úff, mér fannst allir frábærir. var etv smá tíma að venjast frodo í hlutverkinu, en hann vandist vel og ég held ég hafi setið með króníska gæsahúð alla myndina :) annars er ég sammála þessu með orlando bloom, mér fannst hann fara stórvel með legolas. reyndar svo vel að þegar ég sá ljósmynd af leikaranum sjálfum, í venjulegum fötum með stutt hár og eitthvað, þá varð ég pínu svekkt. mér fannst hann bara hafa átt að vera eins og legolas alltaf! fyndið hvað maður dettur inn í svona ævintýraheima...