Loksins Loksins loksins ;)

Kisan mín var að eignast kettlinga áðan :) Þeir eru ekkert smá sætir. Ég vissi það í morgun að það væru að koma kettlingar í dag því að hún var búin að elta mig út um allt og átti ég bara AÐ SITJA hjá henni og klappa henni :). Ég var orðin soldið smeik á milli fyrsta og kettling nr 2 því það leið svo langt á milli en loksins kom hann.
Kettlingur númer eitt er grábröndóttur-svona eins og Whiskas kettlingurinn
kettlingur númer tvö er alveg grá en verður sennilega líka smá bröndótt- urrrrrr ógisslega sæt
kettlingur númer þrjú er grá og hvít og með bröndótt andlit- æðisleg

sumsé alveg fullkomnir.

Annars er annað sem ég hef verið að hugsa um lengi og það er það að þegar ég valdi mér kettling fyrst fannst mér pínu leiðinlegt að fá ekki að fylgjast með honum alveg frá fæðingu…. Það hefði verið gaman að taka myndir og svoleiðis :)

Ef einhver hér vill fá sér kisu og langar að fá að fylgjast með frá byrjun… kettlingarnir fara ekki frá mér fyrr en eftir a.m.k. tvo mánuði… þá megið þið hafa samband við mig og kíkja á þá ;)

kær kveðja

aza amma