Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Matarræði til að þyngja sig á hollan hátt.

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ja, útaf fyrir sig eru kornvörur ýmsar ríkastar af kolvetni. Má þar nefna brauð, hrísgrjón, pasta, maís og morgunkorn. Einnig má fá mikið af kolvetnum úr sumu grænmeti, td kartöflum og rófum, svo og baunum ýmiss konar. Hins vegar má deila um það hvort slík fæða sé heppilegust til að þyngja sig. Ég mundi ekki mæla sérstaklega með því, þó að auðvitað sé kolvetnarík fæða góð með öðru og þá sérstaklega ef maður hreyfir sig mikið og stundar erfiðar íþróttir. Fæða fyrir þann sem vill þyngja sig...

Re: Kraftatröll hjálp

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Bestu æfingunum? Til að gera hvað? Almennt séð mæli ég með kraftlyftingagreinunum 3: 1 - Hnébeygja (ekkert kemur í hennar stað) 2 - Réttstöðulyfta (ekkert kemur í hennar stað) 3 - Bekkpressa (eða dýfur eða standandi pressa) Að auki þarf æfingu fyrir efra bak og tvíhöfða, en kraftlyftingagreinarnar æfa þessa hluta ekki nægilega. 4 - Upphífingar (eða niðurtog eða róður (ýmis afbrigði til)) Að lokum er gott að bæta við æfingum fyrir miðju líkamans: 5 - Magaæfingar (kreppur, hnjályftur eða...

Re: Kraftatröll hjálp

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Það er nú umdeilt hvort þau virki nokkuð að ráði, en hugmyndin er sú að þau verndi mjóbakið fyrir meiðslum þegar lyft er. Sumir telja að þau kenni rétta öndun, þ.e. að spenna magann út á móti beltinu til þess að stifa af maga og mjóbak þegar lyft er. Í öllu falli ætti aðeins að nota beltið þegar hámarksþyngdir eru teknar, ekki alltaf, til að leyfa kviðvöðvum að þjálfast eðlilega og án hjálpar.

Re: Ofnæmi fyrir grænmeti og ávöxtum, hvad getur mar gert?

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Já, það er rétt, það þarf að fá nægilega af próteinum og vítamínu. Hins vegar veður uppi alls konar hjátrú um megrun eins og að þú getir haldið áfram að éta yfir þig bara ef þú étur ekki mikið af kolvetnum eða að það sé nóg bara að éta einhverjar fat-burner pillur og drasl. Sveltiviðbrögðin hafa nú ekki mikið með vítamínin að gera en jú, étirðu allt, allt of lítið þá fer líkaminn í sveltiástand og heldur dauðahaldi í alla fitu eins og hann getur. Eins og ég hef margsagt hérna þá borgar sig...

Re: Ofnæmi fyrir grænmeti og ávöxtum, hvad getur mar gert?

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Til hvers ætti ég að prófa svona rakalausan þvætting? Ef einhver rugludallur ákvæði að rauðhærðir ættu bara að borða bláan mat, af hverju ætti ég að taka mark á því? Blóðflokkamataræði er af nákvæmlega sama toga. Uppspuni frá rótum til þess að selja auðtrúa sálum bækur. Ég brýt allar þessar reglur um mataræði fyrir minn blóðflokk, eins og flestir Íslendingar og ég er sennilega með hraustustu mönnum á mínum aldri og verð aldrei veikur. Keppi í sundi og kraftlyftingum, er tæp 90 kíló og ca 10%...

Re: Flott fyrir sumarið!:)

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hvernig er þá best að ná fitunni af maganum? Til að ná fitunni af maganum verðurðu að borða færri hitaeiningar en þú brennir. Þú getur gert það annað hvort með því að borða minna eða brenna meira. Það er einfaldast að fækka hitaeiningum úr sykurríkum drykkjum, gosi, ávaxtasafa, orkudrykkjum o.þ.h. Drykkir seðja minna en fast fæði. Lyftingar brenna meira en þolþjálfun nema að þú sért mjög í mjög góðri þjálfun, keppnishlaupari eða álíka. Annars er best að gera þær æfingar sem þér finnst...

