Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Kreatín,fyrir eða eftir?

í Heilsa fyrir 19 árum, 12 mánuðum
120 best.

Re: Mjólkursýra

í Heilsa fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Örstutta stund, nokkrar mínútur í mesta lagi.

Re: Tyggjó

í Heilsa fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Það er engin fita í tyggjói. Hins vegar eru flest tyggjó í dag með sorbitóli eða xylitóli, sem eru eins konar sykrur (tæknilega séð “fjölalkóhól”), en sætari en venjulegur sykur. Í Extra tyggjói 160 hitaeiningar per 100g, en 100g eru náttúrulega hellingur af tyggjói, ca 75 stk.

Re: Mjólkursýra

í Heilsa fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Líkaminn hefur 2 leiðir til að vinna orku (ATP) úr sykri. Sú fyrri, bruni, er mun skilvirkari, gefur 36 ATP orkueiningar úr hverri einsykrusameind. Bruni annar hins vegar ekki ATP eftirspurn vöðvanna þegar átökin eru mikil. Þegar eftirspurnin er mikil, t.d. við lyftingar eða spretthlaup, notar vöðvinn aðra aðferð, gerjun eða glýkólýsu, sem gefur aðeins 2 ATP fyrir hverja einsykru, en mjög hratt. Gallinn er sá að við gerjun safnast fyrir mjólkursýra sem vöðvafrumurnar þurfa að losa sig við....

Re: Allskyns spurningar

í Heilsa fyrir 20 árum
Það er alveg hægt að auka styrk vel með svoleiðis æfingum. Erfitt að auka vöðvamassa þegar brennslan er svona rosaleg. En sjáum til hvernig gengur hjá ykkur.

Re: Allskyns spurningar

í Heilsa fyrir 20 árum
1: Ég var að spá hvort þið vissuð um eikkað prótein (gott prótein)sem blandast í vatn en ekki mjólk… Öll próteinduft á markaðnum eru til þess ætluð til þess að blanda í vatn. Ef þú ætlar að blanda í mjólk geturðu alveg eins drukkið mjólkina óblandaða. Það er alveg nóg prótein í henni. 2: Ég og vinur minn vorum að gera okkur prógramm og það er sett þannig upp að við tökum tvo vöðvahópa á dag á hverjum degi og aldrei neinn hóp tvisvar í röð… en er það næg hvíld ? Til hvers viljið þið æfa á...

Re: Kreatín,fyrir eða eftir?

í Heilsa fyrir 20 árum
Kraftlyftingum stundum.

Re: Kreatín,fyrir eða eftir?

í Heilsa fyrir 20 árum
Það hefur ekki verið sýnt fram á að þessi “hleðsla” geri neitt sérstakt fyrir mann. Hins vegar fellur kreatínmagnið fljótt þannig að ef þú missir. þó ekki nema 2-3 daga úr, þarftu að byrja aftur frá byrjun. Ég hleð ekkert sérstaklega þegar ég nota kreatín fyrir keppni.

Re: Íþróttadrykkir

í Heilsa fyrir 20 árum
Hvaða vitleysa. Ef sykur í blóðinu er takmarkandi þáttur í íþróttinni eins og getur gerst í löngum íþróttagreinum eins og fótbolta, langhlaupum eða ámóta, þá er sykur nákvæmlega það sem líkaminn þarf á að halda og orkudrykkir henta eins vel og hvað annað í það. Rannsóknir hafa einnig sýnt að vöðvauppbygging eftir styrkleikaþjálfun eykst með því að innbyrða dálítinn sykur innan við hálftíma eftir æfinguna (reyndar þarf ekki mikið, eina kókómjólk eða svo). Hins vegar, ef markmiðið er að...

Re: Kreatín,fyrir eða eftir?

í Heilsa fyrir 20 árum
Það skiptir útaf fyrir sig engu máli, sveiflurnar í styrk kreatíns eru það litlar, en af þessu tvennu væri skynsamlegra að taka kreatín fyrir æfingu en eftir. Verkun þess er á æfingunni sjálfri, ekki í vöðvauppbyggingu eftir hana.

Re: sykursíki 2

í Heilsa fyrir 20 árum
Það má svosem vera að það sé óhollt þó ég hafi aldrei séð nein sannfærandi gögn sem benda til þess. Hins vegar er alveg öruggt að sykurlaust gos eykur ekki líkurnar á því að einhver fái sykursýki 2, en um það snerist umræðan.

Re: Strapar á hnén ?

í Heilsa fyrir 20 árum
Þú getur keypt hnévafninga í Medico, Akralind 3, Kópavogi. (www.medico.is). Strappar eru allt annað og eru notaðir til að lyfta þegar þyngdin er of mikil fyrir gripið, td í réttstöðulyftu (vefjast utan um úlnliðinn og stöngina).

Re: Grennast/lyfta

í Heilsa fyrir 20 árum
Almennt séð mundi ég mæla með því að taka óskipt prógramm fyrir allan líkamann amk fyrsta árið. Lyfta 2-3svar í viku, 3-6 mismunandi æfingar, 2-4 sett, 5-10 endurtekningar per sett. Ef þú vilt ganga, hlaupa, hjóla eða synda er best að gera það hina dagana eða á eftir lyftingaæfingu, ekki fyrir. Samsettar (compound) æfingar með lausum lóðum eru bestar, yfirleitt betri en tækin. Æfingaprógramm þarf að þjálfa 4 hreyfingar: 1 - ýta með fótum 2 - toga með fótum 3 - ýta með höndum 4 - toga með...

Re: Ofreynsla?

í Heilsa fyrir 20 árum
Nei, árangurinn af styrktarþjálfuninni verður líklega minni en ella. Þolið ætti að verða ágætt.

Re: Of mikið eða of lítið

í Heilsa fyrir 20 árum
Nei, það er fínt. En þú ferð á mis við mikið með því að gera ekki lyftingaæfingar fyrir neðri líkamann líka. Hlaup og þess háttar koma alls ekki í staðinn fyrir styrktaræfingar. Styrktaræfingar fyrir fætur auka hlaupahraða, sprengikraft og minnka verulega hættuna á meiðslum sem fylgja boltaíþróttum. Mæli einkum með hnébeygju, réttstöðulyftu og power clean fyrir knattspyrnumenn.

Re: Kolvetni ?!

í Heilsa fyrir 20 árum
Fitu er skipt í 3 flokka. Mettuð fita: flest dýrafita, smjör, smjörlíki, kókosolía Einómettuð fita: ólífuolía td Fjölómettuð fita: fiskfita og jurtaolíur Það er erfitt að útskýra hver munurinn er án þess að fara tiltölulega djúpt ofan í lífræna efnafræði, en í stuttu máli má segja að mettaðar fitur séu með beinum keðjum, pakkast því þétt og verða “harðar” við stofuhita, enda oft kallaðar “hörð fita”. Einómettaðar og fjölómettaðar fitur hafa tvítengi í keðjunni, eru því “skakkar”, pakkast...

Re: Kolvetni ?!

í Heilsa fyrir 20 árum
Flókin kolvetni (öðru nafni sterkja): kornmeti, grænmeti, brauð, kartöflur, pasta. Einföld kolvetni (öðru nafni sykur): sælgæti, kex, kökur, gos, ávextir, ávaxtasafi, hunang, mjólkurvörur. Hins vegar vilja margir næringarspekúlantar í dag meina að hollusta kolvetna fari meira eftir GI (glycemic index, mælikvarði á hversu fljótt sykurinn berst út í blóðið) heldur en eftir því hvort kolvetnin eru einföld eða flókin.

Re: sykursíki 2

í Heilsa fyrir 20 árum
Hmm. Er Pepsi Max ekki ein af sykurlausu týpunum?

Re: Vöðvauppbygging?

í Heilsa fyrir 20 árum
Já, og afar árangursríkar fyrir byrjendur. Hins vegar, eftir því sem þú verður sterkari og getur gert fleiri minnkar og minnkar gildi þeirra sem styrktaræfingar og þær verða meiri og meiri þolæfing. Alveg eins og aðrar æfingar sem eru of léttar. Armbeygjur eru frábær styrktaræfing fyrir þá sem geta minna en 20, en léleg fyrir þá sem geta 50+. En allir ættu að gera hnébeygjur án lóða. Frábær upphitun, góð þolæfing og fín teygjuæfing.

Re: Kreatín

í Heilsa fyrir 20 árum
1mL? Ertu viss? Það er svakalega lítil skeið. Venjulega er mælt með 5g(~5 mL) á dag, en það er ein teskeið.

Re: Fæðubótaefni

í Heilsa fyrir 20 árum
Fjölvítamín eru töflur sem innihalda öll helstu vítamín (og yfirleitt steinefni líka) í sirka réttum hlutföllum. Yfirleitt eru ætlast til að tekin sé 1 tafla á dag. Þær fást í öllum matvörubúðum, heilsubúðum og apótekum og koma frá mörgum framleiðendum, bæði erlendum og innlendum.

Re: Vantar að grennast

í Heilsa fyrir 20 árum
Af hverju heldurðu að maður þurfi að æfa amk 4 sinnum í viku? Af hverju heldurðu að maður þurfi að æfa meira en klst í hvert sinn?

Re: Vöðvauppbygging?

í Heilsa fyrir 20 árum
Alveg eins og þegar maður er að byggja upp. Mest í 5-10 reps sviðinu. Annars má líka nota svona léttar lyftingaæfingar, 20-50 reps sem eins konar úthalds- eða þrekæfingar. T.d. hnébeygjur án lóða eða með tóma stöng, armbeygjur eða ámóta. En maður lítur þá á þær sem þrekæfingar, ekki styrktaræfingar.

Re: Vöðvauppbygging?

í Heilsa fyrir 20 árum
Ég skil ekki alveg? Skera niður í lyftingum? Þeir sem eru að skera sig niður ættu að lyfta til þess að missa fitu frekar en vöðva. Auk þess eru lyftingaæfingar mjög orkukrefjandi og auka brennslu í uþb 2 sólarhringa á eftir. Í 3. lagi eykur vöðvamassi heildarbrennslu líkamans örlítið.

Re: Vöðvauppbygging?

í Heilsa fyrir 20 árum
Já. Skildu eftir 1-2 reps í pottinum og taktu frekar aukasett en að klára þig alveg. Það skilar miklu meiri árangri til lengdar.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok