Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Raven R.I.P (2 álit)

í Rokk fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Þessi magnaði karakter sem er frægastur fyrir að spila með Killing Joke og Ministry lést á dögunum 46 ára að aldri, hann lést af hjartáfalli í svefni í Sviss,þar sem hann var að vinna með trommuleikaranum Ted Parson(Prong,Swans,Godflesh,túraði einnig með Killing Joke um tíma) og frönsku hljómsveitinni Treponem Pal. Raven spilaði einnig með Prong, Murder Inc., Pigface and Godflesh, hann ver síðan með fleiri samvinnuverkefni í gangi eins tveggja manna dud-bandið Smartyr og nýjasta hugarfóstrið...

Maður áreitir konu á bílaþvottastöð á lúalegan hátt. (31 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ekki er þessi færsla skemmtileg,en ég læt hana vaða engu að síður, svona lúsera þoli ég bara ekki. Merkilegt hvað sumt fólk getur verið smátt í sniðum, einhver skítakarakter á silfurgráum glæsi-Benz veittist auðvirðilega að góðri vinkonu minni sem var í sakleysi sínu að ryksuga bifreið á bílaþvottastöð í borginni í gær. Fíflið rennir upp að henni á þessum líka glæsilega Benz, greinilega splunkunýjum, skrúfar niður rúðuna og fer að hæðast að klæðnaði hennar. Vinkonan, sem er svo sannarlega...

Killing Joke (11 álit)

í Pönk fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Sýnist Youth bassaleikari vera búinn að fá sér aðeins of mikið af sýru þarna:)

Heiglar sem fara um í hópum og berja. (17 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Fátt gerir mig jafn reiðan og þegar huglausar bleyður í hóp ráðast að einum og berja að tilefnislausu(og þó það væri tilefni). Gungurnar sem réðust að mönnum við kínverska sendiráðið á ótrúlega lúalegan hátt voru svo smáir í sér að þeir létu sér sæma að sparka ítrekað í þá liggjandi,mikið lægra er varla hægt að leggjast en að sparka í höfuðið á liggjandi manneskju,hvað fer í gegnum hugann á dusilmenninu meðan það lætur hvert höggið á fætur öðru dynja á höfði óvígrar manneskju sem þegar hefur...

Þegar Saddam var besti vinur BNA (4 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Smá upprifjun fyrir þá sem vilja skilja aðgerðir BNA í Írak betur: Leiðtogar margra ríkja í Austurlöndum nær héldu lengi í þá von að Bandaríkjamenn mundu taka að sér hlutverk málamiðlara og leysa úr verstu flækjunum. Þær vonir brugðust þegar það kom aðallega í hlut leyniþjónustunnar, CIA, að reka erindi Bandaríkjastjórnar á þessum slóðum. Vaxandi mikilvægi olíu átti síðan eftir að rugla Vesturlandabúa enn meira í ríminu og flækja stjórnmálastöðuna. Starfsmönnum CIA virtist með öllu...

Peningagaldur—Hvernig bankarnir skapa sér auð úr engu (1 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Það er öllum hollt að velta þessu aðeins fyrir sérhttp://www.vald.org/falid_vald/kafli08.htm Auðvelt er að geta sér til um framþróun efnahagsmála í heimi þar sem bankarnir hafa komið sér í þá aðstöðu að vera eina uppspretta peninga án þess að láta nokkuð í staðinn. Peningar eru blóðið sem streymir í þjóðarlíkamanum. Allar framkvæmdir krefjast peninga sem bankarnir búa til úr engu. Á meðan almenningur vinnur myrkranna á milli við að skapa raunveruleg verðmæti færir bankinn tölur í bækur sínar...