Re: Spurning um að þyngja sig.. :)

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þú þarft fyrst og fremst að vera duglegur að borða. Borðaðu allan mat, en reyndu samt að forðast of mikið sælgæti og gos. Fiskur, kjöt, mjólkurvörur, kornvörur, grænmeti og ávextir ættu að vera undirstaðan. Þú verður að éta fleiri hitaeiningar en þú brennir. Annars gerist ekkert. Fyrir byrjanda hentar best einfalt, óskipt æfingakerfi sem er byggt í kringum kraftlyftingagreinarnar 3. Æfðu sirka 3svar í viku. Ekki sjaldnar en 2svar, ekki oftar en 4 sinnum. Lærðu hnébeygju og réttstöðulyftu....

Re: Ofnæmi fyrir grænmeti og ávöxtum, hvad getur mar gert?

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
ÞETTA ER ALLT BÖLVAÐ RUGL. Ekki taka mark á einu einasta orð í þessari grein. Þetta er ekki einu sinni hjátrú, heldur helber skáldskapur frá A til Ö. Trúðu mér. Þetta blóðflokkamataræðiskjaftæði er bull.

Re: Hvenær á að æfa, eða skiptir það engu máli?

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Það skiptir ekki máli. Þú ert heldur sterkari seinni partinn og á kvöldin og getur sennilega æft heldur lengur og erfiðað meira, lyft meiri þyngdum o.s.frv. Hvort það hins vegar skilar meiri árangri til lengri tíma litið er ekki vitað. Í öllu falli er munurinn svo lítill að það tekur því ekki að hafa áhyggjur af því. Æfðu á þeim tíma sem hentar best, vinnu og skóla vegna.

Re: Ofnæmi fyrir grænmeti og ávöxtum, hvad getur mar gert?

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Næstum? Hefurðu prófað soðna gulrót (eða annað sem þú hefur ofnæmi fyrir)? Suða á að eyðileggja ofnæmisvakana.

Re: Ofnæmi fyrir grænmeti og ávöxtum, hvad getur mar gert?

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég efast um ad ég sé ad borda of mikid, ég er bara ekki ad borda thad rétta Útilokað. Megrun snýst eingöngu um að borða færri hitaeiningar en maður brennir. Allt annað er hjátrú og hindurvitni. Ef þú ert að fitna ertu að borða fleiri hitaeiningar en þú brennir, punktur. Ef þú stendur í stað ertu að borða jafnmargar. Til að þyngjast, hvort sem er af fitu eða vöðvum, þarftu að borða fleiri en þú brennir. Lyftingaþjálfun er miklu áhrifaríkari til að auka brennslu og grennast en þolþjálfun eins...

Re: Ofnæmi fyrir grænmeti og ávöxtum, hvad getur mar gert?

í Heilsa fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þetta er nú eitthvað dularfullt. Reyndar geta sumir sem eru með frjókornaofnæmi haft ofnæmi fyrir ýmsum hráum ávöxum og sumu grænmeti eins og kartöflum, en þá dugar að sjóða eða steikja ávextina eða grænmetið. Ertu viss um að þú sért með ofnæmi fyrir ávöxtum og grænmeti? Hefurðu farið í ofnæmispróf til læknis? Svo er það hitt með að grennast. Þú þarft ekki að borða ávexti til að grennast, það er bara mælt með því af heilsufarslegum ástæðum. Að “skerast niður einn 2 og bingó” er ekki rétt...

Re: Flott fyrir sumarið!:)

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það segir sig ekki meira sjálft en það að hellingur af fólki er að reyna að brenna fitu af maganum með því að gera mörg hundruð reps af alls konar magaæfingum. Þú sérð þetta fólk í hundraðavís inni á hverri einustu æfingastöð. En það þarf auðvitað ekki að “minnast á það”.

Re: Afkastaaukandi lyf og efni - II. Kreatín

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er sammála. Það er ekki nokkur ástæða fyrir ungling að taka kreatín (þó það sé frekar skaðlaust efni). Á hans aldri ætti aðaláherslan að vera á að éta nóg af hollum og fjölbreyttum mat, ekki duft og pillur.

Re: Flott fyrir sumarið!:)

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já, en ef hún vill “styrkja magann” á hún ekki að gera “fullt af magaæfingum”, heldur hæfilegan fjölda með hæfilega þyngd. Hún á heldur ekki að gera magaæfingar “á hverjum degi”, heldur gefa magavöðvunum 2-3 sólahringa hvíld eftir hverja æfingu eins og öðrum vöðvum. Og til þess að gera magann “flottari” gera magaæfingar ekkert gagn, heldur að grennast (missa fituna sem hylur magavöðvana). Þú færð 0 í prófinu.

Re: Hver er elsti hugarinn.

