Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Úrgangsefni?

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þetta er rétt, nema að C vítamín hefur engin áhrif á lit þvagsins. Það er B2 vítamín (riboflavin) sem getur gert þvag skærgult. Mikið er af því B vítamín töflum og ýmsum fjölvítamíntöflum.

Re: Veit einhver hvað þetta er ?

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hljómar eins og mígreni. Farðu til læknis.

Re: hjálp við laghæfa mola

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Munurinn á laghæfum moll og jazzmoll er sá að klassískur laghæfur moll verður að venjulegum moll á niðurleið, en jazzmoll er eins upp og niður. Annars er jazzmoll eins og dúr nema með moll þríund (b3) í stað dúr þríundar. Laghæfur moll: 1 2 b3 4 5 6 7 8 b7 b6 5 4 3 2 1 A H C D E F# G# A G F E D C H A Jazzmoll: 1 2 b3 4 5 6 7 8 7 6 5 4 3 2 1 A H C D E F# G# A G# F# E D C H A Hins vegar mæli ég sterklega með því að þið veltið fyrir ykkur og reynið að komast að tilgangi hækkuðu sjöndunarinnar í...

Re: Hlutföll yfir daginn..?

í Heilsa fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég mæli ekki út það sem ég borða á nokkurn hátt og hef aldrei gert. Þegar ég er að byggja mig upp ét ég mig pakksaddan. Þegar ég er að skera mig niður ét ég mig ekki pakksaddan. Svo einfalt er það nú og hefur virkað vel hingað til. Þeir sem spyrja um svona lagað eru venjulega að reyna að megra sig. Prótein er meira seðjandi en kolvetni og fita og deyfir hungurtilfinninguna. Þeir sem eru að reyna að byggja sig upp (væntanlega af vöðvamassa, ekki fitu), þurfa líka yfir meðallagi af próteini,...

Re: Hlutföll yfir daginn..?

í Heilsa fyrir 21 árum
Prótein 40% Kolvetni 30% Fita 30%

Re: Ein spurning

í Heilsa fyrir 21 árum
Já, armbeygjur ef þú getur ekki eða vilt ekki gera bekkpressu. Eftir tiltölulega skamman tíma ættirðu að geta meira en 10-20 armbeygjur í einu og eftir það gera þær minna og minna gagn. Ef þú getur 30 eða meira gera þær lítið sem ekkert fyrir þig og þá þarf að breyta þeim til að gera þær erfiðari (þyngja). Til að láta þær taka meira á brjóstvöðvum (og minna á þríhöfða) má breikka bilið milli handanna. Til að gera þær erfiðari má hækka undir fótunum. Því hærra með fæturna, því þyngri er...

Re: tvær spurningar :)

í Heilsa fyrir 21 árum
Helvíti, skemmdust hjá mér linkarnir. http://www.thieme-connect.com/DOI/DOI?10.1055/s-2003-45226 http://www.ncbi.nlm.nih.gov/entrez/query.fcgi?cmd=Retrieve&db=pubmed&dopt=Abstract&list_uids=1293415 http://www.ncbi.nlm.nih.gov/entrez/query.fcgi?cmd=Retrieve&db=pubmed&dopt=Abstract&list_uids=9459533 http://www.ncbi.nlm.nih.gov/entrez/query.fcgi?cmd=Retrieve&db=pubmed&dopt=Abstract&list_uids=1645212 http://www.ncbi.nlm.nih.gov/entrez/query.fcgi?cmd=Retrieve&db=pubmed&dopt=Abstract&list_uids=2372852

Re: tvær spurningar :)

í Heilsa fyrir 21 árum
Ekkert mál. http://www.thieme-connect.com/DOI/DOI?10.1055/s-2003-45226 [urlhttp://www.ncbi.nlm.nih.gov/entrez/query.fcgi?cmd=Retrieve&db=pubmed&dopt=Abstract&list_uids=1293415[/url] [urlhttp://www.ncbi.nlm.nih.gov/entrez/query.fcgi?cmd=Retrieve&db=pubmed&dopt=Abstract&list_uids=9459533[/url] [urlhttp://www.ncbi.nlm.nih.gov/entrez/query.fcgi?cmd=Retrieve&db=pubmed&dopt=Abstract&list_uids=1645212[/url]...

