Nákvæmlega, ég held að eftir því sem við fáum meir útborgað því meira eyðum við, kaupum dýrari bíla, dýrari hús og svo framvegis. Ég og kærastinn keyptum hús fyrir tveimur árum, áttum fyrir útborguninni og erum með 6 milj. í lífeyrissjóðslánum, af þeim erum við að borga tæplega 60 þús. á mánuði. Við erum á eldri bíl og borgum bílalán af honum á 13 þús. Hiti, rafmagn og fasteignaskattar eru um 15-20 þús. á mánuði. Sími og Internettenging er um 10 þús. Þetta gerir um 100 þús. á mánuði í fastar...