Vampire Bush og Halliburton Cheny (7 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Gleður mig alltaf mjög þegar alvöru listamenn með bein í nefinu þora að tjá sig með list sinni um mál sem brenna á mörgum,sérstaklega þegar stærstu óvinir mannkyns í dag eru teknir fyrir…http://www.youtube.com/watch?v=JXgAbrhAI7I

Unglingar í vinnu og útlendingar. (7 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Það hafa margir vælt eins og stunginn grís yfir útlendingum á íslenskum vinnumarkaði og að þeir þoli ekki t.d þegar þeir lendi á afgreiðslufólki sem er ekki búið að ná góðum tökum á íslensku eða jafnvel engum.Sjálfum finnst mér þetta ekki mikið mál,flestir innflytjendur eru virkilega að reyna að ná tökum á málinu og gera sér grein fyrir því að það er nauðsynlegt til að komast eitthvað áfram hér,og er alla jafna glaðegt og kurteist starfsfólk.Hins vegar fer stundum afskaplega í taugarnar á...

Þegar heimskan hefur betur. (30 álit)

í Stjórnmál fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Það er heimska að veiða hval úrelt hugsun fortíðar. Kemur okkur í koll þetta val Kannski strax ef ekki síðar. Blöndal svagur með sauðsins svip í sjónvarpinu mundar sveðju, Herpist um munn og herðir grip, þetta högg sendir umheiminum kveðju. Við erum sko fullvalda framfaraþjóð, framkvæmum það sem okkur sýnist. Það verður þá andskotann að hafa það, þó að heilbrigð skynsemi í leiðinn týnist. Killjoke

Listin að græða á stríði (6 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Er alltaf jafn hissa á því hvað lítið er fjallað af fjölmiðlum um það hverjir fjármagna stríð eða hafa gert það í gegnum tíðina.Margir trúa því að stríð séu nánast náttúrulögmál.Hins vegar liggja fyrir upplýsingar um að vissir aðilar hafa í gegnum báðar heimstyrjaldirnar grætt ótrúlegar upphæðir á því að framleiða vopn og selja t.d Nasistum í Seinni Heimstyrjöldinni.Fróðlegt er einnig að sjá hverjir fjármögnuðu vígbúnað Þjóðverja og framleiddu vopn og annað sem þarf til að reka her fyrir þá...

Blekkingavefur eða þvæla? (13 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég hef alltaf haft gríðarmikinn áhuga á sögu og les flest um hana sem ég kemst í.Maður þarf ekki að liggja lengi yfir sögunni til að átta sig á að gegnumgangandi eru svik,launráð og baktjaldamakk,menn virðast tilbúnir í flest til að komast til valda og halda þeim.Eins verður manni fljótt ljóst að mörgum sem hefur verið hampað sem mikilmennum og miklum leiðtogum,eru þegar betur er gáð siðblindingjar og illmenni með mikilmennskubrjláæði.Einnig sér maður fljótt að oft virðist vanta að skoðað sé...

Lick the boot. (4 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Þarnast varla lýsingar hefði ég nú haldið.

Falið vald. (0 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Mig langar að minna á mjög merkilega bók sem ég las sem ungur maður og hafði mikil áhif á mig og opnaði augu mín á margan hátt,Falið vald eftir Jóhannes Björn. Svo vill til að ég var að vinna á sama stað og Jóhannes um það leyti sem bókin kom út,í saltfiskverkun Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.Þar voru því oft líflegar umræður um þau mál sem tekið er á í bókinni.Þar er skoðað betur hvernig stórum hluta heimsins er og hefur verið stjórnað á bak við tjöldin,margir vilja afskrifa þetta allt sem...

