Ekki gerðist nú margt í þættinum í dag. En þið sem horfðuð á þáttinn í gær þá lenti Emily ekki fyrir bíl, en ég held að það hafi ekki munað litlu. Karl fór með hana til mömmu hennar. Svo lenti Karl í því að fara í kattaleik með henni því mamma hennar var að fara í próf. Það var pínu fyndið því Karl gleymdi að þvo nefið og veiðihárin áður en hann fór á kránna og það var soltið hlegið að honum.

Toedie fékk vinnuna hjá lögfræðingunum og var náttúrulega ánægður. Hann fór svo með Dee út í garð og gróðusettu þau blóm, það var víst þáttur í því að gleyma fósturlátinu og Darcy.

Steph var eitthvað sár út í strákana hjá fyrirtækinu því þeir voru alltaf með einhverja strákaklúbba og hún fékk ekki að vera með. En Matt bauð svo strákunum á kránna eftir að hún lokaði og héldu óvænta veislu handa Steph og voru þeir allir klæddir í kvenmannsföt með hárkollur. Toadie var búinn að vara hann við að vera ekki að vera það eftir lokun, því þá gæti Lou misst vinveitingaleyfið. Svo í endirinn kom Toadie og gómaði þau og stuttu eftir kom löggann og endaði þá þátturinn.

Svo var einhver að banka á dyrnar hjá Karl og Scully fjölskyldunni en þegar þau komu til dyra þá var enginn þar. Svo bankaði þessi sami hjá Toadie og félögum og Bob hundurinn gelti fyrir framan hurðina og sá sem bankaði tók hann.