Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: prótíndrykkir

í Heilsa fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það er ekkert að skyrdollu. Pointið var ekki að undanrenna væri eitthvað betri en annað, heldur að þessi andskotans próteinduft eru rándýrt og óþarft drasl. Það er enginn vandi að fá meira en nóg prótein úr venjulegum mat.

Re: Ráð

í Heilsa fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það getur engin tilraun fundið mun á 5-10 eða 8-12 hvað vöðvastækkun varðar. Það er útilokað að það sé mælanlegur munur á þessu tvennu. Ástæðan fyrir því að ég mæli með færri repsum er tvíþætt. Annars vegar, þá eiga byrjendur oft erfitt með að halda fullri einbeitingu í 10-12 endurtekningar. Þetta hef ég margreynt á sjálfum mér og öðrum og margir sérfræðingar eru sama sinnis. Hnébeygja og réttstöðulyfta t.d. eru tæknilega vandasamar lyftur sem geta verið hættulegar ef einbeitingin fer að...

Re: Lyftingar og ljótir vöfðar

í Heilsa fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ekki bera fullmikil einföldun, heldur einfaldlega bull! Nei, Bull með stóru Béi. Þetta er svo mikið bull og þvæla að ég veit ekki hvar ég á að byrja svo ég nenni því ekki. Þetta er einhvers konar 1950 hindurvitni sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Vöðvar geta ekki styttst (nema við einhvers konar skurðaðgerð) eða lengst (nema við eðlilegan líkamsþroska). Þeir geta bara þykknað eða mjókkað.

Re: Ráð

í Heilsa fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það er vel hægt að ná miklum og góðum árangri bæði í styrktarþjálfun, vöðvaaukningu og fitumissi án þess að nota kreatín, próteinduft eða “orkuboost dæmi”. Við skulum hafa það á hreinu. Hins vegar er mikilvægt að borða mikið af góðum og hollum mat ef ætlunin er að auka vöðvamassa. Það er enginn vandi að fá meira en nóg prótein úr venjulegu fæði án fæðubótarefna. Mjólk er góð, td. Hvað “kassann” varðar, þá eru verstu mistök sem byrjendur gera að fara að sérhæfa sig að óþörfu. Mikilvægast...

Re: Lyftingar og ljótir vöfðar

í Heilsa fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hvað ertu eiginlega að bulla? Ég skil ekki aukatekið orð af þessu. Hvar lærðirðu íslensku? Ertu með eða móti lyftingum? Með eða á móti púli? Með mörgum endurtekningum eða móti? Með próteindrykkjum eða á móti? Heldurðu að það sjá í alvöru hætta á því að einhver fái of mikla “ljóta vöðva” svona óvart? Eins og það gerist svona bara án þess að maður taki eftir, svona í svefni eða eitthvað? Textinn hjá þér er svo sundurlaus að það er engin leið að skilja hvað þú ert að fara.

Re: "Man Boobs"

í Heilsa fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta er leiðinlegur, en afar algengur fylgifiskur gelgjunnar hjá drengjum á þínum aldri. Offita gerir vandamálið verra. Því miður geturðu ekkert gert við hormónabreytingunum sem eru aðal orsökin nema að bíða. Þú getur huggað þig við það að það sama mun hrjá bekkjarfélagana á næstu árum. Ef um offitu er að ræða hjá þér, þá er þetta hefðbundna: hreyfa sig meira og éta minna. Einfaldast og áhrifaríkast er að sleppa gosi (og sælgæti) og ganga reglulega. Það ætti að duga vel á þínum aldri. Öfgar...

Re: prótíndrykkir

í Heilsa fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég nota einn sem er mjög ódýr og fæst í öllum matvöruverslunum. Hann heitir undanrenna og einn lítri af svoleiðis gefur 35g af úrvals próteini. Check it out now!

Re: teygur, styrktaræfingar?¨

í Heilsa fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ái. Þetta hljómar ekki vel. Í fyrsta lagi verðurðu að hvíla þig í smátíma. Þú gerir sjálfri þér engan greiða með því að pína þig þrátt fyrir álagsmeiðsli. Langhlaup eru mjög erfið fyrir hné, kálfa og ökkla og þarf að venjast þeim smám saman. Allavega, þá er hér á hlaup.is listi yfir greinar sem vanir hlauparar, þar á meðal læknar, hafa skrifað um svona meiðsl eins og þú átt við að stríða. Kíktu á það. Ég gæti líka trúað að þú þyrftir betri skó. Almennilegir hlaupaskór eru dýrir. Bestu...