Re: tvær spurningar :)

í Heilsa fyrir 21 árum
Rannsóknir styðja ekki þessa fullyrðingu þína. Geturðu bent mér á slíkar rannsóknarniðurstöður?

Re: tvær spurningar :)

í Heilsa fyrir 21 árum
Ef þú mundir fær armbeyjur og magaæfingar fram og gera þær á morgnana, þá færðu mun meira úr þeim heldur en á kvöldin. Á kvöldin er líkaminn þreittur og því kemur ekki eins miki úr æfingunum. En á morgnana er hann úthvíldur og fær mun meira út æfingunum. Vitleysa. Ég æfi kraftlyftingar og er uþb 10-20% sterkari á kvöldin en á morgnana. Þó er ég morguntýpa og vakna alltaf fyrir 7 og er mættur í vinnuna fyrir 8. Þetta á við um flesta sem æfa. Líkaminn er ekki kominn verulega vel í gang fyrr en...

Re: tvær spurningar :)

í Heilsa fyrir 21 árum
Sko, 8 kílómetrar 5 sinnum í viku eru alltof mikil hlaup fyrir óvanan. Það er garanteruð leið til að brenna út og gefast upp. Vissulega er gott að hreyfa sig, en ekki ofkeyra í byrjun. Ganga er góð vegna þess að henni er auðvelt að halda áfram um tíma án þess að þreyta sig of mikið. Haltu áfram á skautabrettinu. Þú vilt stefna að vera uþb 500 hitaeiningar undir viðhaldi á dag og missa um 1/2 kíló af fitu á viku. 500 hitaeiningar er ekki mikið og flestum nútímaunglingum nægir að hætta að...

Re: Kreatín? Aldur?

í Heilsa fyrir 21 árum
Ef þú ert að byggja upp þá skiptir engu máli hversu fitandi mjólkin er. Það er bara betra. Fleiri hitaeiningar -> meiri vöðvar. Ef þú ert að skera þig niður þá drekkurðu bara undanrennu í staðinn. Já, já, allt í lagi, allir þekkja fullt af fólki sem nær fullt, fullt af árangri á kreatíni. 14-16 ára unglingar taka alltaf miklum framförum með líkamsþjálfun, eðli málsins samkvæmt. Þar skiptir kreatín nákvæmlega engu máli til eða frá. 14-16 ára sveinbarn er þjálfanlegasta kvikindi sem til er í...

Re: Kreatín? Aldur?

í Heilsa fyrir 21 árum
kreatín hjálpar við brennslu, eykur sem sagt efnaskipti Bull. Finndu eina grein sem styður þessa staðhæfingu. Kreatín eykur vissulega styrk og þol eitthvað örlítið, en ekki brennslu. reyndar mindi ég ekki mæla með að drekka mikla mjólk í þjálfun…. Hvers vegna í ósköpunum ekki? Bentu á einhverja rökræna ástæðu til að forðast mjólk aðra en mjólkursykursóþol. Annars var ég ekki að segja að kreatín væri gagnslaust. Þú ert að misskilja mig. Af hverju eru fæðubótarefni það fyrsta sem fólki dettur...

Re: um könnun

í Heilsa fyrir 21 árum
Lyftingar með lausum lóðum eru miklu betri en tækjaæfingar. Það er furðulegt og óskiljanlegt að þessi bévítans tæki skuli njóta jafnmikilla vinsælda og raun ber vitni.

Re: Þreyta.....

í Heilsa fyrir 21 árum, 1 mánuði
Það bendir allt til ofþjálfunar. Það er mjög flókið að lyfta 6 sinnum í viku án þess að ofþjálfa og 4 sinnum er of mikið fyrir marga. Taktu þér viku frí eða svo og lyftu svo ekki oftar en 4 sinnum í viku framvegis.

Re: hvernig setur maður .tar.gz upp?

í Linux fyrir 21 árum, 1 mánuði
Jú, en þið vitið það að sjálfsögðu.

Re: hvernig setur maður .tar.gz upp?

í Linux fyrir 21 árum, 1 mánuði
Til að afpakka skránni gerirðu: gunzip XXX.tar.gz Síðan sprettirðu .tar skránni sundur með: tar -xvf XXX.tar Þú getur líka gert bæði í einu með (z-an verður að koma fyrst): tar -zxvf XXX.tar.gz Síðan ferðu ofan í möppuna: cd XXX … og keyrir eftirfarandi skipanir til að setja upp pakkann: ./configure make make install

Re: MPlayer vandræði:S

í Linux fyrir 21 árum, 1 mánuði
Notaðu bara gamla trixið sem maður notar til að leysa vandamál sem maður veit ekki um. Ég man ekki hvernig það er. En það virkar vel ef maður kann það.

Re: Kreatín? Aldur?

í Heilsa fyrir 21 árum, 1 mánuði
Nei, ég er líffræðingur og hef lesið hundruð greina um rannsóknir á fæðubótarefnum. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að fæðubótarefni geri ekkert sem hollt mataræði gerir ekki betur. Þú færð ekkert úr próteindufti sem þú getur ekki fengið úr mjólkurglasi eða fiskbita. Það er meira en nóg kreatín í kjöti. Bottom line: Þau eru sálræn hækja, ekkert annað. Hækjur eru ágætar ef þú ert slasaður, en hindra þig og tefja ef þú ert heilbrigður.

Re: Kreatín? Aldur?

í Heilsa fyrir 21 árum, 1 mánuði
Nei, ég er ekki einkaþjálfari. Áhugamaður um líkamsþjálfun og lífeðlisfræði. Ég lyfti í Orkuverinu og syndi eitthvað.

Re: Magavöðvar

í Heilsa fyrir 21 árum, 1 mánuði
Er það fyrst og fremst útlit magavöðvanna, “sixpakkinn” sem þú sækist eftir, eða styrkur þeirra? Fyrir útlitið er það fyrst og fremst lágt fituhlutfall sem ræður. Það byrjar að móta fyrir magavöðvum í kringum 10-12% fitu í körlum. Aðeins hærra, 15-18% í konum yfirleitt því þær safna meira fitu á rass og læri. Hér eru ýmsar góðar magaæfingar: http://www.exrx.net/Lists/ExList/WaistWt.html#anchor172895 Fyrir sterka magavöðva, en þeir eru mjög mikilvægir í ýmsum íþróttum, t.d. handbolta, þá...

Re: Kreatín? Aldur?

í Heilsa fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég er búinn að þyngjast, grennast, og styrkjast töluvert líka. Án kreatíns. Út af fyrir sig segir það ekkert án samanburðar. Ég hef svosem ekkert út á kreatín að setja sem slíkt. Eins og ég sagði áður, þá er það í rauninni eina fæðubótarefnið sem skilar einhverju og ég á sennilega eftir að nota það síðar. Það sem ég er á móti er þessi oftrú á fæðubótarefnum og trú á því að þau geri einhver kraftaverk. Það er vinnan sem skilar arði. Það er ekki hægt að stytta sér leið.

Re: Kreatín? Aldur?

í Heilsa fyrir 21 árum, 1 mánuði
Þetta er flókin spurning. Jú, kreatín er eitt af fáum (nánast það eina) fæðubótarefnum sem hefur einhver áhrif. Fyrir u.þ.b. helming fólks (þá sem eru “creatine responders”) eykur það styrk og þol eitthvað örlítið. Við erum að tala um breytingu um ca. 5%. Jú, þessi smámunur getur skipt máli fyrir íþróttamenn í fremstu röð í keppni og kreatín er löglegt og líklega hættulaust. Ég geri ráð fyrir því af spurningunni að þú sért ungur. Ég tel affarasælast fyrir ungt fólk að venja sig á holla...

Re: Bassi til sölu: Gibson epifone

í Hljóðfæri fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hmmm. Þetta er eflaust ágætur bassi, en …. Ég er bassaleikari Fræbbblanna og hef aldrei notað Gibson Epiphone. Enginn af fyrri bassaleikurum hljómsveitarinnar heldur. Það voru ég og félagar mínir sem stóðum fyrir hljómleikum Stranglers hérna um daginn og útveguðum varahljóðfæri handa þeim. JJ Burnel notaði ekki Gibson Epiphone bassa þá og hefur aldrei gert. Hitt er annað að Valli, söngvari Fræbbblanna, á og notar Gibson Epiphone gítar og er mjög ánægður með hann.

Re: Kreatín? Aldur?

í Heilsa fyrir 21 árum, 1 mánuði
Eyddu peningunum þínum í eitthvað gagnlegra. Reyndu að éta almennilega við matarborðið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok