Þá er komið að tíundu göngunni. Við höfum verið ansi dugleg að auglýsa gönguna í gæludýrabúðum og öðrum hundaeigendum, þannig að það ætti að fjölga í þessari göngu.
Gangan verður semsagt uppi á Rauðavatni núna Miðvikudaginn 12. Júní kl 19:30

Fyrir þá sem eru ekki með það á hreinu hvaða leið er farið þá er hér örlítil lýsing:

Keyrt útaf hringtorginu og út malbikaða vegin, þegar malbikið endar á að beygja til vinstri og keyra þann veg útað enda, þar eru bílastæði og göngustígar.

Hittumst Hress :)