Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

khg
khg Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
452 stig

upptökur af gömlum stjörnuleikjum? (5 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég hef verið að velta því fyrir mér í smá tíma hvar ég gæti mögulega komist í upptökur af gömlum stjörnuleikjum. Málið er það að mér langar mjög að sjá m.a. stjörnuleikinn sem var í Orlando hérna um árið þegar menn eins og Jordan og þessir karlar voru upp á sitt besta. Á sínum tíma átti maður þetta en var of short-minded til að geyma þetta. Er einhver sem veit hvort maður geti nálgast þetta á netinu einhvernstaðar eða jafnvel keypt þetta í einhverjum netverslunum?

Man.Utd meistarar enn eitt árið!!!! (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég held að það sé ekkert sem stoppi Man.Utd frá því að verða meistarar þetta árið. Þeir eru búnir að fá tvo topp leikmenn(Nistelrooy og Veron) og það sínir bara metnaðinn sem er í gangi þarna í Manchester borg. Liverpool verður enginn mótstaða fyrir Man.Utd enda þrátt fyrir það að hafa rakað inn peningum í fyrra með því að vinna þrennuna þá sýna þeir mikið metnaðarleysi og kaupa bara einn leikmann Riise á 4.milljónir punda. Arsenal sýndi mikin metnað og eyddi mikið af peningum en því miður...

Hvar finn ég crack fyrir NBA live 2001? (2 álit)

í Körfubolti fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Gæti einhver sagt mér hvar ég fyndi crack fyrir NBA Live 2001 á netinu.

Eiður á leiðinni frá Chelsea? (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Svo gæti verið að Eiður Smári Guðjónssen sé á leiðinni frá Chelsea. Það er sagt að Bolton sem var um daginn að komast upp í efstu deild vilji ólmir fá Eið Smára til baka. En þeir þyrftu þá að borga þó nokkuð meira fyrir hann en þeir seldi hann á. Það er talað um að þeir eigi eftir að bjóða u.þ.b. 6 milljónir punda upp í hann. Síðan má geta þess að það gæti líka farið þannig að Dwight Yorke fari til Newcastle í sumar í skiptum fyrir Kieron Dyer en Manchester vilja ólmir fá kauða. En þeir...

Hérna eru nokkrar góðar fótboltavefsíður. (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Maður nátturlega byrjar bara á hinni sígildu Gras.is síða sem inniheldur allt helsta slúðrið í fótboltanum Síðan er Teamtalk.com þar getur þú séð allar fréttirnar um ensku og skosku liðin. Þú getur líka fengið það helsta sem er að gera annars staðar í fótboltaheiminum. Mjög góð síða. footballtransfers.net Þetta er mögnuð síða inniheldur flest öll leikmannaskipti í Evrópu. Þar getur maður séð hvaða leimenn eru sendir á free transfer(frjálsa sölu),hvaða leikmenn eru á transfer...

Sagan endalausa loks á enda? (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sagan endalausa um Jan Koller virðist vera búinn. Núna er hann búinn að neita Fullham til þess að leika með Dortmund og hann verður þá sennilega þar á næsta tímabili. Ég get nú ekki sagt annað en loksins, það var kominn tími til að hann færi til almenilegs liðs. Ég reyndar vonaðist eftir að hann færi til Fulham en Fulham á nú bara eftir að finna einhvern yngri og betri.

Bónus SUCKS! (8 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Ég bý hérna í Árbænum(besta hverfinu) og þar er ein Bónus búð og hún er ömurleg. Það er ekki furða þótt að allar vörurnar séu nokkrum krónum ódýrari en í venjulegum búðum. Allar vörurnar þarna eru annaðhvort útrunnar, að verða útrunnar eða eins og ef maður kaupir sér eitthvað að drekka þarna þá verður maður að drekka það heitt vegna þess að það eru engir kælar fyrir drykkina þarna. Síðan eru ávextirnir og grænmetið ömurlegt þarna allt gamalt og vont. Það á ekki að leifa svona verslanir á...

