Já ég er sammála flestum hérna James Bönd og Laugarásvídeó er frábærar vídeóleigur. En í þriðja sæti myndi ég setja Snævarsvídeó, gott úrval, persónuleg þjónusta, fínt verð, léleg staðsetning (nálægt Gullinbrú)
Hvar í greininni varði ég ofbeldishneigð hans? lke Turner er ekki góður maður, en það má ekki að útiloka svo frábæran tónlistarmann bara af því að fólki líkar ekki vel við persónuleika hans (sbr. Woody Allen, Roman Polanski). lke var ekki góður við konuna sína en ég tel atburðina úr WLGTDWI vera ýkta.
Þú myndir ekki vera að segja þetta ef þú þekktir sambandið milli Allen og Farrow. Þau bjuggu ekki í sama húsi heldur sitthvoru megin við Central Park, þau hittust jafnvel einungis við afhendingar verðlauna og annarra sérstakra viðburða, það það mætti jafnvel segja að þau hafi varla verið saman. Og fyrst samband þeirra var á þennan veg get ég ímyndað mér að samband hans og Yi hafi ekki verið mjög náið
Mér fannst Amazon Women On The Moon bara nokkuð skemmtileg. Ég myndi frekar líkja henni við Kentucky Fried Movie heldur en Grease. Arsenio Hall, Michelle Pfeiffer og Phil Hartman eiga stór hlutverk í myndinni. Einnig held ég að þú sért að rugla saman Earth Girls Are Easy (Jim Carrey) og Amazon women on the moon og útkoman varð Amazon women from Mars
Ég vil bara benda fólki á nýjust grein porks, en hún er á korkinum: http://www.hugi.is/kvikmyndagerd/korkar.php?sMonitor=vi ewpost&iPostID=849254&iBoardID=476
Ég hef ekki séð hana sjálfur, en hef heyrt um að hún gerist að hluta til á Íslandi. Monster hefur ekki fengið góða dóma og ég mæli ekki með því að fólk dæmi Hartley út frá henni. Tjékkaðu frekar á Amateur þar sem hún ætti að vera til á flestum vídeóleigum
Sjálfur tók ég eftir nokkrum rangfærslum í svari þínu: (eins og limer segir) þá leikur sean bean í The Two Towers. Og í Ronin er Sean Bean víst svikari, hann villir á sér heimildir, þar með svíkur hann traust aðalpersónanna, þar með er hann svikari
Vá, ég bjóst ekki við að fá mörg álit út á þennan frábæra mann. Ég vil bara leiðrétta smá mistök, meistarinn er 46 ára og tveggja mánaða gamall. Já, Quantum Leap eru með uppáhaldsþáttum mínum
Þú ættir endilega að kíkja á þessar tvær nýju, hann hefur ekkert slakað á góðu myndunum og jafnvel þroskast. Mæli með þeim. Smá mistök í greininni, Jim Jarmusch lék ekki í Smoke, heldur framhaldinu af Smoke, Blue In The Face
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..