Takk kærlega fyrir svörin. Við skýrðum hana Vicky. Hún er svoddan nornaköttur að þetta passar henni rosalega vel. Við vildum hafa þetta eitthvað stutt því hinir kettirnir okkar heita Púki og Tanja og það er miklu auðveldara að skamma ketti með stutt nöfn ;)
Þá eru komin nöfn á alla kettlingana okkar. Þeir heita semsagt: Loki, Hnoðri, Vicky og Rósa. Við ætlum að halda Vicky eftir og fá svo læðu úr öðru goti sem er alveg hvít. Þá eigum við semsagt 4 ketti, 3 læður og einn fress :)
Ég ætla svo að fá vin minn til að koma í heimsókn í vikunni og taka myndir af þeim öllum og pósta hérna á Huga…þá fáið þið að sjá þau öll :)
Kv Cat Lady<br><br>Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.