Ég styð mótmælin. Það var alveg brilliant hugmynd að gera þetta. Það er bara þannig í okkar þjóðfélagi, sem er þjakað af lífsgæðakapphlaupinu, að mannslíf fara ekki að skipta máli fyrr en þau eru verðlögð. Sick!!! Og við þurfum aðgerðir en ekki endalausar umræður. Það er líka skrýtið að hugsa til þess að um leið og viðskipti og peningar eru komin í málið sbr. allt tjónið hjá Flugleiðum, þá verður allt vitlaust. Öll mannslífin eru greinilega ekki nóg til að ná fram úrbætum.