Leftfield (6 álit)

í Danstónlist fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Var að dusta rykið af gömlum Leftfield disk,Leftism og vá,ég var hreinlega búinn að gleyma hversu mikil snilld hann er,hlustaði á hann í ræmur á sínum tíma,verð að segja að hann hefur elst ótrúlaga vel,var æðislegt að blasta Open Up eins hátt og græjurnar þoldu með góðu móti,magnað sound sem þessir gaurar náðu að galdra fram. Myndbandið við Open Up er á síðunni minni http://www.myspace.com/sveinbjornsson

Smánarblettur á velferðarríkinu Íslandi (2 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Vinkona mín skrifaði blogg á fólk.is sem að mér finnst mjög þarft,þetta eru mál sem eiga og geta svo auðveldlega verið í lagi,langar að fá álit hugverja á þessum málum. Hér kemur bloggið hennar: gettogirl bloggar 16. september 2006 - 21:21 Laugardagur, 16. september 2006 “Nú get ég ekki orða bundist lengur. Í Blaðinu í dag er grein sem ber yfirskriftina “Fá hvergi inni eftir að skóla líkur” og er þar verið að fjalla um þann málaflokk sem má sín hvað minnst í “velferðarríkinu” Íslandi. Fram...

Smáskífa frá 1980 (3 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Einhver magnaðasta smáskífa allra tíma,A-hliðin með hinum öfluga anti-war anthem WARDANCE og B-hliðin með ótrúlega bilaða lagi Pssyche sem er ávallt spilað þegar Killing Joke heldur tónleika. Wardance the atmosphere's strange out on the town music for pleasure it's not music no more music to dance to music to move this is music to march to to a war dance a war dance look at the victim scrawled on the wall you know the the reason outside the door you got something nasty in your mind trying to...

Nokkrir verstu glæpirnir gegn mannkyninu. (14 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Það er víst ábyggilega af nógu að taka,nefni bara nokkra sem koma upp í hugann og ekki í sérstakri röð. Útrýmingarherferð gegn Gyðingum í Þýskalandi Nasista.Þarf ekki að hafa mörg orð um þá viðurstyggð alla. Voðaverkin sem voru unnin í Sovétríkjum Stalíns eru litlu skárri en í Þýskalandi en var þó ekki beint sérstaklega gegn þjóðfélagshópum eða“veiku eða óæðra” fólki. Einn sá auðvirðilegasti glæpur sem framinn hefur verið gegn mannkyni var framinn þegar Bandaríkjamenn lögðust svo lágt að...

Ministry (4 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Tommy Victor(vinstri) úr Prong og Raven(hægri) úr Killing Joke eru gengnir til liðs við Oncle Al(fyrir miðju),höfuðpaur Ministry.

Ministry (7 álit)

í Rokk fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Al Jorgensen og félagar,Raven(lengst til vinstri) úr Killing Joke er genginn til liðs við Ministry.

Nick Cave And The Bad Seeds (3 álit)

í Rokk fyrir 18 árum
Þarna má þekkja Kid Congo Powers held ég,Mick Harvey,Nick að sjálfsögðu og Blixa Bargeld úr Einstuerzende Naubauten.

Killing Joke á tónleikum (6 álit)

í Rokk fyrir 18 árum
Industrial power!

Mixdiskur frá Killjoker (14 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 1 mánuði
Það hefur ekki nokkur maður beðið mig um þetta en mig langar samt líka..lol 1.Killing Joke-Butcher. Frábært lag af plötunni what´s THIS for…! frá 1981.Dásamlega þrúgandi andrúmsloft og magnaður texti sem er jafn gildur í dag eins og 1981,nánast forspár,“Out of the virus the immunity comes,crawling for oil,they were bleeding for gold” 2.Lhasa-My Name af disknum The Living Road.Þessi söngkona er hreint út sagt einstök,ef einhver hrífst ekki af þessu lagi,þá er viðkomand með hjarta úr grjóti!...

RAVEN (2 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 1 mánuði
Raven úr Killing Joke,Ministry,Smartyr,Prong

Geordie Walker (8 álit)

í Rokk fyrir 18 árum, 1 mánuði
Gítarleikari Killing Joke,tekur ALDREI sóló

Jaz Coleman í ham (0 álit)

í Músík almennt fyrir 18 árum, 1 mánuði
Jaz söngvari Killing Joke ávallt vígalegur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok