Hver finnst ykkur vera efnilegasti leikmaður Íslandssmótsins? Mér finnst það án efa vera Ólafur Ingi Skúlason hjá Fylki. Honum var boðinn samningur hjá Tottenham þegar hann var aðeins 16 ára gamall og það segir nú dálítið um getu drengsins og nú nýlega voru Arsenal menn á eftir honum og hann fór út til þeirra til reynslu í viku og það gekk allt vel og sagt var að Arsenal hefði boðið í kauða en ekki vildu Fylkismenn taka því boði. Ég held að Ólafur eigi eftir að sýna góða takta á Íslandssmótinu í sumar og hann á án efa eftir að gera góða hluti í framtíðinni.