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
42ja. Hvers vegna?

Re: Flott fyrir sumarið!:)

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ef þú ert með fitu á maganum, vömb eða hvað þú vilt kalla það þá breyta allar heimsins magaæfingar engu um það. Aðeins að losna við fituna. Það er sjálfsblekking og bull að telja sér trú um annað. Ef þú vilt æfa magavöðana (og það er sjálfsagt að gera það) þá er rétta aðferðin til þess ekki að “gera fullt af magaæfingum á hverjum degi”. Sú aðferð skilar engu. Magaæfingar skal æfa með hæfilegri þyngd, 4-12 reps, 2-4 sett, 2-3svar í viku og ekkert 100 repsa rugl. Þar að auki æfa flestar “maga”...

Re: Flott fyrir sumarið!:)

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Til hvers á hún á að gera “fullt af magaæfingum”? Þú losnar við fitu af líkamanum í öfugri röð miðað við hvernig hún bættist á hann. Ef þú fitnar fyrst af maganum þá fer hún seinast þaðan. Magaæfingar breyta engu um það, höfum það alveg á hreinu. Það er ekki hægt að brenna fitu af ákveðnum líkamshlutum með því að æfa þann líkamshluta! Hitt er annað að hreyfing almennt getur hjálpað til við að losna við fitu og auka almenna hreysti og heilbrigði og sterkir magavöðvar eru mikilvægur hluti af...

Re: Flott fyrir sumarið!:)

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Fyrst og fremst þarf að forðast gos og sælgæti. Þar á meðal sætt kex og morgunkorn. Í sjálfu sér ætti það að vera nóg fyrir flesta til að tapa nokkur hundruð grömmum af fitu á viku. Ef það dugar ekki til, eða þú ert þegar að forðast sætindi, þá má reyna að fá sér ekki aukabita eftir kvöldmat. Ekki svelta þig. Reyndu líka að auka hreyfingu þína. Göngutúrar eru mjög góðir.

Re: Hjálp með matinn :o

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Nokkrar tillögur: Morgunverður: skyr eða hafragrautur, samlokur með kæfu, osti eða áleggskjöti, 2-3 egg, harðsoðin, linsoðin eða steikt, beikon eða annað kjötmeti, ávextir eða ávaxtasafi. Cheerios er ágætt ef þú verður að fá morgunkorn. Matartímar: fiskur eða kjöt og nóg af því, mikið grænmeti, kartöflur eða annað kolvetnaríkt, pasta, grjón eða ámóta. Ekki spara sósurnar. Milli mála: brauðsneið eða hrökkbrauð með góðu áleggi, 2-3 mjólkurglös, ávextir. Ef þú ætlar að bæta á þig vöðvum er...

Re: Spirulina

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
VIL, ekki VILL. Lastu ekki linkinn sem ég sendi í síðasta pósti? Vissulega er hlutfallslega mikið af próteini í þessu pollaslýi. En dagskammturinn, 1 teskeið eða 1 matskeið, af þessu gefur minna prótein en mjólkurglas. Ekki ætlarðu að éta 200g á dag af þessum viðbjóð? Vissulega er eitthvað af vítamínum í slýinu. En þú færð meira af vítamínum í heppilegri hlutföllum með því að éta bara venjulegan mat og nóg af grænmeti og ávöxtum. Vissulega er eitthvað af B12 vítamíni í því, sem er sjaldgæft...

Re: Spirulina

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það skiptir engu máli. Þetta eru bara placebo töflur og hafa litla líffræðilega verkun. Þær samsvara því nokkurn veginn að éta broccoli. http://www.netasia.net/users/truehealth/Spirulina.htm

Re: Sterar

í Heilsa fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Frá 15-22 ára eða svo ertu stútfullur af karlhormónum. Þetta er ákjósanlegt umhverfi til að styrkja líkamann og stælast. Láttu það nægja og láttu hitt helvítið vera.

Re: Hvað er í lagi að borga fyrir 15 ára gamlann yamaha fg400a sem að er samt mjög vel farinn?

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég sagði ekki að titillinn væri of langur hjá þér. Það var annar. Mér finnst betra að titillinn segi um hvað pósturinn fjallar en að hann segi ekki neitt eins og alltof oft er.

Re: Hvað er í lagi að borga fyrir 15 ára gamlann yamaha fg400a sem að er samt mjög vel farinn?

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég er ósammála þér. Af tvennu illu er miklu skárra að hafa góðan titil.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok