Áttu sniðugan hund? Átt þú frábæran hund, sem er bestur í heiminum!
Ég líka. Minn er frábær!
Mig langar í annan, en veit ekki hvaða tegund mig langar í.
Þið meigið endilega mæla með einhverri tegund.

Þessir hundar hér eru allir frekar sjaldgæfir hér þó þeir séu mjög áhugaverðir.
Eins og t.d. Basenji. Ég hef heyrt að þeir geti ekki gelt, þvoi sér eins og köttur, vilji ekki sofa á gólfinu og klifri uppá skápa. Og líka það að þeir séu grænmetisætur og þurfi að fá aðgang að grasblett til að bíta gras.
Svo eru það hárlausir hundar eins og t.d. Mexíkanski Snoðhundur sem er með líkamshita uppá 40,5°C og svitnar um allan líkamann í stað þess að kæla sig með tungunni eins og aðrir hundar.
Ímyndið ykkur að þið séuð nýbúin að vera úti að hlaupa með seppa og ætlið að klappa honum og kjassa og þá er hann ekkert nema blautt svitabað….umm yummy!
Svo hafa Chinese Crested víst enga framjaxla (til að naga bein) og hafi ofnæmi fyrir ull.

Ég á Poodle hund sem elskar grænmeti, sérstaklega þykka hráa brokkoli stöngla og papriku, harðfiskur og roð. Annars elskar hún allan manna mat. Svo finnst henni ekkert skemmtilegra en að stela sokkunum af fótunum af manni og opna gosflöskur, sem hún er orðin helvíti klár í. Held að hún sé bara orðin soldið einhverf af því að hafa engann hund til að leika við…heh :)

Ég var að spá í hvort þið eigið einhverja svona skemmtilega hunda. Sem kunna að gera eitthvað sniðugt. Eða bara einhverja sniðuga tegund.
Hvaða hæfileika hefur hundurinn þinn??? :)
Segðu okkur frá því!