Kötturinn minn hafði oft pissað og skitið annars staðar en í kassann sinn frá því við fengum hann og var búinn að gera þetta í þrjú ár. Þegar við fórum að kaupa kattasand sem heitir Ever Clean hefur hann ALLVEG hætt þessu!(snobbkisi) útrúlegt, ég mæli sko með þessum sandi fyrir ykkur sem hafið þetta vandamál(þ.e.a.s. sem eiga kisur sem hafa þetta vandamál:)

Okkur hafði alltaf verið sagt að kettir sem byrjuðu á þessu myndu aldrei hætta þessu en gátum bara ekki fenigð af okkur að láta hann fara eins og okkur þykir vænt um hann. Og nú er hann bara hættur þessu!

Þessi sandur er kannski frekar dýr en endist miklu lengur því hann er svo fínn(þá er ég að meina fínn eins og andstaðan við grófur) að maður getur bara tekið allt með skóflu alla vikunna án þess að skipta allveg um sand. Svo eiðir hann líka lyktinni að miklu leiti. Við keyptum hann fyrir svona fimm vikum og það er enn heilmikiið eftir!
Held hann fáist í flestum dýrabúðum og kannski matvöruverslunum en ég veit það ekki alveg.