Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Vöðvauppbygging?

í Heilsa fyrir 20 árum
Byrja á 2 settum, vinna sig upp í 4-6 sett. Almennt er best að vinna í 5-10 endurtekningum per sett, en 1-4 og 11-20 repsar henta vel við ýmsar aðstæður. Fáar endurtekningar (1-6) hámarka styrk, margar endurtekningar (15+) hámarka þol. Ekki sprengja þig á hverju setti. Stöku sinnum er í lagi í síðasta setti að fara alla leið, en það er ekki gagnlegt almennt eða til lengdar.

Re: Áhugaverð grein

í Heilsa fyrir 20 árum
Auk þess má benda á að aspartame hefur aldrei verið bendlað við aukna krabbameinstíðni af nokkru tagi, hvorki í rottum eða öðrum tilraunadýrum. Það voru sætuefnin cyklamat og sakkarín sem áður fyrr voru talin auka krabbameinstíðni í rottum en a) þau eru gjörólík aspartame efnafræðilega og b) þessi krabbameinstengsl hafa ekki staðist síðari prófanir.

Re: Áhugaverð grein

í Heilsa fyrir 20 árum
Butchko og fleiri, yfirlitsgrein 2002: When all the research on aspartame, including evaluations in both the premarketing and postmarketing periods, is examined as a whole, it is clear that aspartame is safe, and there are no unresolved questions regarding its safety under conditions of intended use. Weihrauch MR, Diehl V. 2004. Artificial sweeteners–do they bear a carcinogenic risk?: However, according to the current literature, the possible risk of artificial sweeteners to induce cancer...

Re: Áhugaverð grein

í Heilsa fyrir 20 árum
Hvaða grein er þetta og af hverju er aldrei vísað í hana í vísindarannsóknum á aspartame?

Re: Creatine notkun

í Heilsa fyrir 20 árum
Sko. Það er nánast útilokað að bæta á sig vöðvum án þess að einhver fita komi með. Það þarf bara að losa sig við hana síðar. Þess vegna skiptast vaxtarræktarmenn (og reyndir margir lyftingamenn líka) á að taka uppbyggingar- (“bulking”) og niðurskurðartímabil (“cutting”). Til þess að auka vöðvamassa þarf hitaeiningar umfram brennslu. Punktur. Fræðilega séð ætti að vera mögulegt að mæla hverja kaloríu og borða nákvæmlega nóg til að bæta við vöðvum en engri fitu. Í reynd er það svo flókið (og...

Re: Creatine notkun

í Heilsa fyrir 20 árum
Ef vöðvarnir eru ekki að stækka þó þú sért að verða sterkari þá ertu ekki að borða nóg, punktur og basta! Flestir sem eru að reyna að byggja upp vöðvamassa ofmeta hvað þeir þurfa af próteini og vanmeta hvað þeir þurfa af hitaeiningum. Ég vona að þetta hjálpi.

Re: Þjálfunarprógrömm

í Heilsa fyrir 20 árum
Réttstöðulyfta og bændaganga eru bestu framhandleggsæfingarnar. Annars er svo sem hægt að gera sérstakar framhandleggsæfingar, einkum gripæfingar og úlnliðskrull og þess háttar, en fyrir flesta er það óþarft. Allar æfingar sem reyna á greipina, tog af ýmsu tagi, róður, réttstöðulyfta o.þ.h. reyna á framhandleggina. Maður tekur mesta þyngdina í réttstöðulyftu og reynir þar af leiðir mest á greipina.

Re: Skalli

í Heilsa fyrir 20 árum
Skalli erfist frá móður svo það hefur ekkert að segja hvort faðir þinn sé nauðasköllóttur og þó að faðir móður þinnar sé með skalla þýðir það ekkert endilega að þetta erfðarefni sé í þér. Þetta er ekki alveg rétt. Skalli erfist sem einfalt ríkjandi gen, bæði frá föður og móður. Hins vegar er víxlverkun við kynhormóna, þannig að einkennið kemur ekki fram í konum nema þær séu arfhreinar og þá vægar en í körlum (þunnt hár, ekki skalli). Þannig að vel er hægt að erfa skalla frá sköllóttum föður....

Re: Skalli

í Heilsa fyrir 20 árum
Nei og ef ég kynni slíkt ráð væri ég milljarðamæringur.

Re: Tungan á mér

í Heilsa fyrir 20 árum
Hmm. Hljómar eins og þú gætir verið að fá skarlatsótt. Kíktu til læknis til að vera viss.

Re: Matarprógrammið mitt...

í Heilsa fyrir 20 árum
Það er ekkert sem bendir til þess að ofgnótt hitaeininga sem fer í vöðvamassaaukningu eða brennslu sé heilsuspillandi. Hins vegar er klárlega heilsuspillandi til langtíma að fitna, en það er önnur saga.

Re: Matarprógrammið mitt...

