Er kötturinn heilbrigður??? Ef kettlingurinn sem þú tekur er þegar sjúkur, er óvíst hvort hann nái fullri heilsu á ný og meðferð getur verið kostnaðarsöm. Heilbrigður kettlingur er með skýr og tær augu, hreinar nasir og mjúkan og hreinan feld. Ef kisi litli er síhnerrandi, með augnleka eða það rennur úr nösum hans er líklegt að hann sé með öndunarfærasýkingu. Ef þriðja augnlokið (himna niðri í augnkróknum nær trýninu) er sýnileg eða feldurinn er mattur og þurr eru það einnig einkenni á veikindum. Skítug eyru geta verið einkenni á sýkingu með eyrnamaur eða bakteríum og horaðir kettlingar með mikla vömb eru líklegast með mikla ormasýkingu. Ef þú ert í einhverjum vafa, fáðu þá að láta dýralækni skoða kettlinginn áður en þú ákveður að taka hann. Gæta þarf síðan þess að fara með köttinn reglulega í skoðun til dýralæknis, a.m.k. einu sinni á ári eftir að kettlingurinn þarf að gera marga hluti og er ráðlagt að ormahreinsa köttinn á 3-4 mánaða fresti ef kisi er mikið úti við en annars er nægjanlegt 1-2x á ári. Grunnbólusetning gegn kattainflúensu og kattafári fer fram 2svar í fyrsta skipti, með 4 vikna millibili og síðan er bólusett árlega einu sinni. Ef um loðinn kött er að ræða, þarf að kemba honum daglega svo ekki myndist flókar en snögghærðir kettir þurfa minni feldhirðu. Svo þarf að íhuga hvað skal gera þegar kisi nær kynþroska. Kynþroska er oftast náð við 6-8 mánaða aldur en getur verið breytilegt eftir tegund og eftir því á hvaða tíma ársins kettlingurinn er fæddur. Því miður er það útbreiddur misskilningur að læður þurfi að eiga kettlinga einu sinni á ævinni. Það er einungis til að auka á vandann hvað varðar fjölda heimilislausra katta og aflífanir á óæskilegum kettlingum ár hvert. Hægt er að setja læðu á pilluna eða gera á þeim varanlega ófrjósemisaðgerð og högnar eru geltir. Samtímis er ráðlegt að láta merkja kettina í eyrun með húðflúri. Kettir eiga alltaf að bera ól með merkispjaldi þegar þeir eru utandyra og koma má í veg fyrir nágrannadeilur með því að takmarka útivist katta þannig að þeir séu ekki að ónáða aðra íbúa hverfisins með næturbrölti sínu. Að eiga kött er skuldbinding og enginn ætti að fá sér þetta skemmtilega heimilisdýr nema vera tilbúinn til að axla þá ábyrgð sem því fylgir.