Re: Varúð - Aqua Detox er lygi og blekking.

í Heilsa fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég spurði neytendasamtökin. Þeir segja ekki. Ég hélt reyndar að það væri ólöglegt að ljúga beint í auglýsingum, en svo virðist ekki vera.

Re: uppbygging

í Heilsa fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þú ert ekki alveg að skilja mig, fantasia. Fyrir algeran byrjanda virkar allt. Alveg sama hvernig þú hreyfir þig eða hvernig þú æfir, allt er betra en hreyfingarleysið. En það er ekki þar með sagt að það geri gagn endalaust. 20x20kg í t.d. hnébeygju fyrir mig (og sennilega flesta) er einfaldlega gagnslaust nema sem upphitun. Já, það er rétt að byrjandi þarf að byrja rólega, höfum það á hreinu. En við erum bara að tala um fyrstu 5 æfingarnar eða svo, svo má fara að taka sæmilega á því. Til að...

Re: uppbygging

í Heilsa fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Nei. Byrjendur ættu aldrei að taka fleiri en 10 reps af æfingum. Bekkpressa, réttstöðulyfta og hnébeygja eru tæknilega flóknar lyftur sem þarfnast einbeitingar. Fullkominnar einbeitingar. Hún byrjar hinsvegar að minnka uppúr 8 repsum og þá eykst verulega hættan á formgöllum og slysum. 20 sinnum 20kg er gagnslaust nema kannski á magaæfingum. Hámarkið mitt í réttstöðulyftu er í kringum 160kg. Einu sinni í mánuði tek ég max æfingu og enda þá einmitt seríu á 150kg x 3. En ég er búinn að lyfta...

Re: Bjór

í Heilsa fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Það eru 28 kcal/100g af Lite bjór, ekki 28 kcal per dós. Þar af leiðandi 5 sinnum það í hálfs lítra dós eða 190 kcal.

Re: Bjór

í Heilsa fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Samkvæmt næringarefnatöflum Manneldisráðs þá inniheldur bjór 35-46kcal/100g, eftir áfengisinnihaldi, en langmestur hluti hitaeininga í bjór eru í áfenginu. Það þýðir 175-230 kcal í 0.5 lítra bjórdós. Þess má geta að alkóhól hefur 7 hE/g, kolvetni og prótein 4 og fita 9.

Re: uppbygging

í Heilsa fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Nei, alls ekki. Ef viðkomandi getur á annað borð lyft 150kg þrisvar, sem er nú talsvert og ekki á færi byrjenda, þá gerir það langtum, langtum meira gagn en að lyfta 30kg 100 sinnum. Það er ekki einu sinni hægt að bera það saman. Hins vegar, eins og ég sagði, er best að fara milliveginn. Ég stend við að 5-8 endurtekningar eru bestar fyrir flesta. Fleiri en 8 endurtekningar í tæknilega krefjandi æfingum eins og hnébeygju hafa oft í för með sér að einbeiting minnkar þegar líður á settið. Þetta...

Re: uppbygging

í Heilsa fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ef ég má vera óssamála þeim sem skrifað hafa á undan mér þá tel ég alls enga þörf á því að skipta líkamanum í 4 svæði og heldur ekki á því að lyfta 4 sinnum í viku. Því síður þarftu að éta fæðubótarefni og alls ekki taka stera. Það sem ég mundi mæla með fyrir þig (alla reyndar nema þá sem hafa sérstakar, sérhæfðar þarfir) er: <b><u>Æfa allan líkamann með frjálsum lóðum 2-3 sinnum í viku, ekki meira en 60 mínútur í hvert sinn.</b></u> <b>Prógramm:</b> Hnébeygja (squat) Réttstöðulyfta...

Re: Iwama

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég hélt að ég hefði verið eini maðurinn í heiminum sem hefði átt Iwama. Ég keypti mér Iwama bassa (Fender Precision kópíu) í hljóðfæraverslun á Laufásvegi árið 1983. Seldi einhverri stelpu hann árið '90. Svo rakst ég á hann aftur um daginn í höndunum á strák sem heitir Gunni og var að spila með Palindrome. Bróðir hans hafði fundið hann skemmdan á haugunum. Allavega þá hef ég aldrei fundið nein merki um það á vefnum að fleiri en ég hafi átt þessa hljóðfæratýpu. Kannski á japönsku, en ég kann...

Re: Scalar í tabi??

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hérna er dúr skalinn, grundvöllur allrar tónfræði, með grunntón á 5. eða 6. streng: Rót á 5. streng: –|–4–|—–|–5–|—–|–6–|– –|–1–|—–|–2–|—–|–3–|– –|—–|–6–|—–|–7–|–1–|– –|—–|–3–|–4–|—–|–5–|– –|—–|–7–|–1–|—–|–2–|– –|–4–|—–|–5–|—–|–6–|– Rót á 6. streng: –|—–|–7–|–1–|—–|–2–|– –|–4–|—–|–5–|—–|–6–|– –|—–|–2–|—–|–3–|–4–|– –|—–|–6–|—–|–7–|–1–|– –|—–|–3–|–4–|—–|–5–|– –|—–|–7–|–1–|—–|–2–|– Til að fá úr þessu 5 tóna dúrskala (pentatonic major) sleppirðu ferundinni (4) og dúr-sjöundinni (7). Hann er þá...

Re: Gítarskalar

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hérna er dúr skalinn, grundvöllur allrar tónfræði, með grunntón á 5. eða 6. streng: Rót á 5. streng: –|–4–|—–|–5–|—–|–6–|– –|–1–|—–|–2–|—–|–3–|– –|—–|–6–|—–|–7–|–1–|– –|—–|–3–|–4–|—–|–5–|– –|—–|–7–|–1–|—–|–2–|– –|–4–|—–|–5–|—–|–6–|– Rót á 6. streng: –|—–|–7–|–1–|—–|–2–|– –|–4–|—–|–5–|—–|–6–|– –|—–|–2–|—–|–3–|–4–|– –|—–|–6–|—–|–7–|–1–|– –|—–|–3–|–4–|—–|–5–|– –|—–|–7–|–1–|—–|–2–|– Til að fá úr þessu 5 tóna dúrskala (pentatonic major) sleppirðu ferundinni (4) og dúr-sjöundinni (7). Hann er þá...

Re: Bassi

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Náðu þér í ókeypis bassakennslubók hjá James Wheat Martin: http://www.wheatdesign.com/bassbook/

Re: Borgaralegar fermingar - Fyrir hálfvita !

í Deiglan fyrir 22 árum
Látið þennan Logaritmahálfvita ekki æsa ykkur upp. Hann er bara að trolla. Líttu á fyrri greinar fíflsins til að staðfesta það.

Re: Tónfræði á netinu

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 1 mánuði
<a href="http://www.musictheory.net/“>Music Theory Net, kennsluglærur, afbragð.</a> <a href=”http://teoria.com“>Teoria.com, Uppflettirit með öllu, alfræðibók tónfræðinnar</a> <a href=”http://www.guitarnoise.com/theory.php“>Safn afbragðsgreina á Guitarnoise.com sem leiða byrjandann gegnum krákustíginn.</a> <a href=”http://zentao.com/guitar/">Gítarkennslusíða Stone Dragon með fullt af tónfræði.</a>

Re: Ég er að leita af upptökuforriti !!!!

í Rokk fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ekki, spurning, það er Audacity, frítt og open source: http://audacity.sourceforge.net/

Re: Skilngingsleysi??

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hann dó 32 ára vegna þess að hann var fyllibytta. Ef þú heldur að menn séu búnir með sköpunarskammtinn á þeim aldri þá áttu margt ólært. Að vísu eru fyllibyttur oft búnar að drekka frá sér allt vit löngu áður en þær drepast. Má vera í hans tilfelli.

Re: Skilngingsleysi??

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Elsku kallinn minn, ég er sennilega búinn að gleyma talsvert meiru um John Bonham en þú hefur nokkurn tíma vitað. Ég var 18 ára þegar hann drapst og man vel eftir því þó að hann og hans hljómsveit væri ekki lengur í neinu uppáhaldi hjá mér. Var það þegar ég var svona 12-13 ára. Hann var ekkert slæmur trommari, full þunglamalegur fyrir minn smekk, en hrikaleg fyllibytta.

Re: Skilngingsleysi??

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Út af fyrir sig finnst mér leiðinlegt hvað ungir tónlistarmenn fá fá tækifæri hér og þar, enda “frekar ungur” tónlistarmaður sjálfur. Hins vegar má benda á það að John Bonham varð “aldrei stór”. Hann drukknaði blindfullur í eigin ælu á unga aldri. Það er ef til vill þessi neikvæða hlið tónlistarbransans sem fælir foreldra og ráðamenn frá. Hafðu það gott og gangi þér vel. Taktu þér bara einhverja aðra poppara en John Bonham til fyrirmyndar. Það þarf líka að þroska líkamann. Fleira er íþrótt...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok