sem ofsækir mig vataskuld, hann er 17 ára, mjög sætur en aftur á móti helmingi leiðinlegri. Hann hringir í mig c.a. 8 sinnum á dag til að tjékka á mér, ég þoli hann ekki. Hann er alltaf að bjóða mér í bíó og slíkt en ég myndi alldrei meika heila bíómynd með þessum manni og hvað þá að vera í sambandi við hann. Hann er búinn að rayna að kyssa mig en ég sló hann bara utan undir. Núna er ég hætt að svara honum þegar hann hringir og er búin að skipta um símanúmer en einhvernveginn fékk hann númerið mitt aftur *garg*. Núna þegar ég hætti að svara honum kom hann heim til mín og spurði eftir mér og ég sagði bara; ég hef ekkert við þig að tala, bæ. Og skellti hurðinni.
Núna er hann farinn að koma heim til mín oftar og oftar en ég segi alltaf það sama við hann. Þetta er orðið virkilega pirrandi, ég fékk vin minn til að segja við hann að ég væri með mér….

Hvað get ég gert meira til að losna við hann????? HJÁLP!!!
-Það er ljótt fólk sem heldur fram að fegurðin komi innan frá