Ég svaraði beiðni eins hugamanns eða konu inn á Korkum, þar sem viðkomandi bað um upplýsingar varðandi Weimaraner. Allt í lagi með það en inn þessum sama Kork skrifar dnxcoded eftirfarandi eftir að ég sendi inn mitt svar:
“Þú meinar framleiddir fyrstu hundana !!!!! Varst síðan rekinn úr Félaginu !! og hundur beit þig, því þú ert TÍK !!!!”
Ég er allt of mörgum sinnum búin að svara svona óhróðri hér inn á Huga og ætla ekki að gera það einu sinni enn, en mig langar að benda viðkomandi á að margur heldur mig sig!! Veit ekki betur en dnxcoded hafi tilkynnt inn á korkum að hann/hún væri að fara að flytja inn NOKKUR PÖR AF DOBERMAN, til hvers? Ætlar viðkomandi kannski að framleiða Doberman??? Ekki er mér kunnugt um hvort sá/sú sami sem ég hef hér rætt um sé hundur eða tík en allavega annaðhvort ef hann/hún tilheyrir sömu dýrategund og hann/hún ætlar mér að tilheyra. Það er furðulegt að ekki skuli vera hægt að skrifa inn grein eða svara nokkrum hlut án þess að einhver sem minnst veit að sjálfsögðu um mín málefni og HRFÍ sendi slettu eins og hér að ofan. Hér eftir áður en slíkar slettur eru sendar inn KANNIÐI MÁLIN og farið rétt með.Svona aðdróttanir og slettur verða til þess að fólk með fullu viti hættir að koma hér inn á Huga, hvað þá að skrifa nokkurn skapaðann hlut eða svara póstum.
Ég hélt að Huga hundar væru til að upplýsa,fræða og skiftast á skoðunum um hunda en ekki til að vera með endalaust skítkast um málefni sem menn vita ekkert um og gera sér enn síður far um að kanna áður en farið er á netið með það.
Með kveðju frá Danmörku,
Marta (keno)