Hafðu ekki áhyggjur vinur, ég er búinn að stunda netheima of lengi til að vera hörundsár. Já, ég hef svo sem náð að bæta verulegum vöðvamassa á mig og losna við slatta af fitu líka án þess að flækja hlutina svona mikið. Ég ét bara eins mikið og mig langar meðan ég er að byggja upp. Nokkrum vikum síðar, þegar miðjan er farin að mýkjast aðeins fer ég svo að éta aðeins minna en ég helst vildi, sleppi ábót á hádegismatinn, kvöldsnarlinu og svona, þangað til ég er orðinn hæfilega mjór aftur. Og...