í Heilsa fyrir 20 árum
Frá heilsufræðilegu sjónarmiði væri vissulega best að éta lítið af skyndibitafæði, einkum vegna mettuðu fitunnar. Frá vaxtarræktarsjónarmiði skiptir það engu máli.

Re: Hollasti gosdrykkurinn

í Heilsa fyrir 20 árum
Ja, ef það truflar svefninn. Annars ekki.

Re: Hollasti gosdrykkurinn

í Heilsa fyrir 20 árum
Hollast? Vatn eða sódavatn. Kók er ekkert eitur, en náttúrulega fullt af sykri sem er slæmur í óhófi. Það er jafnmikill sykur í öðrum gosadrykkjum eins og appelsíni.

Re: Matarprógrammið mitt...

í Heilsa fyrir 20 árum
Ef þú ert svo tímabundinn að þú hefur ekki tíma til að borða mat þá geturðu gleymt því að bæta á þig vöðvamassa, sorrí. Gerðu bara eitthvað annað sem þú þarft ekki nema 500 hitaeiningar á dag í, eins og t.d. að liggja í dauðadái. Til þess að fá aukavöðva þarftu amk 5000 h.e. á dag, jafnvel meira. Annars er alls konar matur til út um allt sem er fljótlegt að éta og er næringarríkur. Grillaðir kjúklingar, kjötbollur og pörusteikur fást í öllum matvörubúðum eins og einhver annar benti á....

Re: Matarprógrammið mitt...

í Heilsa fyrir 20 árum
Þú gætir bætt á þig vöðvum á þessu mataræði ef þú værir 30sm á hæð og 10 kíló á þyngd.

Re: Getur einhver hjálpað mér . . . endilega kíkja

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Stökkbeygjan (e. jump squat) er mjög góð æfing út af fyrir sig, einkum fyrir íþróttamenn, en kemur ekki í staðinn fyrir hnébeygjuna og alls ekki í byrjun. Sá sem er að byrja getur borið af því skaða að byrja á stökkbeygjum án þess að styrkja fyrst liði, sinar og vöðva. Auk þess þjálfast aðrir eiginleika vöðvanna við hraðan, léttan samdrátt en við venjulega beygju. Til að auka styrk og vöðvastærð er hnébeygjan betri. Ef þarfir íþróttamannsins eru þær að stökkbeygjur séu til gagns þá er best...

Re: Getur einhver hjálpað mér . . . endilega kíkja

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Hnébeygjan er besta alhliða fótaæfingin. Mun betri fyrir bæði styrk og heilbrigði en tækjaæfingar eins og fótrétta og fótpressa. Fyrir byrjendur er fínt að gera hnébeygjur án aukaþyngdar. Líkamsþyngdin ein dugir í upphafi. Hér er síða um hnébeygjur án lóða og kennslumyndband. Þeir sem eru mjög þungir gætu meira að segja þurft að styðjast við eitthvað. Síðar má nota handlóð og þegar styrkurinn eykst, stöng með lóðum Hér er mjög góð grein á exrx.net um allskonar hnébeygjubábiljur og hér er...

Re: Borða fyrst á morgnana fyrir rækt?

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Fáðu þér bara þegar þú vilt. Þessi bábilja um að best sé að brenna á fastandi maga hefur verið algerlega afsönnuð í tilraunum. Það eina sem skiptir máli þegar megrun er annars vegar er: Heildarhitaeiningar innbyrtar yfir daginn mínus heildarhitaeiningum brennt yfir daginn. Borðaðu bara hæfilega fyrir og eftir þjálfun.

Re: lyftingar

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Nei. Það er ekkert til að hafa áhyggjur af. Það er möguleiki á því að þung þjálfun sem byrjar mjög snemma geti haft (örlítil) áhrif á vöxt, en ekkert sem þú gerir 14 ára hefur slík áhrif. Reyndu samt að vanda þig, gera æfingarnar rétt og ekki flýta þér að taka þungt.

Re: Réttstöðulyfta?

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Viltu meira hrós? Já, það er góð lyfta.

Re: Réttstöðulyfta?

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Réttstöðulyfta=Deadlift. En Stiff Legged Deadlift er svosem líka afbrigði af henni. Oft kallað réttstöðulyfta með stífum leggjum eða ámóta.

Re: Réttstöðulyfta?

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Já.

Re: Réttstöðulyfta?

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Mér fannst réttstöðulyfta mest taka á mjóbakið þegar ég byrjaði en eftir því sem á leið meira og meira á rass og aftara læri. Annars tekur hún á flestum vöðvum líkamans eins og aðrir hafa sagt. Ég á best 210kg í keppni og 4x190 og 2x200 á æfingu.

Re: Fæðubótarefni

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Heldur hvað? Mat að sjálfsögðu. Lambalæri og svínakótilettur, rækjusamlokur og fiskbollur og allt það. Þeir sem reyna samtímis að massast og megrast eru dæmdir til að mistakast.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok