FEEDING YOUR EGO

Í gegnum næringarsondu
gef ég þér að borða.
- orð sem upphefja þig
í hæstu hæðir.

Þú finnur ekki alltaf
rétta bragðið, skilur ekki.
Í laun fæ ég svelti,
þarf sjálf að finna mér mat.

Þegar ég bið þig
þá áttu smá bita
en hann seðjar ekki
sálina mína.

Jú, þér líkar við mig
en silly ég á að vita það,
- því annars myndirðu
hætta að umgangast mig.

Hvað vil ég að þú segir/gerir?
Fullt, fullt af orðum streyma.
Ég vil að þú hafir mig á heilanum
ég vil heyra og finna það.

Þú skuldar mér ekkert
en samt vil ég þóknun
Ég vil að þú saknir mín
eins og ég sakna þín!

Ekki reyna að skilja mig
- þú færð bara hausverk.
En eitt skal ég segja þér
það er bara til eitt eintak af mér!

Skil hintið og dansa við lagið,
aldrei sama tilfinning.
Vil allt þegar það er ekki falt
en ekkert á útsölu.

Minn mesti ótti - vera ein
í fangelsi tilverunnar
sem ég ber sjálf ábyrgð á,
skrautmunur á hillu.