Ja, ég hef nú enga trú á því að þú þurfir meira en svona “ríkisfjölvitamíntöflu”, nema þá að þú lifir á próteindufti og hitaeiningasjeikum. En allavega. Eina sem þú gætir hugsanlega þurft auka af væru vatnsleysanlegu vítamínin, B og C. Auðvelt er fyrir þig að taka eina fjöl, eina C og eina B. Fituleysanlegu vítamínin, A og D, eru lífshættuleg í of stórum skömmtum, einkum ef þau eru ofnotuð í langan tíma. Þess vegna fylgist lyfjaeftirlitið með þessu.