nákvæmlega sömu pælingar og í mínum haus… en ég held að ef ættbálkarnir verði sameinaðir eigi ken ekki sjens. þau éta hann lifandi… en hvað ef það yrði engin samruni??? bara keppa þar til 2 er eftir… það væri soldið kúl
skil ekki hvað shell er að pæla þessi zack gaur er ömurlegur!!! ýkt ljótur og ekkert spennandi. ég held að susan verði rekin og skólastjórnin noti evan og allt þetta eineltismál gegn henni. svo verður allt brjálað í götunni milli þeirra og vonandi endar það þannig að hancock fjölskyldan lætur sig hverfa. matt má svo sem vera eftir hann er ekki svo ljótur…
æðisleg mynd…. ég keypti hana á dvd á útsölu í london í sumar og var spurð um skilríki því myndin er bönnuð innan 18 og ég er 22… bara snilld =) kv. forynja
rosalega er emily pirrandi krakki og mamman!!! úfff, hvað ég væri til í að losna við þær… til frambúðar!!!!!! en það er e-ð rosa að gerast hjá susan. það er e-r í skólaráðinu að reyna að losna við hana og er að nota evan til að hjálpa sér. það á örugglega eftir að skapa mikla spennu í götunni…
en hey. brian sagði fyrir löngu síðan að hann ætlaði að láta lítið fara fyrir sér og fylgja hópnum þar til þetta yrði einstaklingskeppni. ég held að hann segi bara já við ted til að halda honum góðum og til að komast áfram…. ekki viss um að hann verði true 'til the end…
Þetta er sko LANG BESTA kaka í heimi og ekkert kakó hér… Þessi er í miklu uppáhaldi á mínu heimili. 200 gr. suðusúkkulaði 200 gr. smjör 4 egg 3 dl. sykur 1 dl. hveiti 100 gr. heslihnetuflögur Bræðið saman smjör og súkkulaði við vægan hita og kælið. Þeytið vel egg og sykur, þar til blandan verður létt og ljós. Saxið heslihnetuflögurnar mjög smátt. Blandið súkkulaði blöndunni verlega saman við eggin með sleikju. Svo hveitinu og hnetunum. Blandið öllu varlega saman. Sett í tvö smurð hringform...
þetta er alveg hræðilegt!!! ég hef aldrei átt svona hund sjálf en hef heyrt að þeir séu ekki mjög þægilegir með börnum… ég held að þú verðir að fá professional hjálp og það strax. ég myndi mæla með ástu í gallery voff, prófaðu að hringja í hana. hún getur örugglega hjálpað þér hún er með svona hunda sjálf. kv. forynja
ég á ekki hund núna en veit að kattamaturinn frá royal canin er mjög góður fyrir feldinn og mamma á 2 hunda sem fá svoleis hundamat og eru glaðir með það. en ég fór í gæludýrabúð í gær að kaupa mat fyrir feitilíus (kötturinn minn er feitari en flestir aðrir) og sá þar mann með 7 má. doberman-tík frá dalsmynni og hún var með skottið á milli fótanna og að deyja úr hræðslu við allt og alla í kringum sig. ég veit ekki hvort einhver hafði átt hana á undan honum en hann var að tala um að hún hefði...
flott grein hjá þér tomas91 (",) það er mjög mikilvægt að vera góður við dýrin sín alveg frá því þau eru ung. og fólk mætti kannski aðeins pæla í því að það eru akki allir jafngamlir sem skrifa hérna inn…
þetta er alveg hreint með ólíkindum hvað vinsældirnar eru að aukast… núna rétt áðan var ég að þrífa stofugólfið og tók fram sófann og fann þar bláa kattaról. í því kemur litli vinur minn í heimsókn ólarlaus!!! svo ég smellti auðvitað ólinni aftur á greyið og í því kom mingus inn og gæinn bara þaut út um gluggann…. það hefur eitthvað gengið á meðan ég var ekki heima. en er einhver sem kannast við þennan kött? mig langar svo að vita hvað hann heitir og hvaða tegund hann er…
ég kann einn góðan þú blandar saman sprite, ávaxtasafa(t.d. appelsínu eða ananas) og grenadine-sýrópi. mjög einfalt og gott og sýrópið er eldrautt svo liturinn verður mjög skemmtilegur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..