Hinn gífurlega skemmtilegi þáttur Jackass verður sýndur í sumar á Skjá einum. Ég sendi Skjá einum póst áðan og spurði þá afhverju þeir hefðu hætt við að sýna Jackass og ég fékk það svar til baka að það ætti að fara að sýna þá í sumar. Nánar tiltekið 7.júní klukkan 20:30. Þetta eru ekkert annað en góðar fréttir fyrir sjónvarpsáhorfendur enda er Jackass frábær þáttur. Skjár ein voru byrjaðir að auglýsa hann á fullu í vetur en síðan þegar að það átti að fara að sýna hann þá var skyndilega hætt við.