Mér fundust undanúrslitin mjög skemmtileg. Markmaður Rússa, man ekki alveg hvað hann heitir, kom rússum í úrslitin. Gersamlega lokaði markinu í bráðabananum. Loka varslan var glæsileg. Þá kom Janne Ojanen á mikilli ferð, kemst hægra megin fram hjá markamanninum svo Rússinn hendir sér á vinstri hliðina, þá ætlaði Ojanen að klára þetta, en þá snéri Rússinn sér snöggt á bakið og varði með hægri höndinni. Mjög flott markvarsla. Gaman af þessu.