Verður Guðjón rekinn frá Stoke City? (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Nú eru miklar vangaveltur uppi um það hvort Guðjón heldur starfi sýnu sem framkvæmdarstjóri Stoke City. Það var Guðjón sem kom upphaflega með þá hugmynd að kaupa fótboltafélag í Englandi og kom þeim á framfæri til fjárfesta. En þessi árangur Guðjóns með Stoke er alls ekki sættanlegur. Hann er búinn að kaupa fullt af leikmönnum en samt ná þeir bara að vera einu sæti ofar í deildinni. Er þetta ásættanlegur árangur? Guðjón sagði það í viðtali við The Sentnel að hann myndi ekki hætta með Stoke...

Hver er efnilegasti leikmaður Íslandsmótssins? (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Hver finnst ykkur vera efnilegasti leikmaður Íslandssmótsins? Mér finnst það án efa vera Ólafur Ingi Skúlason hjá Fylki. Honum var boðinn samningur hjá Tottenham þegar hann var aðeins 16 ára gamall og það segir nú dálítið um getu drengsins og nú nýlega voru Arsenal menn á eftir honum og hann fór út til þeirra til reynslu í viku og það gekk allt vel og sagt var að Arsenal hefði boðið í kauða en ekki vildu Fylkismenn taka því boði. Ég held að Ólafur eigi eftir að sýna góða takta á...

70 mín á Popptíví (18 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Þessir þættir eru hreinasta snilld. Það eru Simmi,Jói og sveppi sem stjórna þessum þáttum og ef þið hafið ekki horft á þessa þætti þá kvet ég ykkur að fara að horfa á þá. Þeir eru alla virka daga á milli 22-23.10 og í þessum þáttum er t.d sagt nýjasta slúðrið um Hollywood stjörnunar,falin myndavél,Sveppahornið og margt margt fleirra. Þeir eru nú nýlega búnir að breyta lookinu á þættinum og mér finnst það nú ekkert spes en þættirnir eru snilld og ég hve ykkur til að horfa á þá. Ef þið eruð...

Skjár 1 (6 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Skjár einn er ekki búið að vera lengi til en það er alveg að slá í geng þrátt fyrir ungann aldur. Persónulega fynst mér Skjár einn besta stöðinn eins og er. Það er fullt af góðum þáttum og þótt að það séu dálítið oft auglisingar þá venst maður því. Það er gott að Ríkissjónvarpið og Jón Ólafsson fá smá samkeppni. Ég er eins og er áskrifandi af sýn,fjölvarpinu og bíórásinni. Mér finnst algjör óþarfi að vera áskrifandi af stöð 2 eina það sem ég eina af stöð 2 eru Friends þættirnir en það er...

Gin og klaufaveiki á Íslandi? (1 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Ég var núna nýlega í Gin og klaufaveikilandinu Englandi og ég var búinn að heyra að maður þyrfti að stíga oní eitthvað sótthreinsiefni áður en maður kæmi til Íslands aftur en svo var ekki. Ég fékk að ganga þarna í gegn eins og ekker væri og þetta kom mér mikið á óvart. Þannig að ég spyr er Gin og klaufaveikinn ekki kominn til Íslands eða á leiðinni. Við verðum að gera eitthvað í þessum málum! Ef að Gin og klaufaveikin myndi koma hingað til lands þá væri hún ekki lengi að tortíma fullt af...

Jackass verður sýndur (3 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Hinn gífurlega skemmtilegi þáttur Jackass verður sýndur í sumar á Skjá einum. Ég sendi Skjá einum póst áðan og spurði þá afhverju þeir hefðu hætt við að sýna Jackass og ég fékk það svar til baka að það ætti að fara að sýna þá í sumar. Nánar tiltekið 7.júní klukkan 20:30. Þetta eru ekkert annað en góðar fréttir fyrir sjónvarpsáhorfendur enda er Jackass frábær þáttur. Skjár ein voru byrjaðir að auglýsa hann á fullu í vetur en síðan þegar að það átti að fara að sýna hann þá var skyndilega hætt við.

Vitið þið um einhvern draumaliðsleik á netinu? (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Veit einhver um einhvern draumaliðsleik fyrir utan Vísir.is á netinu?

Hvernig er leikmannaskipta fyrirkomulagið í NBA? (4 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum
Þarf ekki að borga neina peninga fyrir leikmenn í NBA? Væruð þið til í að segja mér hvernig þessum málum er háttað?

Afhverju eru vellirnir alltaf hálf tómir á Ítalíu? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Alltaf þegar maður horfir á ítalska boltan tekur maður eftir því að stúkurnar eru aldrei fullar. Afhverju er það? Er fótbolti ekki vinsæll á Ítalíu? Í þeim leikjum sem maður sér á Englandi eða Spáni þá eru vellirnir allveg smekk fullir en á Ítalíu eru vellirnir aldrei fullir. Hver er ástæðan?

Er ekki hægt að velja draumalið einhversstaðar? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Vitið þið um einhvern stað á netinu þar sem er hægt að velja draumalið fyrir íslensku deildina. Verður eitthvað á Vísir.is eða draumadeildin.is?

Er ítalska deildin sú sterkasta í Evrópu? (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Hvaða grínisti spurði að þessu? Að sjálfsögðu er hún ekki sú sterkasta í Evrópu. Til að vera sterkasta deildi í Evrópu þarf hún að geta eitthvað. liðin í Ítölsku deildinni geta ekki neitt. Ef þau gætu eitthvað þá myndu liðinn í Ítölsku deildinni ná einhverjum árangri í Evrópukeppninni. En þau hafa ekki gert það. Það er ekki spurning í mínum huga hvaða deild í Evrópu er sú sterkasta það er annaðhvort spænska eða enska deildinn.(sennilega sú spænska vegna þess að það eru mörg góð lið þar en...

Ronaldo (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Nú er ekki langt í það að Ronaldo fari að sjást á fótboltavellinum aftur hvernig haldið þið að hann eigi eftir að verða? Á hann eftir að ná toppnum á ferili sýnum eða er toppnum náð hjá honum? á hann eftir að meiðast aftur? er ferillinn búinn hjá honum? Segðu okkur þitt álit á SNILLINGNUM Ronaldo

Afhverju hættu Skjár 1 við að sýna Jackass? (9 álit)

í Tilveran fyrir 23 árum
Getur einhver sagt mér afhverju Skjár 1 hætti skyndilega við að sýna Jackass þættina? Skjár 1 var búinn að auglýsa þessa þætti á fulluog mér var farið að hlakka all verulega til að horfa á þessa þætti en síðan hættu þeir allt í einu við. Ég horfði á einn svona þátt á MTV og þetta eru geðveikir þættir.

Hafið þið að láta frestað leik eða rekið dómara? (8 álit)

í Manager leikir fyrir 23 árum
Hafið þið einhverntíman látið fresta leik eða kvartað undan dómara og látið reka hann.

Hvenær byrjar deildin? (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Getur einhver sagt mér hvenær deildin byrjar í sumar.

Man.Utd búið að ganga frá kaupum á Nistelroy. (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Man Utd gekk í dag frá kaupum á Hollendningnum Ruud Van Nistelroy fyrir 19 milljónir punda. Nistelroy gerði fimm ára samning við Manchester United en hann kemur samt ekki fyrr en 1.júlí í sumar.

Hvað var Lewis að spá? (0 álit)

í Box fyrir 23 árum
Lennox Lewis átti skilið að tapa bardaganum í nótt. Hann var alltof kærulaus að æfa og hann mærri til Suður-Afríku bara tíu dögum áður en bardaginn átti að hefjast sem er allt of lítill tími til að aðlagast aðstæðum. Hann var alltof þungur og álit mitt á Lennox Lewis hrapaði gjörsamlega eftir bardagan í nótt. Ef hann væri sannur meistari myndi hann æfa eins fyrir alla bardaga en hann játaði því að hann hefði æft betur ef hann hefði verið að fara keppa við Tyson.

Spurning til JohnnyB. (3 álit)

í Manager leikir fyrir 23 árum
Hvenær kemur þessi íslenski CM sem þú segist vera að gera og hvar verður hægt að fá hann?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok