SORGARFRÉTTIR FYRIR ALLA FÚTTERA!

Tommy Vance eðalfútter sem hefur í áraraðir staðið fyrir The Friday Rock Show á VH1 hefur verið rekinn!

Þetta var það eina góða við þessa annars skítastöð, ,,the best rock on the box" eins og það var kallað og hefur veitt mér og mörgum öðrum ómældar hamingjustundir og einnig kynnt mér helling af góðum hljómsveitum.

VH1 afsakaði þetta með slæmu áhorfi. Það tel ég vera rugl. Allavegana er þessi þáttur vinsæll og afspyrnu góður, en helvítis gróðapungarnir hugsa ekki um neitt nema sitt eigið typpi.

Ég vil því hvetja ykkur til að styðja gott málefni, fara á http://www.rocknetwork.com og í “rockshow” og taka þátt í undirskriftarlista til mótmæla þessu gerræði.

Eða, eins og Tommy myndi orða það : Rock on!