Ég hef verið að velta því fyrir mér í smá tíma hvar ég gæti mögulega komist í upptökur af gömlum stjörnuleikjum. Málið er það að mér langar mjög að sjá m.a. stjörnuleikinn sem var í Orlando hérna um árið þegar menn eins og Jordan og þessir karlar voru upp á sitt besta. Á sínum tíma átti maður þetta en var of short-minded til að geyma þetta. Er einhver sem veit hvort maður geti nálgast þetta á netinu einhvernstaðar eða jafnvel keypt þetta í einhverjum netverslunum?